Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018
Katrín Lilja Kolbeinsdóttir
katrinlilja1988@gmail.com
Þegar ég var yngri langaðimig að verða læknir einsog pabbi minn, en þaðvar eitthvað þar sem ég
tengdi ekki alveg við. Áhuginn á
grasalækningum kviknaði alveg
óvart og vatt hratt upp á sig á síð-
ustu önninni minni í menntaskóla.
Ég rakst á bók um íslenskar
lækningajurtir heima hjá mér og
varð strax hugfangin af þessum
fræðum. Mér fannst svo undarlegt
að þessi áhugaverði heimur skyldi
ekki hafa verið kynntur mér fyrr
og skildi ekki hvers vegna þetta
var ekki vinsælla.“
Ingeborg hafði verið að kljást
við króníska sýkingu í um hálft ár
og var orðin ónæm fyrir öllum
sýklalyfjum sem hún prófaði. „Ég
fór til grasalæknis og fann um leið
að ég ætti heima í þessu fagi. Eft-
ir að hafa kynnt mér þessi fræði
ágætlega ákvað ég að ég yrði að
læra þetta. Ég þurfti lítið að
hugsa mig um og hef ekki litið til
baka síðan.“
Ingeborg lagði því land undir
fót og hélt til Bretlands. „Ég og
kærasti minn, sem er líka í námi í
London, vorum marga mánuði að
leita að háskólum. Í mínu tilfelli
var alls ekki um margt að velja
þar sem það er í rauninni bara
einn háskóli sem kennir vestrænar
grasalækningar til BS-gráðu sem
er viðurkenndur af National Insti-
tute of Medical Herbalists
(NIMH). Nú stendur hins vegar
til að loka þessari braut þar sem
fjárframlög breska ríkisins til
námsins munu skerðast. Ég mun
sem betur fer ná að útskrifast en
bráðum verður erfitt að fá al-
mennilega menntun í þessari
grein.“
Mörg þúsund ára lækningar
Áhugi Ingeborg á náminu er
greinilegur, enda um aldagamlar
lækningar að ræða. „Vestrænar
grasalækningar eru í rauninni þær
grasalækningar sem hafa alla tíð
verið stundaðar í Evrópu og Norð-
ur-Ameríku og eiga rætur að
rekja mörg þúsund ár aftur í tím-
ann. Í dag er búið að gera rann-
sóknir á alls konar jurtum og nú
er hægt að sanna mikið af því sem
liggur að baki þessari fornu vitn-
eskju með vísindalegum aðferðum.
Í Bretlandi hefur almenningur
mun greiðari aðgang að jurtum til
lækninga sem ekki eru leyfðar til
notkunar á Íslandi.“
Að sögn Ingeborg eru grasa-
lækningar ekki svo ólíkar hefð-
bundnum lækningum þar sem báð-
ar greinar fást við virk efni sem
hafa áhrif á tiltekin kerfi í lík-
amanum. Helsti munurinn sé sá
að í grasalækningum eru virku
efnin í jurtunum ekki einangruð.
Hugmyndafræðin í grasalækn-
ingum er meðal annars sú að meg-
inmarkmiðið sé ekki aðeins að
lækna einkenni sjúkdóms, heldur
styrkja og styðja við líkamskerfin
til að lækna undirliggjandi orsök.
„Að sjálfsögðu helst mataræði í
hendur við þetta og gefa grasa-
læknar oftast lífsstíls- og matar-
ráðleggingar ásamt því að blanda
sérsniðna jurtablöndu fyrir skjól-
stæðinga sína.“
Mismunandi viðhorf
Ingeborg finnur töluverðan
mun milli landa á viðhorfi til
grasalækninga. „Bretland er með
sterka jurtalækningamenningu
sem hefur ekki dvínað jafn mikið
og í mörgum öðrum löndum gegn-
um tíðina. Þvert á móti hefur
áhugi á þeim farið vaxandi. Þær
eru líka mikið stundaðar í Banda-
ríkjunum og víða annars staðar í
Evrópu, en í Skandinavíu hins
vegar virðist hefðin hafa glatast
að einhverju leyti. Grasalækningar
voru notaðar alls staðar í heim-
inum fram að byrjun síðustu aldar
en þá tóku nútímalækningar yfir
og grasalækningar fóru að missa
rödd sína. Í kringum 1970 fóru
þær aftur að vaxa að vinsældum
og í dag sjáum við einhvers konar
jurtalyf í langflestum apótekum.“
Þó svo að notkun jurta til
lækninga hafi minnkað undanfarin
hundrað ár segir Ingeborg það
ekki þýða að virkni þeirra sé eitt-
hvað minni. Að hennar mati felst
vandinn hugsanlega í því að nú-
tímafólk vill auðvelda og skjót-
virka lausn við sínum vanda-
málum. Fæstar jurtir virki hins
vegar þannig.
„Það þarf að sýna meiri þolin-
mæði, en fyrir vikið duga áhrif
þeirra oft lengur og hætta á auka-
verkunum er mun minni. Á Íslandi
eru starfandi örfáir grasalæknar
sem eru með BS-gráðu í faginu og
er eitt jurtaapótek starfrækt á
landinu, sem Kolbrún grasalæknir
rekur. Ég hef starfað þar síðustu
sumur.“
Vaxandi áhugi
Ingeborg segist finna fyrir
greinilegum vaxandi áhuga á
grasalækningum hjá Íslendingum.
„Draumurinn minn er að hefð-
bundnar lækningar og grasalækn-
ingar gætu unnið meira saman.
Oft kemur fólk til grasalæknis
þegar allt annað þrýtur og hefð-
bundnar aðferðir hafa ekki skilað
árangri. Margir sem leita til
grasalæknis eru með langvinna
sjúkdóma en aðrir koma vegna
minniháttar vandamála eins og
flensu og hósta. Grasalækningar
eru fyrir alla og ég hvet fólk til
þess að líta í bakgarðinn hjá sér
því ýmislegt leynist þar. Illgresi
eins og haugarfi, túnfífill og
brenninetla eru svakalega öflugar
jurtir. Ég var til dæmis að reyta
arfa um daginn úti í beði og í
staðinn fyrir að henda arfanum
bjó ég til arfaolíu og arfate. Arfa-
olía hefur reynst mörgum vel við
alls konar húðsjúkdómum, út-
brotum, þurrki og fleiru, og te úr
arfa hentar vel fyrir byrjandi
flensu. Megnið af fólkinu sem
sækir í jurtir er eldra fólk. Ég
hefði gaman af því að kynna yngri
kynslóðinni þessi fræði, því með
aukinni þekkingu getum við lagt
heilsuna meira í eigin hendur og
þurfum ekki alltaf að reiða okkur
á skyndilausnir eins og hefð-
bundin lyf.“
En hvað skyldi vera á döfinni
hjá þessari dugmiklu konu? „Ég á
tvö ár eftir, en það stendur ýmis-
legt til boða eftir að ég lýk þessu
námi. Til dæmis gæti ég vel hugs-
að mér að fara í meistaranám í
einhverju meira sérhæfðu, mögu-
lega næringarfræði. Ég efast um
að ég opni stofu strax, ég verð
ennþá svo ung þegar ég útskrifast
og það er svo margt sem er svo
heillandi við þetta fag sem mig
langar til að dýpka mig í.“
Áhuginn kviknaði alveg óvart
Ingeborg Andersen er 21
árs gömul og stundar
nám í vestrænum grasa-
lækningum við Univers-
ity of Westminster í
London.
Ingeborg „Ég hefði gaman af því að kynna yngri kynslóðinni þessi fræði, því með aukinni þekkingu getum við lagt heilsuna meira í eigin hendur.“
Í blómagarði í Marokkó Ingeborg segir að oft komi fólk til grasalæknis
þegar allt annað þrýtur og hefðbundnar aðferðir hafa ekki skilað árangri.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
Ekki bara jeppar
2013
- 2017
ota, Hyundai, Nissan,
, og fleiri gerðir bíla
ER BÍLLINN ÞINN
ÖRUGGUR
Í UMFERÐINNI?
Varahlutir í...