Morgunblaðið - 21.08.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018
Ármúla 11
108 Reykjavík
Sími 568-1581
ÞÓR FH
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 9:00 - 18:00
Lokað um helgar
Tölvuverslun - Reykjavík: Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Hraðari & hagkvæmari kynslóð af WorkForce
ÝR EPSONWORKFORCE
Helstu kostir:
• Hraðvirk hágæða prentun
Allt að 24 síður á mínútu í svörtu og í lit.
• Prentar, skannar, ljósritar og faxar.
4 tæki í 1 með og prentar beggja megin.
• Miklir tengimöguleikar
Þráðlaust net, WiFi Direct, NFC, USB og venjul. nettenging.
• Stór blekhylki
Hægt að prenta út allt að 5000 blaðsíður með stóru hylki
• Prentun og skönnun beint úr síma
Ókeypis app til að prenta og skanna beint úr síma.
EPSONWORKFORCE PROWF-C5710DW
A4
10.9cm
24
ppm
ISO
1200
Ný kynslóð af þráðlausum EPSONWorkForce fjölnotatækjum
(Prentari/skanni/ljósritun), ný hönnun, hraðari prentun, hagkvæmara blek
og umhverfisvænni umbúðir. A4 4.800 x 1.200 dpi Upplausn.
PrecisionCore prenthaus og 4 stök blekhylki (DURABrite Ultra)
Hægt að tengja með USB, Ethernet/WiFi eða með iPhone/android Appi.
Prentar og skannar báðum megin (Duplex) - Þægilegur snertiskjár
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Talið er að um 2,3 milljónir manna
hafi flúið frá Venesúela á síðustu
fjórum árum vegna efnahagskreppu
sem hefur leitt til mikils skorts á
matvælum og lyfjum í landinu, að
sögn embættismanna Sameinuðu
þjóðanna. Búist er við að landflóttinn
haldi áfram á næstu mánuðum vegna
óstjórnar sósíalista undir forystu
Nicolás Maduros, forseta landsins.
Flestir flóttamannanna segja mat-
vælaskortinn vera helstu ástæðu
landflóttans og um 1,3 milljónir
þeirra þjást af vannæringu. Um 15%
allra barna í Venesúela eru vannærð,
að sögn UNICEF, Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna.
Venesúela býr yfir meiri ónýttum
olíuforða en nokkurt annað land í
heiminum og var eitt sinn auðugasta
ríki Suður-Ameríku. Hugo Chavez
hugðist gera það að draumalandi
sósíalista þegar hann komst til valda
árið 1999, meðal annars með þjóð-
nýtingu fyrirtækja. Chavez naut
góðs af því að Venesúela var fimmti
stærsti olíuútflytjandi heims og olíu-
verðið var hátt í heiminum á valda-
tíma hans. Fjáraustur hans úr sjóð-
um ríkisins jók lýðhylli hans í
góðærinu þótt ljóst væri að ríkið
safnaði miklum skuldum og stefna
hans gæti ekki gengið til lengdar.
Nicolás Maduro tók við forsetaemb-
ættinu árið 2013 eftir að Chavez lést
og síðan hefur allt gengið á afturfót-
unum fyrir forsetanum og stjórn
hans. Lægra olíuverð síðustu árin
stuðlaði að snarversnandi lífskjörum
og efnahagsóstjórnin leiddi til óða-
verðbólgu. Chavisminn beið skipbrot
og Sósíalistaflokkurinn missti meiri-
hluta sinn á þinginu í janúar 2016.
Maduro hefur stjórnað landinu með
forsetatilskipunum og hæstiréttur
landsins hefur gert löggjafarvald
þingsins óvirkt með því að ógilda lög
þess.
Spá milljón prósent verðbólgu
Versnandi lífskjör leiddu til óeirða
og mótmæla eftir að efnahagurinn
hrundi árið 2014. Öryggissveitum
hefur verið beitt til að kveða mót-
mæli niður. Algengt er að vopnaðir
verðir séu við innganga stórmarkaða
til að koma í veg fyrir gripdeildir.
Verðbólgan er nú um 42.000% og
hagfræðingar Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins hafa spáð því að hún verði
milljón prósent í lok ársins. Fátækt
fólk hefur ekki lengur efni á lífs-
nauðsynjum og mörg ungmenni hafa
gengið til liðs við glæpahópa til að sjá
sér farborða.
Mikill skortur er á lyfjum og emb-
ættismenn Sameinuðu þjóðanna
segja hann stefna lífi margra sjúk-
linga í hættu, m.a. rúmlega 100.000
Venesúelamanna sem hafa greinst
með alnæmi. Sjúkdómar sem hafði
verið útrýmt í landinu, svo sem misl-
ingar, malaría, berklar og barna-
veiki, hafa skotið upp kollinum aftur
og færst stórlega í aukana.
Reynt að fela ungbarnadauða
Hrunið í heilbrigðiskerfinu hefur
m.a. orðið til þess að ungbarnadauði
hefur stóraukist á síðustu árum.
Stjórnin hefur reynt að fela vandann
með því að hætta að birta upplýs-
ingar um ástandið, svo sem tölur um
fjölda ungbarna sem deyja.
Þótt heilbrigðiskerfið sé í lama-
sessi vegna fjárskorts hefur stjórnin
ekki heimilað aðstoð frá öðrum ríkj-
um þar sem það myndi fela í sér
viðurkenningu á því að stefna stjórn-
valdanna hefði beðið skipbrot, að
sögn blaðamanns þýska vikublaðsins
Spiegel sem kynnti sér ástandið í
sjúkrahúsum í Venesúela. Hann seg-
ir að þar sé skortur á nánast öllu;
lyfjum, tækjum, starfsfólki, mat-
vælum og jafnvel ódýrum áhöldum á
borð við penna. „Börnin eru að deyja
vegna þess að spilltir embættismenn
ríkisins stela peningum, sem eiga að
fara í heilbrigðiskerfið, eða nota þá í
eitthvað annað,“ hefur Spiegel eftir
Oscar Navas, 28 ára lækni á einu
sjúkrahúsanna. Á meðal þeirra sem
hafa flúið landið eru hundruð lækna,
hjúkrunarfræðinga og annarra
starfsmanna sjúkrahúsa.
Navas segist geta starfað á sjúkra-
húsinu vegna þess að foreldrar unn-
ustu hans búi í Bandaríkjunum og
sendi þeim peninga. „Allir læknarnir
þurfa fjárhagslegan bakhjarl vegna
þess að þeir geta ekki lifað á tekj-
unum af vinnunni,“ hefur Spiegel eft-
ir lækninum. Hann segir að ráða-
mennirnir hafi sent vopnaða menn að
inngöngum sjúkrahúsa til að koma í
veg fyrir að óvelkomnir gestir á borð
við blaðamenn geti farið inn í þau til
að kynna sér ástandið. „Hér eru
fleiri vopnaðir menn en læknar.“
Maduro hefur tilkynnt nýjar efna-
hagsaðgerðir sem hagfræðingar
telja að geti orðið til þess að verð-
bólgan verði enn meiri en milljón
prósent í lok ársins. Forsetinn
hyggst meðal annars hækka lág-
markslaunin um 3.500%, leggja á
nýja skatta og fella gengi gjaldmiðils
landsins um 95%. Nýr gjaldmiðill,
bolívar soberano, var innleiddur í
gær og helsta breytingin var sú að
tekin voru fimm núll af bólívarnum.
Margir hagfræðingar hafa sagt að
með breytingunni sé ekki tekið á
meginorsök óðaverðbólgunnar, þ.e.
stjórnlausri seðlaprentun. Búist er
við að stjórnin haldi áfram að prenta
seðla til að geta staðið í skilum við
lánardrottna og bætt upp minni
tekjur ríkisins af olíuútflutningi.
Forsetinn segist einnig ætla að
hækka verð á bensíni með því að
draga úr niðurgreiðslum ríkisins.
Forystumenn í atvinnulífinu í Vene-
súela telja að aðgerðir stjórnarinnar
verði til þess að enn fleiri Venesúela-
menn flýi landið.
Fjöldaflótti vegna hungurs
Um 2,3 milljónir manna hafa flúið
frá Venesúela á fjórum árum 15%
allra barna í landinu eru vannærð
Breytingar á hagtölum frá því að hann var kjörinn forseti landsins árið 2013
Venesúela á valdatíma Maduros
Heimildir: AGS (* spá), seðlabanki Venesúela. OPEC. EcoanaliticaLjósmynd AFP/Juan Barreto
Landsframleiðsla
í %
Verðbólga
í %
Gjaldeyrisvarasjóður
í milljörðum $
Olíuframleiðsla
í milljónum fata á ári
Ríkisútgjöld
% af landsframleiðslu
Innflutningur
í milljörðum $
2012 2018* 2012 2018* 2012 2018**
2012 2018 2012 2017 2012 2018
5,6
-18 21
1.000.000
29,9
9,9
66
9,2
2,4
1,4
-15,6
-21,2
(** 15. ágúst)
Kólumbía
1,1 milljón*
Ekvador
99.000
Perú
280.000
Roraima, Brasilíu
57.000
Flóttaleiðirnar frá Venesúela
Heimildir: Flóttamanna-
stofnun SÞ, USAID
BRASILÍA
BOLIVÍA
PERÚ
EKVADOR
KÓLUMBÍA
V E N E S Ú E L A
PANAMA
KOSTARÍKA
CHILE
ARGENTÍNA
PARAGVÆ
ÚRÚGVÆ
MEXÍKÓ
BANDARÍKIN
* að meðtöldum Kólumbíumönnum
sem hafa snúið aftur til heimalandsins
282.180 Venesúelamenn
sóttu um hæli í grannríkjunum
á árunum 2014-2018, þar af
113.000 á síðasta ári
Hundruð þúsunda manna hafa flúið til grannríkjanna á síðustu árum
Boa Vista
Cucuta
Manaus
BRASILÍA
LIMA
Arauca
BOGOTÁ
Ipiales
QUITO
Ibarra
500 km
Spenna vegna fólks-
flótta frá Venesúela
» Vaxandi spenna er í grann-
ríkjum Venesúela vegna fjölda-
flóttans frá Venesúela.
» Forseti Brasilíu, Michel Tem-
er, sendi 120 hermenn að
landamærunum að Venesúela
um helgina eftir að íbúar
bæjarins Pacaraima kveiktu í
tjöldum flóttamanna frá land-
inu. Íbúarnir réðust á flótta-
fólkið vegna frétta um að fjórir
Venesúelamenn hefðu rænt
verslun og gengið í skrokk á
eiganda hennar.
» Stjórnvöld í Ekvador sögðu
um helgina að Venesúela-
mönnum yrði ekki hleypt til
landsins nema þeir hefðu
vegabréf en þau eru nær
ófáanleg í Venesúela.
» Ríkisstjórn Perú hyggst gera
það sama eftir að lögreglan
handtók fimm Venesúelamenn
sem grunaðir eru um að hafa
ætlað að fremja bankarán.
Frans páfi hefur
fordæmt óhæfu-
verk barnaníð-
inga úr röðum
presta og að-
gerðir yfir-
manna kaþólsku
kirkjunnar til að
hylma yfir með
þeim í opnu bréfi
til allra kaþ-
ólskra manna í heiminum.
Embættismenn í Páfagarði sögðu
að þetta væri í fyrsta skipti sem
páfi fjallaði um málið í slíku bréfi. Í
bréfinu er einkum skírskotað til ný-
legrar skýrslu þar sem fram kemur
að yfirmenn kaþólsku kirkjunnar í
Bandaríkjunum hylmdu með skipu-
legum hætti yfir með 300 prestum
sem eru taldir hafa brotið kyn-
ferðislega gegn þúsundum barna í
Pennsylvaníu á 70 árum. Páfi viður-
kenndi að kirkjan hefði brugðist of
seint við brotunum og baðst afsök-
unar fyrir hönd hennar.
PÁFAGARÐUR
Fordæmir óhæfu-
verk presta
Frans páfi