Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.08.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2018 ////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Saxófónleikarinn Sölvi Kolbeinsson og djasskvartett hans munu leika á þremur tónleikum í Reykjavík í vik- unni. Sölva ættu margir að kannast við en hann er eitt helsta efni lands- ins í saxófónleik og er nú búsettur í Berlín þar sem hann stundar nám við Jazz-Institut í Berlín. Djasskvartett- inn er nýtt alþjóðlegt verkefni Sölva sem sameinar tengsl hans við tónlist- arsenuna á Íslandi og í Berlín. Með Sölva koma fram píanóleikarinn Mark Pringle frá Englandi og bassa- leikarinn Felix Henkelhausen frá Þýskalandi. Auk þeirra spilar Magn- ús Trygvason Elíassen á trommur. Sölvi kynnist þeim Mark og Felix í Berlín fyrir þremur árum en þeir stunda nám við sama skóla. „Við byrjuðum eiginlega strax að spila saman í mismunandi verkefnum. Felix kom til landsins í fyrra og þá spiluðum við saman á Djasshátíð Reykjavíkur. Þessi kvartett sem er að fara að spila saman núna hittist svo í Berlín fyrir nokkrum mán- uðum, sem var ótrúlega gaman,“ segir Sölvi og bætir við að erfitt hafi reynst að finna tíma þar sem allir voru lausir enda uppteknir tónlist- armenn upp til hópa. „Þetta er draumaband og ég er mjög glaður með að okkur tókst að hóa okkur saman.“ Gamall söngleikjadjass Að sögn Sölva mun kvartettinn leika sína uppáhalds djassstandarda á tónleikunum og gera þá að sínum. Mörg af lögunum koma úr banda- rískum söngleikjum en þar má einn- ig finna lög eftir þekkta djasstónlist- armenn á við Duke Ellington og Miles Davis. Sölvi segir söng- leikjalög henti djassleik vel. Mel- ódíurnar séu oft einfaldar og því auð- velt að spinna út frá þeim. „Söngleikirnir sem djassleikarar sækja í eru í eldri kantinum, frá tímabilinu 1930-1940, svo eru eitt og eitt lag úr hverjum söngleik sem verða að „standard“. Þetta eru lög sem við þekkjum allir og þarf ekki að æfa sérstaklega, það er bara talið í og þá gerist eitthvað,“ segir Sölvi. „Djassarar fara oft frjálslega með þessi lög og því finnst mér mjög gaman að hlusta á upprunalegu út- gáfurnar sem eru oft gerólíkar þeim sem ég hef vanist,“ útskýrir Sölvi en meðal laga á dagskránni verður lagið I Remember You, úr söngleiknum „The Fleet‘s In“ frá 1942. Gróska í djassinum í Berlín Sölvi á eitt ár eftir af náminu í Berlín og gæti vel hugsað sér að dvelja þar áfram. „Berlín er mikil djassborg og auðvitað mikil lista- borg. Þar er ótrúlega skemmtileg og fjölbreytt djasssena. Mér finnst auð- vitað æðislegt að vera hér á Íslandi en hér er mjög lítil djasssena og því er búið að vera frábært að vera úti í kringum fólk sem spilar allt öðruvísi og nálgast djass með ólíkum hæt- ti.En að sama skapi er samkeppnin mikil,“ segir Sölvi og segist þó vona að hann geti verið með annan fótinn á Íslandi í framtíðinni. Sölvi var átta ára þegar hann hóf að æfa á saxófón hjá Hafsteini Guð- mundssyni, sem var kennari hans í 8 ár. Hann er 22 ára í dag og hefur því spilað samfellt á saxófóninn í 14 ár. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sölvi víðfeðma reynslu af spilamennsku hér á landi. Árið 2015 hlaut hann t.a m. íslensku tónlistarverðlaunin sem bjartasta vonin í djass- og blústónlist árið 2015, þá nítján ára gamall. Á döfinni er að klára skólann og áframhaldandi spilamennska í Berl- ín. „Ég er smám saman að fá verk- efni úti og líður vel þar svo ég get hugsað mér að vera þar áfram. En það er alltaf gaman að koma hingað heim og spila með góðum vinum.“ Tónleikar kvartettsins verða í Norræna húsinu á morgun, miðviku- dag, kl. 20. Í kvöld kemur kvart- ettinn fram á djasskvöldi Kex Hostel sem hefst kl. 20.30. Síðustu tónleikar kvartettsins verða á sunnudaginn næsta í Mengi kl. 16. „Þá ætlum við að vera með nokkra gesti og öðruvísi prógramm, meira í ætt við frjálsan spuna.“ Saxófónleikari með framtíðina fyrir sér  Djasskvartett Sölva Kolbeinssonar með þrenna tónleika Morgunblaðið/Hari Hæfileikar Sölvi segir Berlín mikla djassborg og samkeppnin sé því mikil. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Tónlistarmaðurinn Paul Lydon gaf nýverið út nýja plötu, Sjórinn bak við gler. Platan samanstendur af sjö lögum sem leikin eru á píanó. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég gef út disk sem er bara píanó- leikur. Mig langaði að gera eitthvað öðru- vísi í þetta skiptið og eitthvað einfaldara,“ segir Paul en hann hefur áður unnið með fleiri hljóðfæri, söng og texta. Lögin eru nokkuð upplífgandi og í þeim er einhver óútskýranleg bjart- sýni. Paul segir þau öll vera spuna. „Á þessari plötu er ég að vinna með ákveðin stef, þegar ég sest nið- ur til að semja hef ég oft einhverja hugmynd um hvað ég ætla að gera en svo læt ég bara vaða,“ segir hann. Paul hefur notað þessa aðferð um langa hríð. „Ég hef spilað á þennan hátt síðan ég var táningur, ég reyni að leika mér að þessu og skapa í hvert skipti eitthvað sem mig langar sjálfan að heyra.“ Bjartir tónar laganna ríma við bjarta liti plötuumslagsins. „Ég vona það allavega. Dóttir mín, Kin- nat, hannaði umslagið. Hún er hönn- uður og listamaður,“ segir Paul. Að frátöldu plötuumslaginu og masteringu plötunnar gerði Paul allt í sambandi við hana sjálfur. „Hann Curver masteraði þetta fyrir mig en annars er þetta bara mín vinna. Þetta eru upptökur sem ég tók allar heima hjá mér og ég gef plötuna út sjálfur, mér fannst einfaldara að gera þetta á þann hátt.“ Tilfinningar kalla á titla Titill plötunnar, Sjórinn bak við gler, kemur úr draumi Pauls. „Mig dreymdi þetta bara og fannst titill- inn passa nokkurn veginn við það sem ég var að skapa.“ Titlar laganna sjö á plötunni eru einnig nokkuð forvitnilegir og fjöl- breyttir. Lögin heita „máluð ljós“, „nöfn í hverjum spegli“, „valhne- tutré“, „tvíburar að skauta“, „perlur í mjólk“, „á annarri hæð“ og „sjór- inn bak við gler“. „Ég vildi hafa titla sem lýstu lögunum og stemningu þeirra vel. Ég velti því bara fyrir mér hvað gæti passað og hvaða til- finningar fylgdu hverju lagi fyrir sig,“ segir Paul um lagatitlana. Paul hefur verið búsettur á Ís- landi síðan 1988 og sent frá sér all- nokkuð af tónlist. Hann kom upp- haflega hingað til að læra íslensku og ætlaði einungis að dvelja hér í tvö til þrjú ár. Hann segir Ísland orðið sitt heimaland. „Já, engin spurning, mér finnst mjög gott að búa hér.“ Aðspurður hvort þess megi vænta að sjá hann á tónleikum bráðlega segir Paul að von sé á því í haust. Spilar það sem hann vill sjálfur heyra  Paul Lydon gefur út plötuna Sjórinn bak við gler  Björt lög leikin á píanó Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Draumur „Mig dreymdi þetta bara og fannst titillinn passa nokkurn veginn við það sem ég var að skapa,“ segir Paul Lydon um titil nýútkominnar plötu sinnar, Sjórinn bak við gler, sem hefur að geyma sjö lög leikin á píanó.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.