Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Ef þú getur sýnt barni að ein bók sé skemmtileg þá lærir það um leið að það er önnur skemmtileg bók þarna úti einhvers staðar,“ segir Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og sjón- varpsmaður, með meiru. Þrjár nýjar bækur hafa á síðustu mánuðum bæst í útgáfuskrá Ævars og eru þær hluti af tveimur ritröðum sem hann hefur unnið að og sent frá sér á síðustu árum. Annars vegar er um að ræða Börn Loka og Búkolla í „Þín eigin saga“-röðinni og hins veg- ar Ofurhetjuvíddin úr ritröðinni „Bernskubrek Ævars vísinda- manns“. Ævar hafði áður samið fjórar bækur í „Þín eigin“-röðinni og nutu þær allar mikilla vinsælda. Nýju bækurnar, Búkolla og Börn Loka, eru þó styttri en fyrri bækurnar og henta að Ævars sögn t.a.m. þeim sem eru að byrja að læra að lesa, eða vilja einfaldlega styttri bækur. Hugsaði að þetta yrði lítið mál „Ég fékk þessa hugmynd fyrir nokkrum árum, um svipað leyti og fyrsta bókin í seríunni var að koma út,“ segir Ævar aðspurður hvenær hann hafi ákveðið að bæta léttlestr- arbókum við ritröðina. „Þetta lenti í smá salti bara vegna þess að það var svo mikið að gera hjá mér og ég var á sama tíma að skrifa Bernskubrek Ævars vísindamanns sem kom alltaf út á vorin. Ég hafði einfaldlega ekki tíma til þess að sinna þessu verkefni af þeirri natni sem svona texti krefst,“ segir hann og bætir við: „Ég hugsaði líka með mér að þetta yrði ekkert mál þegar ég færi í þetta. Það kom hins vegar annað á daginn því það er gríðarleg vinna sem liggur að baki svona ein- földum texta sem samt þarf að vera spennandi og skemmtilegur, og halda lesandanum í sem fæstum orð- um. Mér finnst gaman að nota mörg orð þegar ég segi sögur, svo þetta þjálfaði aðra vöðva en ég er vanur.“ „Þín eigin“-bækurnar eru sér- stakar að því leyti að lesandinn ræð- ur að ákveðnu leyti söguþræðinum. Lesandanum eru gefnir valkostir í atburðarás sögunnar og flettir á þá blaðsíðu sem við á, sem ýmist geta haft góðan eða hræðilegan endi í för með sér. Ævar segir að þrátt fyrir að fyrri bækurnar í ritröðinni hafi verið gríðarvinsælar hjá börnum á öllum aldri séu þær bæði orðmargar og án mynda að mestu leyti. Hann hafi því langað að gefa út bækur sem myndu „hita upp lesendur“ en nýju bæk- urnar tvær eru glæsilega mynd- skreyttar af Evönu Kisu. „Það er hennar verk sem grípur lesendurna fyrst. Kápurnar eru lítil listaverk og við megum ekki gleyma því að hún á alveg helminginn í þessu.“ Síðasta átakið Eins og áður segir gaf Ævar líka nýverið út bók í „Bernskubrek Æv- ars vísindamanns“-ritröðinni en fyrstu bókina gaf hann út 2015 og er nýja bókin, Ofurhetjuvíddin, því sú fjórða í þeirri röð. Mörg grunnskólabörn á Íslandi kannast líklega við bækurnar en Ævar hefur samhliða útgáfu á röð- inni staðið fyrir lestrarátaki á hverju vori. Fyrirkomulagið hefur verið þann- ig að börn í fyrsta til sjöunda bekk, og nú í ár alveg upp í tíunda bekk, hafa lesið bækur og sent inn lestrar- miða því til sönnunar. Ævar hefur síðan dregið úr innsendum miðum og fimm börn fengið að enda sem per- sónur í næstu bók hans. „Fimm krakkar sem tóku þátt í átakinu í vor voru öll gerð að ofur- hetjum í Ofurhetjuvíddinni. Á einn eða annan hátt er ég að kenna smá vísindi í hverri bók og í þessari bók er ég svolítið að fjalla um kenningar um aðrar víddir og aðra heima, og reyna sjálfur að ná utan um þær og koma þeim frá mér þannig að það sé skiljanlegt,“ segir Ævar kíminn. Spurður um lestrarátakið, sem Ævar hefur nú staðið fyrir fjögur ár í röð, segir hann: „Þetta hefur gengið alveg gríðarlega vel. Á þess- um fjórum árum hafa verið lesnar yfir 230.000 bækur.“ Næsta lestrarátak hefst venju samkvæmt 1.janúar nk. og verður það í síðasta skipti sem Ævar mun standa fyrir átakinu. Spurður hvers vegna það sé segir Ævar: „Þetta er auðvitað svakaleg vinna, og ég hef staðið í þessu að mestu einn, ein- faldlega vegna þess að þetta er nokkuð sem ég brenn fyrir. Þetta áttu upphaflega bara að vera þrjú ár, en svo gekk þetta svo vel að mig langaði að lengja þetta upp í fimm. Ég held að það sé flott að það komi eitthvað nýtt inn sem kveikir áhuga nýrra lesenda á nýjan hátt. Ég veit að það er einhver þarna úti með aðra og skemmtilega hugmynd að lestrarhvatningu sem mun hoppa á boltann eins og ég gerði fyrir fjórum árum þegar ég byrj- aði.“ Hrollvekjur og vísindaskáld- sögur í uppáhaldi Það kemur líklega fáum á óvart að Ævar hafi verið og sé enn mikill bókaáhugamaður, og segist sjálfur hafa lesið mikið sem barn. „Þegar ég fer í skóla að spjalla við krakka bendi ég þeim oft á að ef ein- hverjir þeirra hafi áhuga á að verða höfundar þá sé það besta sem þau geti gert að lesa. Ég get sjálfur dregið beint strik á milli þess sem ég er að skrifa í dag og þess sem ég las á bókasafninu í Borgarnesi sem barn.“ Ævar segir að um þessar mundir séu vísindaskáldsögur og hroll- vekjur í uppáhaldi hjá sér og þær líti gjarnan inn í „Þín eigin“-bækurnar. „Stundum tekur söguþráðurinn hræðilega beygju ef lesandinn velur ekki almennilega. En þá hef ég reyndar þá afsökun að þetta sé les- andanum að kenna en ekki mér,“ segir Ævar að síðustu hlæjandi. Bætir við báðar ritraðirnar  Ævar Þór Benediktsson hefur sent frá sér þrjár nýjar bækur  Síðasta lestrarátakið hefst í janúar Morgunblaðið/Hari Fjölhæfur „Það er gríðarleg vinna sem liggur að baki svona einföldum texta sem samt þarf að vera spennandi og skemmtilegur,“ segir Ævar Þór. Kvikmyndin Undir trénu eftir leik- stjórann Hafstein Gunnar Sigurðs- son hlaut aðalverðlaun Anonimul- kvikmyndahátíðarinnar um þarsíð- ustu helgi en hátíðin var haldin við Svartahafið í Rúmeníu, skv. frétt á kvikmyndavefnum Klapptré. Verð- launin voru veitt af áhorfendum og var Hafsteinn viðstaddur verð- launaafhendinguna. Kvikmyndin hefur nú hlotið átta alþjóðleg verð- laun. Í fréttinni segir einnig að sýn- ingar á myndinni í Rúmeníu hafi hafist um helgina og hún hafi verið tekin til sýningar í Bretlandi á sama tíma. Í Bretlandi hafi gagnrýnendur verið jákvæðir, m.a. gagnrýnandi dagblaðsins The Independent sem gaf myndinni fjórar stjörnur af fimm mögulegum í einkunn. Í myndinni segir af hatrömmum deil- um nágrannahjóna um stórt tré í garði annars þeirra og forræð- isdeilu ungs pars. Undir trénu verð- launuð í Rúmeníu Átta Undir trénu hefur hlotið átta alþjóðleg verðlaun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.