Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.08.2018, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. ÁGÚST 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það gæti verið gott ræða málin við vin í dag. Gefðu þér tíma til þess því vináttan skiptir þig miklu máli. Komdu til dyranna eins og þú ert klædd/ur. 20. apríl - 20. maí  Naut Það gefur lífinu lit að upplifa eitthvað nýtt og spennandi. Gættu þess að sækja mál þitt ekki of fast því þá getur allt farið úr bönd- unum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gættu þess að segja ekkert það sem þú kannt að iðrast seinna meir. Vertu opin/n fyrir því að breyta til ef það tækifæri býðst en skoðaðu málið frá öllum hliðum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú er ekki verri tími en hver annar til þess að fara í gegnum fjármálin frá a til ö. Not- aðu daginn til að hugsa um hvert þú ætlar að fara í næsta fríi. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú kannt að þurfa að bregða þér af bæ með litlum fyrirvara. Þú ættir að stefna að því að slappa af næstu daga, keyrslan hefur verið fullmikil síðustu daga. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þig langar til að skapa eitthvað. Reyndu að ná heildarsýn til þess að þú getir vegið og metið aðstæður. Farðu þér samt hægt og brjóttu málin til mergjar áður en þú ákveður nokkuð. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hyggst huga að fjármálum þínum næstu daga. Fáðu útrás fyrir drauma þína í dagbókinni. Slepptu tökunum á reiðinni sem kraumar í þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vertu þolinmóður við einhvern sem kann að fara í taugarnar á þér. Láttu hverjum degi nægja sína þjáningu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er tímabært að láta reyna á sköpunargáfuna. Ef maður gefur ímyndunar- aflinu lausan tauminn nógu lengi verður allt skemmtilegra. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að gefa þér tíma til þess að styrkja þau tengsl við aðra sem eru þér ein- hvers virði. Þú undrast viðbrögð fjölskyldunnar við ákvörðun sem þú hefur nýverið tekið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Spenna gærdagsins hefur breyst í skarpa einbeitingu. Þú lætur þér ekkert fyrir brjósti brenna. Þú rennir hýru auga til nýs náms sem er í boði. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú átt erfitt með að einbeita þér að hlutunum og dettur auðveldlega í dagdrauma. Taktu þér frí fljótlega án þess að blikna eða blána. Áþriðjudaginn sagðist SigurlínHermannsdóttir halda að það væri farið að hausta og orti „Haust“ , – þetta fallega og myndríka ljóð und- ir dróttkvæðum hætti: Haust – og vindar hastir, hokin tré í roki, regn í miklu magni, myrkur eflir styrkinn. Fellur snjór í fjöllum, flatir litum glata. Gestir þeir er gistu gjarnan eru farnir. Haust – og húmið sest að, húsljós skert með kertum. Á stjörnur aftur stirnir ei stansi ljósadansinn. Blóðrauð skreyta blöðin, börðin litar jörðin. Mild þá gefur moldin margvíslegar bjargir. Fyrir réttri viku birtust hér í Vísnahorni vísur eftir Helga R. Ein- arsson um bassann og tenórinn. Nú hefur hann fengið ábendingar um að það sé ljótt að skilja útundan og því urðu þessar til um altinn og sópr- aninn. – „Alt er í heiminum hverf- ull“: Altröddin forláta fögur freistar, sem áfengur lögur. En af innsæi, greind og ástúð í reynd ei fara neinar sögur. Síðan kemur „Sjálfhverfi sópr- aninn“: Fram galdur fær söngurinn seitt og sópran er þar nr. 1 að eigin áliti og hyggjuviti. Enginn þessu fær breytt. Enn sendi hann limru þar sem stjórnandinn hafði orðið út undan: Stjórnandinn staðfastur er og stundum á æfingum þver. Er örmunum sveiflar og andlitið geiflar, sem haninn ’ann hreykir sér. Sigurjóna Björgvinsdóttir yrkir á Boðnarmiði: Hún Lára var lasin og þreytt og langaði ekki í neitt, svo hitti hún Lalla, þann hörmungartralla, á örskoti allt var þá breytt. Blæbrigði tungunnar eru ótelj- andi og – „nýyrði skal vanda“ segir Ármann Þorgrímsson: Vitleysum fyrir ég vægðar mér bið, vanhugsuð nýyrði riðlast um bekki. Kulnun í eldfjöllum kannast ég við en kulnun í mannfólki hugnast mér ekki. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það haustar og kulnun í mannfólkinu „ÞRÍFUR ÖLL GÓLF Á UNDIR 12 SEKÚNDUM.“ „VILTU FÁ LEIÐBEININGARNAR?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vilja vera hvar sem hún er. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ LÍSA SÉ KÆRASTAN MÍN, GRETTIR! ÞÚ VEIST HVAÐ ÞETTA ÞÝÐIR, ER ÞAÐ EKKI? ÉG ER MEÐ DEIT Á GAMLÁRSKVÖLD! RÓLEGUR, GÆÐINGUR ÞÚ, HERRA MINN, ERT MENNINGARSNAUÐUR OG ILLA ÞEFJANDI VILLIMAÐUR! HEFURÐU EINHVERN TÍMA HEYRT EINHVERN SEGJA SVONA UM MIG? TJA, ÉG MINNIST ÞESS EKKI AÐ HAFA HEYRT NEINN KALLA ÞIG HERRA! Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður (Jóh: 15.12) VEIÐIHNÍFAR Í ÚRVALI VERÐ FRÁ 3 475 -. . Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Ný vefvers lun brynja.i s Víkverji dagsins verður að við-urkenna að hann hefur verið lat- ur við að sækja viðburði Menning- arnætur síðustu árin eftir að hafa verið nokkuð duglegur við þá iðju um árabil. x x x Nú var það veðrið sem dró skrifaraút í Strætó og niður í bæ. Farið var á þrenna tónleika með fimm hljómsveitum á tæplega þriggja tíma rápi um Kvosina auk þess sem hraðspólað var yfir sýninguna Ekki verður lagt mat á sýninguna en allir tónleikarnir voru góðir eða að minnsta kosti áhugaverðir. x x x Þórshöfn í Færeyjum var svokall-að gestasveitarfélag Menning- arnætur að þessu sinni. Sendi bær- inn nokkra listamenn sem fulltrúa sína í hátíðinni. Víkverji fylgdist meðal annars með tónlistarmann- inum Heiðriki á Heygum sem fram kom með hljómsveit í ráðhúsinu. Það var toppurinn á stuttri menning- arnæturþátttöku Víkverja að þessu sinni. Heiðrikur söng meðal annars lög sem hann sagðist hafa samið þegar hann bjó í Reykjavík um þriggja ára skeið. Víkverji hefur ver- ið aðdáandi færeyskrar tónlistar, al- veg frá því hann fór um eyjarnar fyr- ir um áratug og komst í kynni við íbúa. Það sýnir þó hvað hann fylgist vel með í Færeyjum, eða hitt þó heldur, að hann hefur aldrei heyrt neitt eftir þennan frábæra tónlistar- mann. Heiðrikur er allavega góð við- bót við flóru frábærs tónlistarfólks Færeyinga, hvenær svo sem hann hefur fyrst látið til sín taka á sviðinu. x x x Víkverji er margfaldur í roðinueins og sést á því að hann naut þess að fara á Bessastaði á sama tíma og skoða húsakynni forseta- embættisins. Fjöldi fólks var þar og forsetahjónin tóku á móti öllum með handabandi. Fólkið hafði greinilega mikla ánægju af því að fá að rölta um vistarverur sem yfirleitt eru aðeins fyrir frammámenn og opinbera gesti. Gera mætti meira af því að opna almenningi leið inn í opinberar byggingar með sama hætti. Nefna mætti stjórnarráðið og ráðhúsið. vikverji@mbl.is Víkverji

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.