Morgunblaðið - 25.08.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.08.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. og húsdýragarðinum í Laugardal. Spáð er ágætu veðri víðast hvar um landið í dag, með sólskini vestanlands en annars staðar skýjuðu með köflum og sums staðar skúr- um. Mildast verður sunnan til. Hoppað og skoppað í sólskini í gær Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleðin virðist skammt undan þá sjaldan hefur skinið á höfuðborgarsvæðinu í sumar, eins og þessir hressu krakkar sýndu fram á í gær með því að hoppa og skoppa sem mest þau máttu á ærslabelg í Fjölskyldu- Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það væri mjög óvarlegt ef hér færu af stað miklar hækkanir yfir línuna eins og árið 2015, segir Gylfi Zoëga, prófessor í hag- fræði við Háskóla Íslands, spurður um stöðu efna- hagsmála nú í að- draganda kjara- samninga. Gylfi segir að nær væri að semja um raunhæfar hækk- anir sem styðji við framkvæmd peningastefnu og stjórn ríkisfjár- mála þannig að áfram verði unnt að tryggja lága vexti, lága verðbólgu, áframhaldandi hagvöxt og vaxandi kaupmátt launa. Forsætisráðuneytið fékk Gylfa til að skrifa yfirlit um stöðu efnahags- mála í tengslum við væntanlega gerð kjarasamninga. Er skýrsla Gylfa hugsuð sem innlegg í það sem kallað hefur verið samtal stjórnvalda og að- ila vinnumarkaðarins, reglulega fundi ráðherra með verkalýðsleið- togum, atvinnurekendum og fleirum. Drög að skýrslunni voru rædd á slík- um fundi í síðustu viku. Í skýrslunni segir Gylfi að færa megi fyrir því rök að svigrúm til launahækkana sé nú minna en árið 2015 enda hafi hlutdeild launa í þjóð- artekjum hækkað síðan þá og inn- lendar launahækkanir hafi veikt samkeppnisstöðu útflutnings- atvinnugreinanna. „Yfir línuna hafa lífskjör aldrei verið eins góð hér og nú,“ segir Gylfi í samtali við Morgunblaðið. „Landið er hins vegar orðið mjög dýrt, krón- an hefur styrkst og launin hafa hækkað mikið síðustu þrjú ár. Það er engin innistæða til að hækka launin yfir línuna, þá verður landið enn þá dýrara sem skerðir samkeppnis- hæfni okkar og gæti fælt ferðamenn frá.“ Hann segir að ef Íslendingar fæli ferðamenn frá mætti líkja því við það þegar þeir ofnýttu fiskistofna á liðnum áratugum, ferðamanna- sprengjan yrði einungis enn eitt „síldarævintýrið“. Gylfi telur að taka verði tillit til fleiri þátta við gerð kjarasamninga en fjölda króna sem landsmenn fá í launaumslagi sínu. Markmiðið sé að bæta lífsgæði fólks og mörg tækifæri séu til þess, til að mynda með því að horfa til húsnæðiskostnaðar, vaxta- stigs og frítíma fólks. Nefnir hann nokkur dæmi um aðgerðir sem hægt sé að ráðast í, til að mynda að lækka kostnað í bankakerfinu, endurskoða útreikning húsnæðisliðar vísitölu neysluverðs sem gæti skilað sann- gjarnari lánakjörum og að efna til samráðs við sveitarfélög um að koma upp ódýru húsnæði fyrir ungt fólk og láglaunafólk. Þá bendir hann á að tenging per- sónuafsláttar við launavísitölu myndi koma þeim launalægstu vel og að vert sé að skoða nánar styttingu vinnutíma. Minna svigrúm til hækkana nú en 2015 Morgunblaðið/Ómar Mannlíf Lífskjör hafa aldrei verið eins góð hér og nú, að mati Gylfa Zoëga.  Gylfi Zoëga hagfræðiprófessor vann skýrslu fyrir stjórnvöld um stöðu efnahagsmála í aðdraganda kjarasamninga  Lífskjör aldrei eins góð  Óvarlegt að ráðast í miklar launahækkanir yfir línuna Áherslur Gylfa » Við gerð kjarasamninga þarf að taka tillit til fleiri þátta sem geta bætt lífskjör en fjölda króna í launaumslagi. » Lækka má kostnað í banka- kerfinu, bæta útreikning hús- næðisliðar vísitölu neyslu- verðs sem notuð er til verðtryggingar, gera áætlun um að koma upp ódýru hús- næði, breyta tekjuskattskerf- inu í þágu lægri tekjuhópa og stytta eða auka sveigjanleika vinnutíma. Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Starfsemi á kvennadeildum Land- spítalans er nú á lygnum sjó og hafa langflestar þeirra þrjátíu ljós- mæðra sem sögðu upp störfum í sumar í tengslum við harða kjara- deilu þeirra við íslenska ríkið, dreg- ið uppsagnir sínar til baka. „Langflestar ljósmæður hafa dregið uppsagnir sínar til baka, en sex hafa ekki gert það. Við vitum ekki hvort þær ætla sér að hætta eða hvort þær eru að hugsa málið ennþá,“ segir Linda Kristmunds- dóttir, framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs á Landspítalanum. Ýmist taka þessar uppsagnir gildi 1. september eða 1. október. „Það má segja að við séum komin á lygnan sjó þótt ennþá sé mönnun- arvandi, en það gengur betur,“ seg- ir Linda. „Fæðingardeildin hjá okk- ur er og var allan tímann fullmönnuð og það reyndi aldrei á hana. Meðgöngu- og sængurlegu- deildin var mesta áhyggjuefnið. Þar voru mestir erfiðleikar í sumar. All- ar uppsagnirnar sem tóku gildi 1. júní voru frá ljósmæðrum á þeirri deild.“ Linda segir að lítið hafi verið um nýráðningar, en nýútskrifaðar ljós- mæður hafi þó verið ráðnar yfir sumarið til að byrja með og verði ráðnar til frambúðar í haust. Tvær ljósmæður sem sögðu upp á sjúkrahúsinu á Akureyri hafa dregið uppsagnir sínar til baka. Starfsemin á lygnum sjó eftir harða kjarabaráttu  Sex ljósmæður á LSH hafa ekki dregið uppsagnir til baka Morgunblaðið/Golli Fæðingardeild Þorri ljósmæðra hefur hætt við að segja upp. Mjólk ergóð í nýjum fernum Landsréttur staðfesti á fimmtudag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjaness yfir karlmanni sem grunaður er um gróf kynferð- isbrot gegn tveimur börnum. Skal maðurinn sæta varðhaldi allt til 18. september. Brot mannsins geta varðað allt að 16 ára fangelsi verði hann fundinn sekur. „Rannsókn málsins er í fullum gangi. Meira get ég ekki sagt,“ sagði Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglu- stjóri á Suðurnesjum, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld. Embættið hefur haft málið til rannsóknar síðan 10. júlí en þann dag kom brotaþoli á lögreglustöð og lagði fram kæru á hendur manninum og konu hans. Kæran laut að kynferðisbrotum sem hafi verið gróf og staðið yfir með reglubundnum hætti. Sama dag lagði annar einstaklingur fram kæru gegn parinu fyrir kynferðisbrot og ofbeldisbrot gegn ólögráða barni. Í frétt Ríkisútvarpsins í gær kom fram að börnin tvö væru á grunn- skólaaldri og þau væru tengd fólkinu fjölskylduböndum. Játning liggur fyrir við hluta brot- anna en rannsókn lögreglu beinist meðal annars að því að upplýsa um- fang þeirra, hvort þau hafi verið framin af fleiri aðilum en hinum kærða, hvort hann eigi sér sam- verkamenn og hvort brotið hafi verið gegn fleirum. Rannsóknin er umfangsmikil en lögregla lagði hald á minniskubba, myndavélar, síma og USB-kubba auk fjölda myndbandsspóla. hdm@mbl.is Grunaður um gróf brot gegn börnum  Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Staðfesti gæslu- varðhaldsúrskurð héraðsdóms. Gylfi Zoëga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.