Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 fyrir öll tölvurými og gagnaver Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræsti- kerfi SVIÐSLJÓS Lísbet Sigurðardóttir lisbet@mbl.is Algengi lifrarbólgu C á Íslandi í einstökum hópum hefur minnkað um 72% á undanförnum tveimur árum, sem er töluvert meira en sérfræðingar gerðu sér vonir um á svo skömmum tíma. Þetta segir Magnús Gottfreðs- son, prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur í smitsjúkdómum. Lifrabólga C var til umræðu á ársfundi norrænna smitsjúkdómalækna og sýklafræð- inga sem stendur yfir þessa dag- ana í Hörpu. Á fundinum hafa m.a. verið kynntar niðurstöður íslensks meðferðarátaks gegn lifrarbólgu C. „Það er kannski of snemmt að gefa upp einhverjar endanlegar niðurstöður. En við erum með vís- bendingar,“ segir Magnús. Aðgengi að lyfjunum verði áfram tryggt Magnús segir að tölurnar gefi ótvíræðar vísbendingar um breyt- ingar og mögulegan árangur í kjölfar átaksverkefnisins hér á landi. „Meðal þeirra sem neyta fíkniefna í æð hefur algengi sýk- ingarinnar í þeim hópi minnkað verulega á undanförnum tveimur árum, það er minnkun um 72%, sem er meira en við gátum gert okkur vonir um á svo skömmum tíma. Það sama virðist vera uppi á teningnum meðal fanga, en tíðni lifrarbólguveirusmits meðal fanga virðist líka hafa lækkað samsvar- andi. Þannig að það er gríðarlega jákvætt. En við munum halda áfram að meðhöndla fólk með lifr- arbólgu og það er mjög mikilvægt núna á þessum tímapunkti að halda bæði góðri árvekni meðal al- mennings, meðal lækna og halda áfram skimun fyrir sjúkdóminum, blóðpróf séu gerð þegar við á og að aðgengi að þessum lyfjum verði áfram tryggt.“ Þá segir Sigurður Ólafsson, meltingarlæknir og ábyrgðarmað- ur meðferðarátaksins, að ástæða sé til þess að hvetja þá sem eru smitaðir af lifrarbólgu C, en hafa ekki enn leitað til læknis, til þess að leita sér aðstoðar á meðan tök séu á þeirri öflugu meðferð sem nú býðst. „Við höfum nú þegar, á þessu síðasta ári átaksins, með- höndlað hátt í 700 einstaklinga og við áætlum að við höfum náð til um allt að 90% þeirra sem eru smit- aðir. Þannig að það eru einhverjir eftir sem eiga eftir að fá meðferð.“ Leiðandi á heimsvísu Sigurður bendir jafnframt á að Ísland sé leiðandi í lækningum á lifrarbólgu C á heimsvísu. „Mark- miðið er að útrýma lifrarbólgu C sem meiriháttar heilbrigðisvá. Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, hefur sett það takmark fyrir þjóðir heims að ná þessu markmiði árið 2030. Það þýðir 80% lækkun á ný- gengi sjúkdómsins. En með þessu mikla átaki sem hefur verið í gangi hérna á Íslandi þá standa vonir til þess að við náum þessu takmarki WHO miklu fyrr, jafnvel allt að 10 árum fyrr. Við höfum möguleika á því, eins og málin standa núna, að verða fyrst þjóða til að ná þessu takmarki, en reynslan verður að skera úr um það hvort að það tekst,“ segir Sigurður. Einstaklingar í áhættuhópum séu meðvitaðir Margvíslegar áskoranir eru enn fyrir hendi í málaflokknum að sögn Magnúsar. Einna helst sé áskorun að ná til sjúklinga sem ekki hafa verið greindir og jafnframt að heil- brigðiskerfið nái til þeirra sjúk- linga sem hafi verið greindir en ekki fengið viðeigandi meðferð. „Það er líka mikilvægt að þeir sem eru í áhættuhópum séu með- vitaðir um þá áhættu og láti prófa sig. Þar má kannski nefna þá sem einhvern tímann hafa fiktað við fíkniefni, það þarf ekki nema eitt skipti til. Annar hópur er karl- menn sem hafa haft mök við aðra karlmenn en skilgreina sig samt ekki sem samkynhneigða. Það er mikilvægt að þeir láti prófa sig. Sömuleiðis er einhver hópur þeirra sem fengu blóð fyrir alllöngu og mögulega hafa ekki látið prófa sig. Það er mælt með því hjá sóttvarn- arlækni að þeir einstaklingar mæti í próf.“ Þó svo að baráttunni gegn sjúk- dóminum miði vel segir Magnús að aðstæður í heilbrigðiskerfinu þurfi að vera fullnægjandi svo framþró- unin haldi áfram. „Við þurfum að ná til þeirra sem þurfa á greiningu og meðferð að halda. En svo er líka ljóst að þetta eru lyf sem þurfa að vera áfram aðgengileg og heilbrigðiskerfið þarf að vera bært og nægjanlega styrkt til þess að geta haldið þessu verkefni áfram.“ Hafa náð til um 90% smitaðra  700 meðhöndlaðir vegna lifrarbólgu C hér á landi á síðastliðnu ári  Ísland getur orðið fyrst þjóða til þess að ná takmarki WHO  Sérfræðingar segja mikilvægt að halda árvekni almennings og lækna Morgunblaðið/Eggert Sérfræðilæknar Sigurður Ólafsson og Magnús Gottfreðsson eru ánægðir með þann árangur sem hefur náðst í bar- áttunni gegn lifrarbólgu C. Þeir telja að Ísland eigi raunhæfan möguleika á að ná takmarki WHO, fyrst þjóða. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is „Ég skil ekki hvað gengur á,“ sagði Sonia Petros, ís- lensk kona af venesúelskum uppruna, um ófremdar- ástandið sem nú ríkir í heimalandi hennar. „Fjöl- skyldan mín skilur það ekki heldur. Það eina sem ég get sagt er að ástandið er hræðilegt.“ „Í gær keypti systir mín tvo lítra af kóki fyrir sex milljónir bólivíana. Síðan fór hún um nóttina og verðið var komið upp í 21 milljón. Ástandið verður klikkaðra með hverjum deginum og verðið hækkar stöðugt.“ Slökkt á rafmagni og vatni „Flestir í fjölskyldunni minni eru farnir frá Vene- súela en faðir minn og tvær systur mínar búa enn í landinu. Ég hef verið að kaupa lyf fyrir föður minn því hann er haldinn kvíða. Það er mjög erfitt að kaupa lyfin í Venesúela en ég sendi þau með vinum mínum sem fljúga þangað. Ég sendi þeim líka peninga í hverjum mánuði, um það bil 300 Bandaríkjadollara í hvert skipti sem þau geta notað á svarta markaðnum. Ég veit ekki hvað ég þarf að senda mikið núna.“ Petros segist síðast hafa komið til Venesúela árið 2014. „Ég var steini lostin þegar ég sá landið. Borgin mín, Maracaibo, hefur alltaf verið besta borgin í Vene- súela. Núna er hún eina borgin sem skortir rafmagn. Það er slökkt á rafmagninu í tólf til fimmtán klst. á hverjum degi. Þegar við erum ekki með rafmagn erum við ekki heldur með vatn.“ Petros segir ástandið í landinu hafa versnað eftir að Hugo Chávez forseti dó árið 2013. „Chávez var ekki sem verstur. Hann var slæmur, en Maduro er verri. Maduro kann ekkert á efnahaginn, hann hefur enga menntun og hann er klikkaður. Hann hugsar bara um sjálfan sig.“ „Hann var ekki endurkjörinn. Enginn kaus hann. Ég hafði örlitla vonarglætu um að hann léti sig hverfa, en nú held ég að hann vilji alltaf sífellt meira af því sem Venesúela á. Við erum með málma, gull, olíu og fjöl- mörg steinefni og hann er í einhverjum viðskiptum með þau við Kína og Rússland. Í sannleika sagt veit ég bara ekki, allt gæti gerst.“ »17 Maduro verri en Chávez  Venesúelsk kona á Íslandi segir Nicolás Maduro aðeins vilja nýta sér auðlindir Venesúela í síauknum mæli Venesúela Sonia Petros flutti til Íslands með íslenskum eiginmanni sínum árið 2016. Hún sendir fjölskyldu sinni enn lyf og erlendan gjaldmiðil. Í janúar 2016 undirrituðu SÁÁ og Landspítali samstarfs- samning sín á milli vegna átaks til að útrýma lifrarbólgu C. Alþjóðlega lyfjafyrirtækið Gilead bauðst þá til þess að gefa lyfið Harvoni í nægjanlegu magni til þess að hægt væri að meðhöndla alla smitaða einstaklinga hér á landi í tengslum við sérstaka faraldsfræðilega rannsókn þar sem árangur átaksins til lengri tíma var kannaður. Lifrarbólga C er bólgusjúkdómur í lifur af völdum smit- andi veiru og smitast fyrst og fremst við blóðblöndun. Algengustu smitleiðirnar eru því þegar sýkt blóð berst frá einum ein- staklingi til annars, t.d. þegar fíkniefnaneytendur deila óhreinum spraut- unálum og öðrum áhöldum sem sýkt blóð hefur komist, en sjúkdómurinn getur einnig smitast við kynmök eða blóðhlutagjöf. Sameiginlegt meðferðarátak LIFRARBÓLGA C Neyðarlínu barst símtal um miðjan dag í gær frá manni sem sagðist vera með skotvopn og stuðbyssu og ætla að skaða fólk. Sagðist hann vera við Varmárskóla í Mos- fellsbæ. Lögreglan brást strax við og voru lögreglumenn frá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu og sérsveit ríkislögreglustjóra sendir á vettvang. Talsverður viðbúnaður var hjá lögreglunni. Við nánari at- hugun kom í ljós að sá sem hafði í hótunum var tæplega 14 ára piltur sem áður hefur komið við sögu lögreglu. Lögregla náði fljótlega að stað- setja piltinn og var hann færður á lögreglustöð og í framhaldi komið í hendur barnaverndaryfirvalda. Sagðist vera við skóla og hafði í hótunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.