Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 Svanhildur Benediktsdóttir, aðstoðarmaður tannlæknis, á 60 áraafmæli í dag. Hún er stödd með manninum sínum, Guðmundi Ás-birni Ásbjörnssyni, húsasmiði og pípulagningamanni, í Brighton að halda upp á afmælið. Þau voru nýlent þegar blaðamaður ræddi við Svanhildi í gær en þau hjónin verða í Brighton fram á fimmtudag. Hún var ekki búin að ákveða hvað þau ætluðu að gera í dag, á sjálfan afmælisdaginn. „Við erum núna að labba um borgina og sjá til hvað við ætlum að gera.“ Svanhildur hef- ur einu sinni áður komið til þessarar skemmtilegu borgar. „Ég kom hingað fyrir fjórum árum með vinnufélögunum og fannst tilvalið að koma aftur enda stutt að fara.“ Guðmundur varð sextugur fyrr á árinu og þá fóru hjónin til Tenerife með allri fjölskyldunni, börnum, mökum þeirra og barnabörnum. „Það var dásamlegt en núna ætlum við að njóta þess að vera bara tvö.“ Svanhildur er Njarðvíkingur og vinnur á Tannlæknastofu Benedikts. Hún hefur starfað sem aðstoðarmaður tannlæknis í 27 ár. „Það er næst- um helmingurinn af ævinni, en þetta er mjög fínt starf.“ Svanhildur hefur starfað í Lionsklúbbnum Æsu í 30 ár. „Svo eigum við hjónin mótorhjól sem við ferðumst töluvert á. Höfum farið víða inn- anlands og fórum líka einu sinni til Færeyja og vorum á mótorhjólinu þar. Ég er semsagt farþegi á mótorhjólinu.“ Börn Svanhildar og Guðmundar eru Fjóla Jórunn viðskiptafræð- ingur, Ásbjörn endurskoðandi og Lilja hárgreiðslukona. Barnabörnin eru sex. Fjölskyldan Svanhildur, Guðmundur, börn, makar og barnabörn á Tenerife fyrr í sumar á 60 ára afmæli Guðmundar. Heldur upp á daginn í Brighton Svanhildur Benediktsdóttir er sextug í dag K atrín Guðmundsdóttir fæddist á Ísafirði 21.8. 1948 og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún gekk í Barnaskólann á Ísafirði, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Ísafirði, stundaði nám í glerlist við lýðháskól- ann Engel Holmskole á Jótlandi 1998 og hefur sótt fjölda námskeiða í glerlist í Danmörku, í leirkeragerð hér á landi og í almennri handmennt. „Á Ísafirði voru krakkar kallaðir púkar, rétt eins og talað er um peyja í Eyjum. Ég var Hlíðarvegspúki því við áttum heima við Hlíðarveginn. Þarna var mikill krakkaskari, sam- heldni og góður félagsandi og við lékum okkur úti allan daginn, uppi í fjalli og í fjörunni en máttum aldrei fara niður á bryggju. Það voru for- réttindi að fá að alast upp á þessum árum í dæmigerðu íslensku útgerðarplássi þar sem allir þekktu alla og enginn varð út undan. Ég veit fátt yndislegra en að heimsækja æskuslóðirnar og njóta gestrisni gamalla vina og félaga.“ Katrín byrjaði í fiskvinnslu í Norðurtanganum á fermingaraldri. Hún hóf verslunarstörf við Kaup- félag Ísafjarðar 1968 og starfaði þar til 1972. Þá flutti hún til Eskifjarðar. En hvers vegna flytur fólk allt í einu af Vestfjörðum og á Austfirði? „Það var Sjallinn á Akureyri sem sá um það. Bróðir minn átti heima á Akureyri, ég fór að heimsækja hann, skellti mér í Sjallann og hitti þar manninn minn. Þá varð ekki aftur snúið.“ Á Eskifirði vann Katrín við Frystihús Eskifjarðar um árabil. Hún sá um reksturinn á Hótel Eskju Katrín Guðmundsdóttir, glerlista- og handverkskona – 70 ára Hjónin Katrín og Kristján stödd á Akureyri í fyrra en þau kynntust þar, í Sjallanum. Ástin dró hana frá Ísafirði til Eskifjarðar Ljós í gleri Glerlampar eru eitt það vinsælasta úr smiðju Katrínar. Hafnarfjörður Ylfa Ösp Árnadóttir fæddist 1. nóv- ember 2017. Hún vó 3.388 g og var 50,5 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Árni Óli Ólafsson og Elva Björk Bjarnadóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. R GUNA GÓÐAR I Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.