Morgunblaðið - 21.08.2018, Page 8

Morgunblaðið - 21.08.2018, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is loftljós 2097/30 Hönnuður Gino Sarfatti Takmörkuð útgáfa Verð 265.000,- Bjarni Jónsson rafmagnsverk-fræðingur bendir réttilega á stórgallaða málsvörn Rögnu Árnadóttur um lögleiðingu gerð- ar um orkumarkað.    Ragna var ráð-herra í rík- isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og gerði aldrei, svo vit- að sé, minnstu athugasemd við verstu framgöngu hennar, og var þó af mörgu að taka.    Í viðurkenningu fyrir það fékkRagna stöðu aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar án auglýsingar.    Bjarni bendir á það augljósa, aðþað stefnir í að ríkisstjórnin nú- verandi brjóti stjórnarskrá landsins með lögleiðingu á Evrópugerð um Þriðja orkumarkað og stofni til valds yfir innlendum málum sem er utan og ofan við framkvæmda- og dóms- vald landsins.    Bjarni lýkur athugasemdum sín-um svo: „Það stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi Rögnu Árnadóttur í téðri Úlfljótsgrein.    Hún hefur kosið að fjalla meðótrúlega yfirborðslegum hætti um stórmál á sviði íslenzks fullveldis og á sviði orkumála með þeim afleið- ingum, að hún hefur villt um fyrir fólki, sem ekki hefur lagt sig eftir kjarna þessa máls eftir öðrum leið- um.    Þetta er í anda málflutnings iðn-aðarráðuneytisins um þetta efni og lögfræðilega álitsgerð fyrir ráðu- neytið, sem fyrrverandi fram- kvæmdastjóri hjá ESA var fenginn til að semja.“ Ragna Árnadóttir Icesave, taka tvö STAKSTEINAR Bjarni Jónsson Veður víða um heim 20.8., kl. 18.00 Reykjavík 10 rigning Bolungarvík 10 alskýjað Akureyri 14 skýjað Nuuk 9 skýjað Þórshöfn 12 léttskýjað Ósló 20 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 skýjað Stokkhólmur 17 alskýjað Helsinki 14 rigning Lúxemborg 23 skýjað Brussel 22 léttskýjað Dublin 19 skýjað Glasgow 17 skýjað London 23 léttskýjað París 24 alskýjað Amsterdam 21 léttskýjað Hamborg 21 skýjað Berlín 23 skýjað Vín 33 léttskýjað Moskva 21 heiðskírt Algarve 31 léttskýjað Madríd 33 heiðskírt Barcelona 29 léttskýjað Mallorca 32 léttskýjað Róm 24 þrumuveður Aþena 29 léttskýjað Winnipeg 18 léttskýjað Montreal 23 léttskýjað New York 21 alskýjað Chicago 23 þoka Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 21. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:38 21:25 ÍSAFJÖRÐUR 5:32 21:41 SIGLUFJÖRÐUR 5:14 21:24 DJÚPIVOGUR 5:05 20:57 „Reynslan hefur verið góð á þessum tíma, við höfum ekki fengið kvart- anir og umgengnin hefur verið góð,“ segir Einar Pálsson, forstöðumaður þjónustusviðs Vegagerðarinnar í samtali við Morgunblaðið. Vegagerðin hefur verið að setja upp áningarstaði fyrir ferðalanga víða um landið, en á fimmtán þeirra hefur var sett upp salernisaðstaða, sem tilraunaverkefni vorið 2017. Um er að ræða bráðabirgðasalernisað- stöðu, með svokölluðum „þurrsal- ernum“ en það eru kamrar sem þarfnast tæmingar. Þau eru þrifin daglega og tæmd vikulega að sögn Einars, sem finnst að dregið hafi úr umræðunni um skort á aðstöðu og slæma umgengni við þjóðvegina eftir að aðstaðan, sem er gjaldfrjáls, var sett upp. Salernisaðstöðu Vegagerð- arinnar, sem er opin frá í maí fram í október, er að finna á eftirtöldum stöðum: Við Laufskálavörðu, Djúpá, Jökla- sel, Þvottá, Fossá, Jökulsá á Dal, Norðausturveg, Jökulsá á Fjöllum (Grímsstaði), Ljósavatn, Kirkjuból, Hvannadalsá, Hvítanes, Melanes (við flugvöll), Reykjadalsá og Katt- arhrygg við Norðurá. Von er á sal- ernisaðstöðu Vegagerðarinnar á fleiri stöðum eftir um það bil þrjú ár. ernayr@mbl.is Reynslan góð af salernisaðstöðu  Tilraunaverkefni Vegagerðarinnar með salernisaðstöðu á áningarstöðum Ljósmynd/Vegagerðin Innlit Umgengni hefur verið prýði- leg og engar kvartanir hafa borist. Lögreglan í Vest- mannaeyjum birti fjölda ljós- mynda á Face- book-síðu sinni síðasta föstudag af óskilamunum frá Þjóðhátíð um verslunarmanna- helgina. „Þetta er helst fatnaður, töskur, einstaka svefnpokar auk síma og veskja sem verða eftir,“ segir Guðmundur Hálf- dánarson hjá lögreglunni í Vest- mannaeyjum um þá óskilamuni sem lögreglan í Eyjum fær til sín eftir að Þjóðhátíð lýkur. Öllum þeim óskila- munum sem finnast í Herjólfsdal eftir Þjóðhátíð er komið til lögregl- unnar þar. Aðspurður segir Guð- mundur magn óskilamuna í ár vera svipað og eftir Þjóðhátíð í fyrra. „Það er alltaf eitthvað sem ekki er vitjað en það er alveg furðumikið sem er sótt,“ segir Guðmundur, en lögreglan býðst einnig til að senda munina með pósti til þeirra eigenda sem ekki búa í Vestmannaeyjum. Óskilamunir eru geymdir hjá lög- reglu í eitt ár og einn dag en eftir það er hlutunum hent, segir Guð- mundur aðspurður. axel@mbl.is Í óskilum Skópar í geymslu lögreglu. Átt þú skó í Eyjum?  Fjöldi óskilamuna eftir Þjóðhátíð í ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.