Morgunblaðið - 21.08.2018, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 233. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. „Þetta er bara ömurlegt“
2. Það er eitthvað í gangi með …
3. Bubbi með rifna slagæð
4. Kveikt í bílum við Öskju í nótt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fimm ný verk eftir útskriftarnema í
meistaranámi í sviðslistum við Lista-
háskóla Íslands verða frumsýnd 21.-
25. ágúst í Smiðjunni, Sölvhólsgötu
13, Þjóðleikhúskjallaranum, Tjarnar-
bíói, Sundhöll Reykjavíkur og Lista-
safni Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Frítt
er inn á sýningarnar en panta þarf
miða á vefnum tix.is til að tryggja sér
aðgang. Útskriftarnemendurnir eru
Isabella Rodrigues Goncalves, Re-
becca Scott Lord, Silja Hauksdóttir,
Timothy Andrew Darbyshire og Tobi-
as Draeger.
Morgunblaðið/Þórður
Fimm útskriftarverk
MA-nema frumsýnd
Breski danshöfundurinn Lee Proud
hefur verið ráðinn til að sjá um sviðs-
hreyfingar í söngleiknum Kabarett
sem Leikfélag Akureyrar setur upp í
Samkomuhúsinu nú í haust. Proud
hefur tekið þátt í uppsetningu fjöl-
margra söngleikja víða um heim og
nokkurra hér á landi, samið dansa við
Billy Elliot, Mary Poppins, Mamma
Mia og Rocky Horror í Borgarleikhús-
inu.
Marta Nordal, leikhússtjóri LA,
leikstýrir Kabarett og verður söng-
leikurinn frumsýndur 26. október.
„Við duttum í lukkupottinn að fá jafn
eftirsóttan atvinnumann og stjörnu í
danshöfundaheiminum
til Akureyrar, en Lee
er mjög spenntur
fyrir að vinna í hinu
sögufræga Sam-
komuhúsi,“ er haft
eftir henni í tilkynn-
ingu.
Proud sér um sviðs-
hreyfingar í Kabarett
Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag Hæg norðlæg eða
breytileg átt og víða skúrir, en sums staðar þokusúld við N-
ströndina. Hiti 8 til 15 stig að deginum, hlýjast syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg breytileg átt og skýjað að mestu. Dálítil
rigning eða súld á A-verðu landinu fram á kvöld, en annars skúrir.
Hiti 8 til 14 stig.
VEÐUR
Freyr Alexandersson, þjálfari
kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu, skorar á íslensku
þjóðina að fylla Laugardals-
völl í fyrsta sinn á landsleik í
kvennaflokki laugardaginn 1.
september þegar Sara Björk
Gunnarsdóttir leiðir íslenska
landsliðið fram á völlinn
gegn Þjóðverjum í undan-
keppni HM. Leikurinn gæti
ráðið úrslitum um hvort HM-
draumurinn rætist eða ekki.
»1
Vill að uppselt
verði á stórleikinn
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik
karla, segist hafa hrifist mjög af leik
íslenska landsliðsins, skipuðu leik-
mönnum 18 ára og yngri sem varð í
öðru sæti á Evrópumeistaramótinu
sem lauk í Króatíu á sunnudag. Þá sé
greinilegt að liðsheildin sé sterk.
Guðmundur lýkur sérstöku lofsorði á
Heimi Ríkarðsson, þjálf-
ara 18 ára landsliðsins,
fyrir vandaðan undir-
búning. »4
Liðsheildin sterk og
undirbúningur góður
Íslandsmeistarar Vals tylltu sér í
efsta sæti Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu með sigri á Breiðabliki, 3:1, á
Kópavogsvelli í gær í 17. umferð
deildarinnar. Valur hefur þar með
eins stigs forskot á Breiðablik og á
auk þess leik til góða. Guðmundur
Karl Guðmundsson tryggði Fjölni
annað stigið gegn Víkingi R. með
marki á ellefu stundu. »2-3
Valur hafði sætaskipti
við Breiðablik
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Hey balúba var eina lagið sem kom upp í huga
handknattleiksmannsins Victors Berg Guð-
mundssonar þegar liðsfélagar hans í þýska liðinu
HSG Siebengebirge-Thomasberg skoruðu á hann
að syngja lag sem allir gætu sungið með. Þeir
voru þá í rútu á leið heim af útileik, þetta var árið
1995 og lagið varð fljótt vinsælt meðal liðsfélaga
hans og stuðningsmanna Siebengebirge-Thomas-
berg. Núna, 23 árum síðar, er lagið orðið opinber
hvatningarsöngur liðsins.
Victor, sem nú starfar sem framkvæmdastjóri
Samfés, samtaka félagsmiðstöðva og ungmenna-
húsa, dvaldi í Þýskalandi ásamt fjölskyldu sinni
við nám, störf og handknattleiksiðkun á ár-
unum 1990-’99, en reyndar stóð ekki til í
upphafi dvalarinnar að spila handbolta
með krefjandi háskólanámi.
Áður en hann gekk til liðs við
HSG Siebengebirge, sem hann lék
með 1995-’97 og kennt er við sam-
nefndan bæ sem er skammt frá borginni
Bonn, var hann liðsmaður Bocklemünd og
segir þetta hafa verið einstaka
upplifun og frábært tækifæri.
„Heimamenn og íbúar í Siebengebirge höfðu
gífurlegan áhuga á handbolta. Það var mikil upp-
bygging og sterk hefð fyrir handbolta á staðnum
enda troðfullt á öllum heimaleikjum og mikil
stemning. Það var einstakt fyrir mig að upplifa
þennan tíma þar sem áhorfendur voru öflugir að
hvetja leikmenn með skemmtilegum og persónu-
legum hætti. Einhverjir voru komnir með ís-
lenska fánann, sömdu og sungu söngva um leik-
mennina þegar þeir skoruðu eða vörðust vel og
var ætlast til þess að leikmenn veifuðu áhorf-
endum þegar þeirra nafn var sungið. Ég fékk
fljótlega viðurnefnið „Isi“ sem var stytting á Is-
länder.“
Dreki, hvatningarsöngur og styrktarfélag
Á næsta heimaleik, eftir áðurnefnda rútuferð,
sungu áhorfendur Hey balúba þegar Victor skor-
aði mörk, honum til talsverðrar undrunar. „Fljót-
lega var þetta orðin föst hefð og var þetta líka
sungið við ýmisleg tækifæri hjá liðinu, bæði á
leikjum og á öðrum viðburðum á vegum liðsins.
Árið 2015 hafði markaðsstjóri félagsins sam-
band við mig til að láta mig vita að til stæði að
markaðssetja Hey balúba-hefðina sem opinberan
hvatningarsöng,“ segir Victor, sem segir að nafn
lagsins hafi skolast eilítið til í meðförum Þjóð-
verjanna og orðið að Hej palupa. „Það var líka
búið að hanna Hej palupa-drekann sem er nú á
merki félagsins, á öllum búningum og markaðs-
efni. Í byrjun ársins stofnuðu foreldrar, þjálfarar,
leikmenn og stjórn félagsins styrktarfélagið Hej
palupa til þess að styrkja og styðja við allt barna-
og ungmennastarf Siebengebirge,“ segir Victor
og bætir við að nú sé verið að skrá söguna um
hvernig Hej palupa varð að einkenni félagsins.
Að sögn Victors er heiti styrktarfélagsins ekki
eingöngu skýr tilvísun í lagið heldur er „Hej“
tákn fyrir þrjár helstu stoðir styrktarfélagsins
sem eru: Handball, Engagement, Jugend (Hand-
bolti, skuldbinding, æska).
Spurður hvort honum hafi einhvern tímann
dottið í hug að þetta lagaval hans í rútunni forð-
um daga yrði slíkur örlagavaldur segir Victor svo
ekki vera. „Það hefði aldrei hvarflað að mér að
þessi skyndiákvörðun um að syngja Hey balúba í
rútunni í þeirri von að einhver gæti tekið undir
yrði til þess að lagið yrði svona sterkur hluti af
starfsemi félagsins.“
Örlagaríkur rútusöngur
Hey balúba Victors
varð að einkennislagi
þýsks handboltaliðs
Hey balúba! Victor og dætur hans tvær, þær Svanhvít Berg og Sóley Berg, í treyjum þýska
handknattleiksliðsins HSG Siebengebirge sem prýddar eru drekanum Palupa.
Handbolti Leikmaður HSG Siebengebirge ásamt
tveimur ungum aðdáendum í „Palupa-bolum“.