Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 ✝ Þóra Kjart-ansdóttir fædd- ist í Reykjavík þann 22. nóvember 1956. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Skógarbæ þann 14. ágúst 2018. Foreldrar hennar voru hjónin Kjartan Þór Val- geirsson, offset- prentari, f. 8. nóv- ember 1935, d. 8. janúar 2005, og Anna Elín Hermannsdóttir, móttökuritari, f. 28. júlí 1938. Bræður Þóru eru Hermann Kjartansson, stærðfræðingur, f . 4. desember 1960, og Valgeir Kjartansson, verkfræðingur, f. 12. maí 1965. Kona Valgeirs er Lísa Björk Bragadóttir, kenn- ari, f. 26. febrúar 1965. Synir þeirra eru Kjartan Bragi, lækn- ir, f. 4. október 1988, Ævar, verk- fræðingur, f. 17. júní 1990, Þórir Steinn, nemi, f. 20. júlí 1996, og Hjalti, nemi, f. 1. mars 1998. Fyrrverandi sambýlismaður Þóru er Viðar Scheving Jónsson, f. 11. nóvember 1956, múrarameist- ari. Þóra gekk í Breiðagerð- isskóla og síðan Réttarholts- skóla. Hún starfaði við bókhald allt til ársins 1982 er hún slas- aðist alvarlega í umferðarslysi sem varð til þess að líf hennar og lífsgæði breyttust algjörlega. Útför Þóru fer fram frá Seljakirkju í dag, 20. ágúst 2018, klukkan 15. Þóra var elst okkar systkin- anna, einstaklega hlý og handlag- in. Hún gekk í Breiðagerðisskóla og Réttarholtsskóla, spilaði hand- bolta og hafði unun af. Á sinni stuttu starfsævi vann hún í bók- haldi, þ. á m. í Nóatúni og Ála- fossi. Við bræðurnir vorum afskap- lega hændir að Þóru og gerðum við því sjaldnast neitt á hennar hlut, nema þegar við dýrkuðum upp skrána á unglingaherberginu hennar til að komast í gersemarn- ar sem þar voru, kassettutækið og plötuspilarann. Við skemmtum okkur vel og spiluðum Crocodile Rock með Elton John endalaust þar til nágrannarnir þoldu ekki við lengur og kvörtuðu. Ekki skammaði hún okkur heldur beið okkar næst mun öflugri skrá. Tæplega tvítug keypti hún íbúð í Austurbergi 20 ásamt sambýlis- manni sínum og voru tíðar ferðir með leið 12 upp í Breiðholt að heimsækja Þóru. Þar átti Þóra góð ár sem fjölskylda og vinir minnast með hlýhug. En örlögin áttu eftir að grípa í taumana sumarið 1982 er hún var farþegi í rútu með starfsfólk á leið til vinnu að Álafossi og Reykja- lundi. Steypubíl var ekið yfir á öf- ugan vegarhelming og varð harð- ur árekstur er hann lenti á rútunni. Þar hlaut Þóra alvarlegt höfuðhögg og lamaðist vinstri hlið líkamans. Þóra var meðvitundar- laus allmargar vikur á gjörgæslu- deild. Í kjölfarið tók við dvöl á endurhæfingardeild á Grensási sem olli fjölskyldunni miklum vonbrigðum. Úrræði í endurhæf- ingu fyrir hana voru lítil sem eng- in, okkur þótti hún afskrifuð. Frá Grensás var Þóra flutt á hálfgerða biðdeild á Heilsuverndarstöðinni þar sem saman voru komnir ein- staklingar sem kerfið hafði í raun ekkert pláss fyrir. Þar deildi hún, ung kona, herbergi með tveimur öldruðum konum. Aðbúnaður sjúklinga og aðstæður starfs- manna voru ekki góðar, þó starfs- fólk reyndi sitt besta. Það var því gleðidagur er Þóra flutti á ný- stofnaða heimilislega deild í Skóg- arbæ í Mjódd. Þar var henni sinnt af hlýhug og fagmennsku um rúmlega tveggja áratuga skeið. Elsku Þóra mín, nú getur þú lagt frá þér klyfjarnar og haldið áfram frjáls. Valgeir (Valli) bróðir. Við systurnar minnumst Þóru frænku með hlýhug og þökkum allt það góða sem hún gerði fyrir okkur og foreldra okkar. Hún var róleg og yfirveguð og hafði gaman af mörgu, en eitt af því var handa- vinna, útsaumur, hekl og fleira og liggja nokkur falleg verk eftir hana. Bræðrum sínum var hún sem besta systir og leiðbeindi þeim vel, enda eldri en þeir. Hún eignaðist kærasta, hann Vidda, og lífið blasti við þeim. Þau keyptu sér íbúð og komu sér upp fallegu heimili. Vá hvað mér fannst alltaf eldhúsið hennar flott. Þetta breyttist allt sumarið 1982 þegar Þóra lenti í alvarlegu bílslysi og var það mikill sorgardagur á mörgum heimilum. Lífsbarátta hennar var hörð og hennar hlut- skipti annað en til stóð; sjúkrarúm á hjúkrunarheimili. Hún átti góða að í ástvinum sínum og ætlum við ekki að hallmæla neinum þegar við segjum að Anna frænka, móðir Þóru, hafi ávallt staðið eins og klettur við bakið á henni og fyrir það ber að þakka. Við vottum ást- vinum Þóru innilega samúð okkar. Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem) Heba Haraldsdóttir og Una Haraldsdóttir. Ég á mér draum um betra líf. Ég á mér draum um betri heim. Þar sem allir eru virtir, hver á sínum stað, í sinni stétt og stöðu. Þar sem allir eru mettir gæðum sannleikans. Þar sem allir fá að lifa í réttlæti og friði. Þar sem sjúkdómar, áhyggjur og sorgir eru ekki til. Og dauðinn aðeins upphaf að betri tíð. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þú varst fyrsta barn ungra og stoltra foreldra, umvafin ást frá fyrstu tíð. Gullfalleg stelpa með geislandi augu og bjart bros. Orð- sporið er: dugleg, hlý, ákveðin, hjálpsöm, kraftmikil. Pabbi þinn lendir í vandræðum með þig í strætó; þú mótmælir há- stöfum að fá ekki stóra boltann á himninum til að leika þér með. Yngri bræðurnir brjótast inn í her- bergi unglingssysturinnar til að hlusta á plöturnar hennar, þeir gera það ekki aftur. Táningsárin stutt, komin í sambúð og búin að kaupa íbúð með ástinni þinni fyrir tvítugsaldurinn. Vinamörg, skemmtileg, sumarbústaðaferðir, utanlandsferðir, góð ár. Návist þín er hlý, mátt ekkert aumt sjá, hjálp- ar þeim sem hjálpa þarf. Litli bróðir tekur strætó upp í Breiðholt til Þóru, oft. Dýrðardagar, bakað, poppað, hlustað á plötur. Hand- lagin og listræn; keramikmálun, postulínsmálun, rýjateppi og hnýtingar. Farsæl, samviskusöm og dugleg í vinnu. Lífið er ljúft, margt að gera, stundarinnar not- ið. Allt í einu er allt breytt, líkam- inn lamaður, tjáningin óskýr, get- an svo miklu minni, þú ert tuttugu og fimm ára og þín bíður líf á stofnun. Stofnanalíf þar sem hjartahlýja og fagmennska er það mikilvægasta. Nú ertu bundin, öðrum háð. Barátta fyrir tilveru þinni tekur við, þar fer mamma fremst, hún er óþreytandi að berj- ast fyrir réttindum þínum og bættum aðbúnaði. Þannig líða 36 ár. Alltaf umvafin ást fjölskyld- unnar, vinum sem halda tryggð og ekki síst kærleiksríku starfsfólki. Fyrir það erum við svo óendan- lega þakklát. Nú ertu frjáls, elsku Þóra, nú getur þú aftur allt. Lísa. Fæðing Þóru frænku minnar er ein af myndunum sem ég varðveiti frá bernskuárum mínum. Þrátt fyrir fjögurra ára aldursmun gekk okkur vel að deila geði. Hún var brosmild og ákveðin í senn og lífið brosti við henni. Reiðarslagið sem fjölskyldan öll upplifði þegar harkalega var gripið inn í lífshlaup hennar í hörmulegu umferðarslysi líður engu okkar úr minni. Það er vart hægt að gera sér í hugarlund hvernig upplifun það er að vera læst inni í eigin líkama til 36 ára. Ást, kærleikur og um- hyggja Önnu móður hennar og nærfjölskyldu hefur þó án efa gert þessa erfiðu stöðu Þóru bærilegri. Móðurást og elja Önnu Her- mannsdóttur er einstök. Hún hef- ur haldið ljósinu logandi fyrir dótt- ur sína og lýst upp með verkum sínum og hug. Til draga fram og minna á gildi slíkra ljósgjafa sendi ég frænku minni Þóru lítil vers sem ég vona að nái til hennar og lýsi henni á nýjum stað. kveiktu á ljósi hvar sem þú ert kveikirðu á öðru er betur að gert þó loginn sé veikur lýsir hann sterkt og ekki gleyma öðru ljósi að morgni kveiktu á ljósi hvert sem þú ferð hvað svo sem byrðin er þung sem þú berð láttu það lýsa á allt sem þú sérð og ekki gleyma öðru ljósi að morgni þó viljinn sé veikur er vonin samt sterk koma má mörgu og miklu í verk það sem þú gerir er það sem þú ert þín verður minnst fyrir það sem var gert kveiktu á ljósi hvenær sem er láttu það lýsa innra með þér hvernig sem lánast og leikritið fer og ekki gleyma öðru ljósi að morgni (Valgeir Guðjónsson) Valgeir Guðjónsson og fjölskylda. Elsku frænka okkar. Við þökk- um þér fyrir samveruna í gegnum árin. Minning um fallega, duglega konu lifir hjá okkur. Sunnan yfir sæinn breiða sumarylinn vinda leiða. Draumalandið himinheiða hlær og opnar skautið sitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Gakk þú út í græna lundinn, gáðu fram á bláu sundin. Mundu, að það er stutt hver stundin, stopult jarðneskt yndi þitt. Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt! Allt hið liðna er ljúft að geyma, – láta sig í vöku dreyma. Sólskinsdögum síst má gleyma, – segðu engum manni hitt! Vorið kemur heimur hlýnar, hjartað mitt! (Jóhannes úr Kötlum) Hvíldu í friði, elsku Þóra. Kjartan Bragi, Ævar, Þórir Steinn og Hjalti. Þóra Kjartansdóttir Elsku amma. Við eigum þér svo margt að þakka. Þú varst einstök á svo marga vegu. Við eigum svo margar góðar minningar frá Kálfsá, minningar sem er gott að ylja sér við núna þegar þið afi eruð bæði farin. Við gleymum aldrei sumrunum í sveitinni, þegar þú baðst okkur Ragna Björgvinsdóttir ✝ Ragna Björg-vinsdóttir fæddist 10. júlí 1938. Hún lést 23. júlí 2018. Útför Rögnu fór fram 2. ágúst 2018. um að fara niður á tún til þess að tína túnfífla í hunang á meðan þú ætlaðir að klára að gera eitt- hvað inni. Eftir að hafa tínt túnfífla, sveiflað okkur í nokkra hringi á þvottasnúrunni, búið til leikþátt, skammað heimalingana fyrir að éta blómin þín og farið svo að trufla afa í skemmunni, komum við inn í kaffi. Ósjaldan var brúnkaka á boð- stólum, enda var það uppáhaldið okkar. Volgri kökunni var svo skol- að niður með ískaldri mjólk úr tveggja lítra fernu, það var sko al- veg sérstakt fyrir okkur því það fengust bara eins lítra fernur fyrir austan. Eydís var reyndar aldrei hrifin af mjólk en hún drakk hana samt alltaf á Kálfsá, enda hélt hún því statt og stöðugt fram að mjólk- in á Kálfsá bragðaðist betur en öll önnur mjólk. Við munum svo vel eftir því þeg- ar við heyrðum kallað innan úr gamla húsi „Þú! finndu mig“, ef þig vantaði einhverja hjálp. Það var aldrei erfitt að finna þig, maður rann bara á hljóðið, hljóðið í þér að humma einhver lög sem þú varst oftar en ekki að búa til jafnóðum. Stundum vantaði þig reyndar enga hjálp, varst bara að kalla í okkur til þess að gefa okkur eitthvert got- terí sem þú fannst í búrinu. Þú varst alltaf að dekra við okkur. Seinna kom svo okkar tími og við fengum loksins að dekra við þig, þá sérstaklega eftir að þú fluttir aust- ur. Þú sagðir stundum við okkur að við ættum ekki að hafa svona mikið fyrir þér. Þá minntum við þig á að þú dekstraðir okkur svo mikið þeg- ar við vorum yngri að þú ættir þetta inni hjá okkur og svo hlógum við í kór. Eins sárt og það er að þú sért farin frá okkur er notalegt að hugsa til þess að þú sért loksins komin aftur í fangið afa. Nokkrum dögum áður en þú fórst frá okkur sagðirðu að afi væri að passa okkur öll og þess vegna vitum við að þið vakið bæði yfir okkur núna. Takk fyrir allt, takk fyrir að vera besta amma í heimi, takk fyrir að hlífa okkur við því að smakka svið og bjóða okkur krökkunum frekar uppá pizzu og síðast en ekki síst, takk fyrir að flytja austur og leyfa okkur að búa til enn fleiri dýrmætar minningar með þér. Knúsaðu afa frá okkur. Þar til næst. Þínar, Eydís og Bergdís Sigfúsdætur. Elskuleg frænka okkar, GUÐNÝ BALDVINSDÓTTIR frá Grenjum, sem lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi laugardaginn 11. ágúst, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 23. ágúst klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar. Systkinabörn hinnar látnu Eiginmaður minn, bróðir okkar, tengdasonur, mágur og frændi, EINAR RAGNARSSON, Traunufer Arkade 10, Wels, Austurríki, lést á Klinikum-sjúkrahúsinu í Wels mánudaginn 16. júlí. Útför hans fór fram frá Basilika Enns, St. Laurenz-kirkjunni í Enns í Austurríki laugardaginn 21. júlí. Minningarathöfn fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 24. ágúst klukkan 15. Claudia Glück Ragnarsson Kristín Ragnarsdóttir Arne Nordeide Þórunn Ragnarsdóttir Snorri Egilsson Málfríður Ragnarsdóttir Guðmundur Ragnarsson Þóra Friðriksdóttir og fjölskyldur Hanna Glück Andrea, Harry, Max og Ivy Marina, Albert, Steffi, Florian og Chrisl Elsku hjartans eiginkona mín, ástkær mamma og tengdamamma, yndisleg amma og langamma, ANNA SÓLBRÚN FRIÐRIKSDÓTTIR, lést á Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki fimmtudaginn 16. ágúst. Jón Árnason Hallfríður Bára Jónsdóttir Sigurbjörn Björnsson Sigurlaug Jónsdóttir Árni Jónsson ömmu demantarnir og langömmu prinsessan Eitt af því dýr- mætasta í lífinu, næst því að eiga góða fjölskyldu, eru góðir vinir og gott samferðafólk. Það auðgar og gef- ur lífinu gildi, bæði í gleði og sorg. Þegar hann Helgi giftist bestu vinkonu minni stækkaði vinahóp- Helgi Þröstur Valdimarsson ✝ Helgi fæddist16. september 1936. Hann lést 6. ágúst 2018. Útför Helga var gerð 17. ágúst 2018. urinn og auðgaðist. Þau Gunna og Helgi voru falleg hjón og áttu farsælt og gott hjónaband. Helgi var góður vinur og ráðhollur, skemmtilegur og með góðan húmor, og svo söng hann svo ljómandi vel. Hann naut vel- gengni og virðingar í sínu starfi og rannsóknum. Hann átti mörg áhugamál, m.a. útivist og fjallgöngur og var einn af stofnendum gönguhópsins „Derris“. Er mér mjög minnis- stæð ævintýraferð um Svarfaðar- dalinn þar sem margir tindar voru sigraðir undir hans leiðsögn. Ég á Helga margt að þakka, m.a. það að hafa stundað götu- hlaup til margra ára. Það var árið 1986, sem Helgi ákvað að hlaupa hálft maraþon í Reykjavíkur- maraþoni þótt ekki gæfist mikill tími til undirbúnings. Hlaupið kláraði hann vel og kom í mark á góðum tíma. Þetta varð mér mikil hvatning og áskorun og nokkrum árum seinna tókst mér að hlaupa mitt fyrsta hálfa maraþon og fékk þá klapp á bakið! Við kveðjum góðan vin með trega en á sama tíma er margs góðs að minnast frá mörgum góð- um samverustundum. Innilegar samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Ágústa G. Sigfúsdóttir. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birt- ing dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hve- nær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.