Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 23
seinni tíð hefur hestamennskan átt
hug minn allan og allrar fjölskyld-
unnar. Það er einstaklega gaman að
þjálfa hesta og byggja upp sinn eigin
hest. Ég tók því strax fegins hendi
þegar Háskólinn á Hvanneyri bauð
upp á námsgráðu í reiðlist, var í
fyrsta hópnum sem fór í gegnum svo-
kallað reiðmannsnám og útskrifaðist
sem reiðmaður árið 2010.“
Hvarflaði þá aldrei að þér að verða
hrossabóndi?
„Jú. Ég stóð ung að árum frammi
fyrir því vali að fara í búfræðinám eða
feta viðskiptaveginn. Ég valdi það
síðara en bóndablóðið blundar í mér
og ég fæ útrás fyrir sveitakonuna í
gegnum hestamennskuna. Í kringum
hestana og hirðingu þeirra losna ég
frá amstri dagsins og stressinu sem
því fylgir stundum. Á sumrin vil ég
helst vera í sveitinni, í fallegri nátt-
úru, með hestana nálægt mér. Mér
finnst ég ekki hafa kynnst landinu
mínu og íslenskri náttúru fyrr en ég
fór að ferðast um það á hestum. Ár-
legar hestaferðir um óbyggðir eða
sveitir landsins eru því fastur liður í
sumarleyfinu.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Hlífar er Sigur-
björn Magnússon, f. 31.7. 1959, lög-
maður. Foreldrar hans: Magnús Guð-
mundsson, f. 29.1. 1925, d. 9.12. 2006,
sóknarprestur í Reykjavík, Súðavík
og í Grundarfirði, og k.h., Áslaug Sig-
urbjörnsdóttir, f. 6.9. 1930, d. 23.2.
2001, hjúkrunarfræðingur. Fyrri
maður Hlífar er Ingi Guðmundsson,
f. 2.11. 1969, framkvæmdastjóri.
Börn Hlífar og Inga eru: 1) Andri,
f. 17.3. 1994, viðskiptafræðingur í
Reykjavík, og 2) Birta, f. 15.2. 1998,
hestakona í Reykjavík.
Stjúpbörn Hlífar eru: 1) Magnús, f.
6.5. 1987, tölvunarfræðingur í
Reykjavík; 2) Áslaug Arna, f. 30.11.
1990, alþingismaður í Reykjavík, og
3) Nína Kristín, f. 6.10. 1993.
Bræður Hlífar eru Snorri, f. 19.5.
1974, trésmiður, búsettur í Mos-
fellsbæ, og Ingi, f. 14.10. 1979, sölu-
stjóri í Kópavogi.
Foreldrar Hlífar eru Edda Hall-
dórsdóttir, f. 5.7. 1948, lífeindafræð-
ingur, og Sturla Snorrason, f. 5.8.
1945, trésmíðameistari og fv. fram-
kvæmdastjóri hjá Húsasmiðjunni.
Úr frændgarði Hlífar Sturludóttur
Hlíf Sturludóttir
Guðrún Einarsdóttir
b. á Stóra-Sandfelli og Mýnesi
Björn Antoníusson
b. á Stóra-Sandfelli í Skriðdal
og Mýnesi í Eiðaþinghá
Hrefna Björnsdóttir
húsfr. og verkakona í Kópavogi
Halldór Kristmundsson
verkam. í Kópavogi
Edda Halldórsdóttir
lífeindafr. í Rvík
Margrét Jórunn Magnúsdóttir
húsfr. í Rvík
Kristmundur Bjarnason
sjóm. og innheimtum. í Rvík
Jensína Halldórsdóttir skólastj. Hússtjórnarskóla Suðurlands á Laugarvatni
uðmundur Halldórsson
b. í Magnússkógum
GGuðbjörn Guðmundssonb. í Magnússkógum í
Hvammssveit
Auður Guðbjörnsdóttir b.
á Búlandi í Skaftártungu
igurbjörg Snorradóttir
skógarb. í Galtalæk í
Biskupstungum
SAgnes Geirdal
skógarb. í Galtalæk
í Biskupstungum
Sveinn Biering Jónsson
athafnam. í Garðabæ
Jón Snorrason
framkvæmdastjóri
igurður Jóhannsson
bílstj. á Patreksfirði
SElvar Berg tónlistarmaður
í Lúdó Sextett og Stefán
Einar Örn Björnsson b.
í Mýnesi í Eiðaþinghá
Sigriður Laufey Einarsdóttir
guðfræðingur og djákni í Fellabæ
Baldur Halldórson
ramkvæmdastjóri
í Kópavogi
f
Adda – Ásgerður
Stefanía Baldursdóttir
landsliðskona í fótbolta
Högni Halldórsson
amkvæmdastjóri
og skipstjóri í
Kópavogi
frHalldór Karl Högnasonforstöðum. fjárstýringar
Kviku
Rósa Guðmundsdóttir
húsfr. á Patreksfirði
Jóhann Sigurjón Bjarnason
trésmiður á Patreksfirði
Inga Berg Jóhannsdóttir
húsfr. í Rvík
Snorri Halldórsson
trésmíðam. og stofnandi Húsasmiðjunnar
Ingibjörg Sigríður Jensdóttir
húsfr. í Magnússkógum
Halldór Magnús Guðmundsson
b. í Magnússkógum í Hvammssveit
Sturla Snorrason
trésmíðam. og fv. framkvstj. í Rvík
Í útreiðatúr Hlíf og Sigurbjörn.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018
Verumgáfuð ogborðum
fisk
Plokkfiskur
- Hollur kostur tilbúinn á 5mín.
Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is
Hollt og
fljótlegt[ ]
ÁNMSG
P
R
E
N
T
U
N
.IS
90 ára
Jónína Júlíusdóttir
85 ára
Jósep Þóroddsson
Sigríður Jónsdóttir
Sigurður Sigurðsson
80 ára
Hólmfríður
Guðmundsdóttir
Rafn Sigurðsson
Sigríður Lúðvíksdóttir
Valmundur O. S Einarsson
Þorsteinn Stefánsson
75 ára
Andreas Bergmann
Ásmundur Pálsson
Edda G. Garðarsdóttir
Hjálmar Ólafur Haraldsson
Jónas Sigurðsson
Selma Katrín Albertsdóttir
70 ára
Elías Björn Angantýsson
Guðjón Þorgils
Kristjánsson
Helga Karlsdóttir
Jón Ingi Einarsson
Júlíus Roy Arinbjörnsson
Samúel Örn Erlingsson
Þorgerður Jóhannsdóttir
Þórhallur Bragason
60 ára
Ástþóra Kristinsdóttir
Birgir Haraldsson
Eiríkur Alfred
Víkingsson
Hannes Hauksson
Józef Henryk Hetmanski
Margrét Þórðardóttir
Marten Ingi Lövdahl
Matthías Axelsson
50 ára
Hlíf Sturludóttir
Jón Gíslason
Luu Thi Tram
Rannveig Þyri
Guðmundsdóttir
Róbert Arnbjörnsson
Skúli Sigurður Ólafsson
Stefán Héðinsson
Súsanna Viderö
Þorvaldur Ægir Harðarson
Þóra Gunnarsdóttir
40 ára
Björgvin Hörður Arnarson
Halldór Geir Jensson
Sigurður Jón Boersma
Yusuf Sert
30 ára
Alina Ewa Bieniek
Aron Smári Arnarsson
Birna Magnea Bogadóttir
Georg Styrmir Rúnarsson
Gréta Baldvinsdóttir
Helga Laufey
Ásgeirsdóttir
Hilmar Pétursson
Leonard Jóhannsson
Magnús Stefánsson
Martin Luke Forward
Páll Óli Ólason
Sunna Björgvinsdóttir
Theodór Kjartansson
Tinna Kamilla
Jóhannesdóttir
Viktoria Kay
Antonsdóttir
Þóra Kristín Pálsdóttir
Þröstur Þráinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Þröstur ólst upp í
Hafnarfirði, býr í Kópa-
vogi, lauk BA-prófi í hag-
fræði, BS-prófi tölv-
unarfræði og er forriari
hjá Five Degrees.
Maki: Eva Dögg Þór-
isdóttir, f. 1992, að ljúka
MSc-prófi í verkfræði frá
DTU í Kaupmannahöfn.
Foreldrar: Ragnheiður
Ríkharðsdóttir, f. 1955,
verslunarstjóri, og Þráinn
Hauksson, f. 1952, raf-
eindatæknir.
Þröstur
Þráinsson
30 ára Tinna ólst upp í
Reykjavík, býr þar og er
aðstoðarverslunarstjóri
hjá A-4.
Maki: Birgir Már Dav-
íðsson, f. 1986, bifvéla-
virki hjá Tékklandi.
Börn: Eva Dögg, f. 2006,
og Ísak Stormur, f. 2011.
Foreldrar: Ólöf Sigríður
Magnúsdóttir, f. 1962,
starfar í Skálatúni, og Jó-
hannes Baldursson, f.
1963, starfsmaður við
Húsasmiðjuna..
Tinna Kamilla
Jóhannesdóttir
30 ára Theodór býr í
Reykjavík, lauk meist-
araprófi í lögfræði frá HÍ
og starfar hjá borgarlög-
manni.
Maki: Elva Björk Trausta-
dóttir, f. 1990, matvæla-
og næringafr. hjá Esju.
Synir: Hjörvar Breki, f.
2014, og Kjartan Trausti,
f. 2016.
Foreldrar: Kjartan Stein-
arsson, f. 1964, og Guð-
björg Theodórsdóttir, f.
1966.
Theodór
Kjartansson
Arndís Vilhjálmsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í sálfræði við sál-
fræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin
ber heitið: Tekjuójöfnuður í hverfa-
samfélögum og sálræn streita ung-
linga: Þýðisgrunduð rannsókn meðal
íslenskra unglinga á árunum 2006 til
2016. (Community income inequality
and adolescent emotional distress: A
population based study of Icelandic
adolescents from 2006 to 2016).
Umsjónarkennari og leiðbeinandi
var Ragna Benedikta Garðarsdóttir,
dósent við Háskóla Íslands, og Jón
Gunnar Bernburg, prófessor við
Háskóla Íslands.
Meginmarkmið rannsóknarverkefn-
isins var að kanna tengsl tekjuójafn-
aðar og félagsauðs innan íslenskra
skólahverfa við kvíða og þunglyndi
unglinga yfir tímabilið 2006 til 2016.
Í heild sinni hefur verkefnið lagt til
fræðilegrar þekkingar á því hvernig
tekjuójöfnuður tengist einkennum
kvíða og þunglyndis unglinga. Nið-
urstöður verkefnisins benda til þess
að þrátt fyrir að félagsauður dragi úr
einkennum
kvíða og þung-
lyndis meðal
unglinga, út-
skýri hnignun
hans ekki tengsl
tekjuójafnaðar
við andlega
heilsu. Nið-
urstöður sýndu
einnig að þótt tekjuójöfnuður hefði
tengsl við kvíða allra unglinga, án til-
lits til efnahagslegrar stöðu þeirra, var
sem tekjuójöfnuður hefði einungis
tengsl við þunglyndi unglinga frá fá-
tækari heimilum. Að lokum benda nið-
urstöður til þess að eftir því sem dreg-
ur úr tekjuójöfnuði innan hverfa yfir
tíma, dragi úr einkennum kvíða meðal
unglinga um allt að 37%. Í ljósi auk-
innar umræðu um versnandi geðheilsu
unglinga, gæti handhöfum fram-
kvæmdavaldsins reynst erfitt að líta
fram hjá niðurstöðum þessa verkefnis
þegar þeir taka stefnumiðaðar ákvarð-
anir um skipulag velferðar í íslensku
samfélagi.
Arndís Vilhjálmsdóttir
Arndís Vilhjálmsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1980, en uppalin og búsett á Sel-
tjarnarnesi. Arndís lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2005 og
M.Sc. prófi í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands árið 2010. Arndís hefur
kennt um árabil, bæði við viðskiptafræðideild og sálfræðideild Háskóla Íslands. Í
dag starfar Arndís sem sérfræðingur í úrtaksrannsóknum á vinnumarkaði hjá
Hagstofu Íslands og sem aðjunkt við sálfræðideild Háskóla Íslands. Foreldrar
Arndísar eru Áslaug Sverrisdóttir sagnfræðingur og Vilhjálmur Lúðvíksson
efnaverkfræðingur. Synir hennar eru Vilhjálmur Karl Hannesson 13 ára og Há-
kon Sverrir Hannesson 11 ára.
Doktor
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón