Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Tilkynnt var í gær að tvö íslensk fyrirtæki, Basalt arkitektar og Gagarín, hlytu Red Dot-verðlaunin fyrir uppsetningu sína á Lava eld- fjalla- og jarðskjálftamiðstöðinni á Hvolsvelli. Red Dot-verðlaunin eru al- þjóðleg hönnunarverðlaun sem veitt eru af fyrirtækinu Design Zentrum í Norðurrín-Vestfalíu í Þýskalandi. Verðlaunin eru meðal hinna virtustu á heimsvísu og hafa verið veitt frá árinu 1955. „Verðlaunin eru afar mikilvæg viðurkenning fyrir okkur og sýna glöggt hve samkeppnishæf við er- um í hönnun á alþjóðavísu,“ sagði Marcos Zotes frá Basalt arkitekt- um í fréttatilkynningu. „Árangurs- ríkt þverfaglegt samstarf er mjög mikilvægur þáttur þegar tekist er á við flókin hönnunarverkefni eins og í Lava Eldfjallamiðstöð.“ Eldfjallamiðstöðin er gagnvirk upplifunarmiðstöð sem á að fræða gesti um eldvirkni og jarðskorpu- hreyfingar á Íslandi. Miðstöðin var opnuð sumarið 2017 og var byggingin hönnuð af Basalt arki- tektum en sýningarhönnunin var í höndum þeirra og Gagarín. Á þessu ári hefur sýningin þegar hlotið ýmis önnur verðlaun, þar á meðal silfurverðlaun evrópsku hönnunarverðlaunanna. Bárður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Lava, segir viðurkenningarnar sýna svart á hvítu hve góð sýn- ingin sé. Hraun Lava hefur þegar hlotið mörg verðlaun. Lava Centre fær Red Dot-verðlaun  „Mikilvæg viðurkenning,“ segir Zotes Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég byrja daginn á því að fara í sturtu og svo tek ég eina róandi,“ sagði foreldri einstaklings með þroskahömlun sem bíður eftir við- eigandi úrræði að loknu diplóm- anámi í framhaldsskóla. Þessi orð lét foreldrið falla í samtalið við for- mann Þroska- hjálpar um álagið sem fylgir því þegar einstak- lingar með þroskahömlum komast hvorki á vinnumarkað né í áframhaldandi nám. Bryndís Snæ- björnsdóttir, formaður Þroskahjálp- ar, segir að viðvarandi úrræðaleysi fyrir fólk með þroskahömlun að loknu framhaldsskólanámi sé ekki nýtt af nálinni. Nú sé hins vegar mælirinn fullur hjá aðstandendum sem vita að fenginni reynslu að ekk- ert breytist nema með baráttu. „Nú verða yfirvöld að vakna og bæta úr ástandinu. Þroskahjálp stendur þétt að baki einstaklingum með þroskahömlun og aðstandend- um þeirra,“ segir Bryndís og bætir við að foreldar hafi verið í sambandi við Þroskahjálp áður en félagið fór í sumarfrí og beðið um hjálp. Þá hafi kviknað hugmynd um að halda stö- ðufund og kynna niðurstöður hans. Þroskahamlaðir ólíkir „Sögurnar eru ólíkar. Það er nú þannig að fólk með þroskahömlun er með ólíkar þarfir og er ólíkara inn- byrðis en gengur og gerist meðal fólks. Það var sammerkt með fund- armönnum að þau voru langþreytt á að fá ekki svör. Þau upplifðu að kerf- in töluðu ekki saman þannig að að- ilar bera ábyrgð á málflokknum og þeir sem bera ábyrgð gagnvart menntun og atvinnu vísa hver á ann- an. Enginn taki af skarið né haldi ut- an um málefni þessara ungmenna. Bryndís segir réttindamálin tvíþætt. „Aðalmálið er réttindi fólks með þroskahömlun, að þau fái að taka þátt í samfélaginu og fái að mennta sig. Hitt er hlið foreldranna. Það lendir á þeim heilmikil umönnun og utanumhald vegna þess að sumir geta ekki verið einir heima og þá þurfa foreldrar að taka sér frí úr vinnu. Þau ungmenni sem geta verið heima geta oftast verið það án þess að fara sér að voða en þau einangrast algjörlega. Geta tamið sér óæskilega hegðun og farið meira og meira inn í sig,“ segir Bryndís sem segir að fólk með þroskahömlun læri mjög mikið á aldrinum 20 til 30 ára. Það sé mjög mikilvægt að þau fái stuðning til þess að fóta sig í lífinu og það fari ekki fram á meðan þau séu ein heima og taki ekki þátt í neinu. „Það þarf að mæta ungmennunum þannig að þau fái notið sín og geti tekið þátt í lífinu. Foreldrar þeirra eru margir útbrunnir og þroska- hamlaðir eiga rétt eins og aðrir að foreldrar þeirra séu foreldrar en ekki þjónustuaðilar,“ segir Bryndís. Hún bendir á að háskólanám sé ekki lausn fyrir alla og vill sjá fleiri tæki- færi fyrir þroskahamlaða. „Þroskaskert ungmenni eru mörg hver listræn og langar að fara í leik- listarnám, dans og myndlist. Þau hafa ekki möguleika á því að komast í slíkt nám þar sem stúdentsprófs er krafist. Mörg ungmennanna hafa farið í hússtjórnarskóla en nú er þess krafist að nemendur hafi a.m.k. einn eða tvo áfanga í stærðfræði. Sum þeirra hafa ekki þá færni til en þau hafa fína færni til þess að taka þátt í hússtjórnarnámi. Það virðist sem fleiri dyr lokist en opnist eins og staðan er í dag.“ Um hundrað sem vantar úrræði Bryndís segir að Þroskahjálp safni ekki persónuupplýsingum og því sé ekki vitað hversu stór hópur þarf úrræði en telur að það geti verið í kringum 100 manns. Hún segir þroskahömluð ungmenni ekki sjúk- linga og það fylgi því gríðarlegt álag að fá ekki viðeigandi úrræði og svör. 29. ágúst eru ungmenni sem eru á starfsbrautum framhaldsskóla og þau sem hafa nýlega útskrifast ásamt foreldrum eru hvött til að mæta á fund hjá Landssamtökunum Þroskahjálp til þess að greina vand- an betur og leita lausna. Fleiri dyr lokast fyrir þroskahömluð ungmenni  Listræn ungmenni sem langar í listnám  Foreldrar bug- aðir af álagi  Meiri hætta á einangrun og óæskilegri hegðun Ljósmynd/Unnur Helga Óttarsdóttir Tímamót Anna Dís Ólafsdóttir og Glódís Erla Ólafsdóttir sem útskrifuðust af starfsnámsbraut FB fá ekki sömu tækifæri og jafnaldrar við námslok. Bryndís Snæbjörnsdóttir Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Nanni buxur Kr. 6.400 Str. S-XXL 7/8 lengd Litir: svart, dökkblátt, grátt a Auðveldara að þrífa penslana a Gufar ekki upp a Má margnota sama löginn a Notendur anda ekki að sér eiturefnum a Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum a UNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn Hágæða umhverfisvæn hreinsivara Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum Jón Pétursson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sig- mundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokks- ins. Jón er fæddur árið 1971 og varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1991. Hann lauk prófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1994, starfaði sem stýri- maður til margra ára og er einn af stofnendum Miðflokksins.Jón Pétursson Ráðinn aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Allt um sjávarútveg Skráðum afbrotum hefur fjölgað í níu flokkum af fjórtán það sem af er ári miðað við meðaltal síðastliðin þrjú ár. Tilkynntum kynferðisbrotum og þjófnaðarmálum hefur fækkað á sama tíma. Afbrotum hefur þó fækkað í flestum brotaflokkum í júlí frá því sem var síðustu mánuði. Þetta og fleira kemur fram í nýrri mánaða- skýrslu um afbrotatölfræði frá Lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að það sem af er ári hafi skráð- um ölvunarakstursbrotum fjölgað um 40% og að fíkniefnaakstursbrotum fjölgað um 59% miðað við meðaltal á sama tímabili síðastliðin þrjú ár. 63% fleiri beiðnir um leit að börnum og ungmennum bárust lögreglunni og skráðum tilvikum þar sem lögreglu- maður var beittur ofbeldi fjölgaði um 66%. Í júlí bárust Lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu 12 tilkynningar um kynferðisbrot og hafa henni því borist um tíu prósent færri tilkynningar um kynferðisbrot það sem af er ári miðað við meðaltal á sama tímabili síðastlið- in þrjú ár. Tilkynningum um þjófnaði hefur einnig fækkað um átta prósent. Meðaltal skráðra hegningarlaga- brota, umferðarlagabrota og tilkynn- inga um nytjastuld á vélknúnum öku- tækjum stendur í stað miðað við fyrri ár. Fækkun í júlí Í heild fækkaði brotum í flestum brotaflokkum, ef miðað er við síðustu sex eða síðustu tólf mánuði á undan. Þar á meðal fækkaði hegningarlaga- brotum úr 795 í júní í 667 í júlí. Einn- ig fækkaði meiriháttar líkamsárás- um úr 21 í júní í 13 í júlí og fíkniefnabrotum úr 207 í í 113 í á sama tíma. Skráðum brotum þar sem ökumað- ur var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgaði úr 163 í 189 í júní. Þetta er því annar mánuðurinn í röð þar sem þessi brot eru flest frá upphafi hjá embættinu. teitur@mbl.is Fíkniefnaakstur eykst um tæp 60%  Fjölgun afbrota í flestum flokkum Morgunblaðið/Golli Stöðin Afbrotum fækkaði í júlí frá því sem var síðustu mánuði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.