Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 1. Á G Ú S T 2 0 1 8 Stofnað 1913  195. tölublað  106. árgangur  ÆVAR ÞÓR MEÐ ÞRJÁR NÝJAR BÆKUR SÖLVI SAXÓFÓNLEIKARI BÍLL Á 45 MILLJÓNIR KRÓNA TÓNLEIKAR 31 BÍLAR 16 SÍÐURRITRAÐIR 30 Lísbet Sigurðardóttir lisbet@mbl.is „Tölurnar sem voru kynntar í dag sýna ótvírætt að meðal þeirra sem neyta fíkniefna í æð hefur algengi sýkingarinnar lækkað verulega á undanförnum tveimur árum. Það er lækkun um 72%, sem er meira en við gátum gert okkur vonir um á svo skömmum tíma,“ segir Magnús Gottfreðsson, prófessor í læknis- fræði við Háskóla Íslands. Lifrarbólga C er til umræðu á árs- fundi norrænna smitsjúkdómalækna og sýklafræðinga sem hér er hald- inn. Magnús segir að tölurnar gefi vísbendingar um mögulegan árang- ur átaksverkefnis sem hér hefur ver- ið unnið að frá árinu 2016. Sigurður Ólafsson, meltingarlæknir og ábyrgðarmaður átaksins, segir að á þessu og síðasta ári hafi um 700 ein- staklingar verið meðhöndlaðir og með því náðst til um 90% þeirra sem eru smitaðir. Sigurður bendir á að Ísland sé leiðandi í lækningum á lifrarbólgu C á heimsvísu. Alþjóðaheilbrigðis- stofnunin stefnir að því að útrýma lifrarbólgu C sem meiriháttar heil- brigðisvá fyrir 2030. Vonir standa til þess að Íslendingar nái því takmarki 10 árum fyrr. „Við höfum möguleika á því, eins og málin standa núna, að verða fyrst þjóða til að ná þessu tak- marki,“ segir Sigurður. Sýkingar minnka um 72%  Sameiginlegt meðferðarátak til að útrýma lifrarbólgu C skilar góðum árangri  Ísland gæti orðið fyrst þjóða til að ná markmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar MHafa náð til um 90% »6 Sameiginlegt átak » SÁÁ og Landspítalinn standa saman að átaki gegn lifrarbólgu C. » Alþjóðlega lyfjafyrirtækið Gilead gefur lyfið Harvoni til meðhöndlunar allra smitaðra einstaklinga hér í tengslum við faraldsfræðilega rannsókn. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ólíkt hlutskipti bíður frænknanna Örnu Dísar Ólafsdóttur, sem útskrif- aðist með græna húfu frá Fjölbraut í Breiðholti, og Birtu Mjallar Antons- dóttur, sem útskrifaðist með stúd- entshúfu frá Menntaskólanum við Sund sömu helgina. „Það voru blendnar tilfinningar, gleði og sorg sem bærðist um í brjósti mínu við útskrift dóttur minnar Örnu Dísar þegar ég horfði yfir hópinn og gerði mér grein fyrir því að ekkert framhald yrði á framhaldsnámi dótt- ur minnar og lítið sem ekkert í boði á vinnumarkaðnum,“ segir Unnur Helga Óttarsdóttir, móðir þroska- hamlaðrar stúlku. Um 100 þroskahömluð ungmenni komast hvorki í nám né vinnu að lok- inni útskrift af starfsbraut og margir foreldrar eru útbrunnir að sögn for- manns Þroskahjálpar, Bryndísar Snæbjörnsdóttur, sem segir að nú sé mælirinn fullur og ungmennin og for- eldrar þeirra hafi fengið nóg af úr- ræðaleysinu. Hún segir þroskahaml- aða sem geti verið einir heima á daginn einangrast og hætta sé á að þeir taki upp óæskilega hegðun. „Arna Dís er heima og hangir í tölvunni í stað þess að vera með okk- ur hinum í samfélaginu, eldhress og dugleg,“ segir Unnur móðir hennar. »11 Engin úr- ræði og sit- ur ein heima  Gleði og sorg við útskrift  Einangrun Útskrift Arna Dís Ólafsdóttir og Birta Mjöll Antonsdóttir. Rétt er fyrir fólk að taka aftur fram hlífðarfatnaðinn sem fengið hefur að vera inni í skáp síðustu vikur því spáð er skúrum eða rigningu næstu daga. Reykvíkingar og gestir borgarinnar fengu í gær forsmekkinn af því sem koma skal því talsvert rigndi í höfuðborginni. Eftir nokkra skúradaga er útlit fyrir að það fari að rigna á laugardagskvöldið og spáð er stífri austan- og suðaustanátt með talsverðri rigningu sunnanlands á sunnudag. Regnfatnaður kemur í góðar þarfir næstu daga Morgunblaðið/Eggert  Talið er að um 2,3 milljónir manna hafi flúið frá Venesúela á síðustu fjórum árum vegna efnahagskreppu. Nýjar spár benda til þess að verð- bólga verði millj- ón prósent í lok þessa árs. Sonia Petros, íslensk kona af ven- esúelskum uppruna, segir Nicolás Maduro forseta verri en forvera hans, Hugo Chávez, en hún sendir peninga til fjölskyldu sinnar í Vene- súela í hverjum mánuði. »6 & 17 Milljónir flúið land Kreppa Nicolás Maduro forseti.  Svandís Svavarsdóttir heil- brigðisráðherra segir fjármagn ekki vera fyrir hendi til þess að gera samninga um þjónustu við Klíníkina eða önnur einkarekin heilbrigðisfyrirtæki. Ummælin koma eftir að fjármála- ráðherra og fyrrverandi alþingis- maður gerðu athugasemd við að fjármunum Sjúkratrygginga væri varið í óþarflega dýra mjaðma- aðgerð erlendis vegna þess hve bið- listi væri langur þrátt fyrir að sömu aðgerð hefði verið hægt að fram- kvæma fyrir minna fé í Klíníkinni eða á annarri einkarekinni stofnun. Svandís segist vinna að öflugri forgangsröðun ásamt þeim stofn- unum sem hljóta fjármagn frá heil- brigðisráðuneytinu til þess að hinir verst settu þurfi ekki að leita í dýr- ari þjónustu með almannafé vegna óralangs biðtíma. »4 Unnið að öflugri forgangsröðun Morgunblaðið/Hari Heilbrigðisráðherra Svandís segist vinna að öflugri forgangsröðun.  Borgarritari og sviðsstjórar vel- ferðar-, skóla- og frístunda-, íþrótta- og tómstunda- og menning- ar- og ferðamálasviðs Reykjavíkur- borgar eru launahæstu embættis- menn borgarinnar að því er fram kemur í svari kjaranefndar Reykja- víkurborgar við fyrirspurn Morgunblaðsins. Alls heyra 58 emb- ættismenn borgarinnar undir kjaranefnd, en launakjör þeirra eru frá um 950.000 krónur til um 1.500.000 krónur. Kjaranefnd skal fylgjast með ákvörðunum kjararáðs ríkisins sem nú hefur verið lagt niður. Ekki er þó bein tengingu milli launa ákveð- inna embættismanna ríkisins og ákvarðana kjararáðs um laun æðstu stjórnenda Reykjavíkur- borgar, að því er fram kemur í gögnum kjaranefndar frá 2017. »4 Hæstu launin eru um 1,5 milljónir á mánuði Morgunblaðið/Ómar Ráðhús Borgarritari er launahæsti emb- ættismaður Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.