Morgunblaðið - 25.08.2018, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Ásdís
Beikon „Ég á bróður í Ameríku, Kevin Bacon,“ segir Tryggvi beikon, sem fékk viðurnefnið sjö ára eftir að faðir hans hafði keypt svínasíðu í Þýskalandi.
ég beint samband. Mamma og pabbi
voru sofnuð og mamma svarar og er
hissa og vekur pabba. Hann kom í sím-
ann og segir: Hvaða helvítis vitleysa er
þetta í þér, hann er örugglega að
kveika bál hann Tobbi úti á Kirkjubæj-
um. Hættu þessari vitleysu. Svo bara
skellti hann á mig! Nema það að
mamma fór að heyra í flugvélum og
látum og fór þá að hlusta á útvarpið og
heyrði þá hvað væri að gerast,“ segir
Tryggvi.
Eftir símtalið við foreldrana hélt
Tryggvi af stað niður á höfn og fór um
borð í bát. „Við vorum yfir fjögur
hundruð manns um borð, allt of marg-
ir. Það var skítaveður. Það var dottin
niður bræla en þungur sjór og ég man
að ég varð alveg drullusjóveikur,“ seg-
ir hann.
Rændir á verbúð Ísbjarnarins
„Það var gaman á þessum aldri
að koma til Reykjavíkur og það þótti
dálítið flott að vera að koma úr gosinu í
Eyjum, alla vega í byrjun. Við fluttum
inn á ömmu mína í pínulitla íbúð. Það
var svo ekkert pláss fyrir okkur þann-
ig að ég og vinur minn fórum að vinna í
Álafossi og þar voru verbúðir og við
vorum þar. Svo fengum við útborgað
eftir mánuðinn og þá hættum við.
Kaupið var ekki neitt. Þá fórum við í
Ísbjörninn að vinna í fiski og vorum þá
á verbúðinni þar, sextán ára gamlir.
Svona eftir á að hyggja áttum við ekk-
ert erindi þarna inn, þarna var „hard-
core“-lið. Við vorum alltof ungir og
vorum rændir og alls konar. Það var
alls konar upplifun. Svo fór ég eftir
Þjóðhátíð til Eyja og fór að vinna í
hreinsuninni. Það er svo skrítið að
maður sá alltaf Vestmannaeyjar í ægi-
legum ljóma, kannski af því maður var
alinn upp hérna. Við sáum ekki sólina
fyrir Vestmannaeyjum en samt var
ekki búandi hérna í tíu ár eftir gos.
Þetta var bara viðbjóður, út af vikri og
drullu í öllu,“ segir Tryggvi en stuttu
eftir goshreinsunina var hann farinn á
sjó þar sem hann eyddi næstu áratug-
um.
Vann sextán tíma
á sólarhring
Er gott að vera kominn í land?
„Já, alveg dásamlegt. Gott að
vera heima hjá sér og vera á vinnustað
sem veltur ekki. Ég get skipulagt öll
frí. Það er svo margt við þetta, svo er
ég líka orðinn svo slitinn af því að
standa á bát í öll þessi ár, í um 44 ár.
Ég var yfirvélstjóri en á þessum bát-
um fer maður líka að gera að fiskinum
með körlunum. Það er svolítið þreyt-
andi að standa í sextán klukkutíma á
sólarhring og skera fisk. Og hugsa svo
um vélargarminn líka. Á vertíðinni var
þetta svona; maður stóð frá átta á
morgnana til tólf á kvöldin. Þetta var
mjög þreytandi og sérstaklega eftir
fimmtugt fór maður að finna fyrir
þessu. Maður var orðinn of gamall í
þetta. Í dag fást ekkert ungir menn á
sjóinn og maður skilur það, þetta er
ekki auðveld vinna og þeir þurfa líka
að vera fjarri fjölskyldu. Maður vissi
aldrei neitt hvað maður fengi að
stoppa lengi í landi, þetta var alltaf
mikil óvissa.“
Við förum að slá botninn í sam-
talið en fyrst skoðum við gamlar ljós-
myndir sem hanga uppi á vegg. Mynd
af Tryggva ungum með vinum sínum
blasir við. „Hérna erum við gæjarnir.
Þetta eru allt mótorhjólagaurar; við
vorum töffarar í gamla daga. Í dag er
maður orðinn alltof gamall í árum en
ekkert í sér. Svona er þetta, tíminn líð-
ur hratt.“
Við fengum róna nokk-
urn til að kaupa fyrir
okkur það sem við mátt-
um ekki drekka og héld-
um svaka partí rétt rúm-
um sólarhring áður en
gaus. Við tókum hressi-
lega á því og það endaði
svona.
Karllægur helgireitur Tryggvi umvafinn mótorhjólum, líf hans og yndi.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018
Útsölustaðir:
• Guðsteinn Eyjólfsson – Laugavegi
• Heimkaup.is
• Hagkaup
• Fjarðarkaup – Hafnarfirði
• Herrahúsið – Laugavegi
• Karlmenn – Laugavegi
• Vinnufatabúðin – Laugavegi
• JMJ – Akureyri
• Bjarg – Akranesi
• Efnalaug Suðurlands – Selfossi
• Kaupfélag Skagfirðinga
• Kaupfélag V-Húnvetninga
• Skóbúð Húsavíkur
• Haraldur Júlíusson – Sauðárkróki
• Blómsturvellir – Hellissandi
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Sigló Sport – Siglufirði
• Bjarni Eiríksson – Bolungarvík
• Grétar Þórarinsson - Vestmannaeyjum
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is
Stay Original
Það verður líf og fjör á Árbæjarsafni
á morgun, sunnudag 26. ágúst, en
þá verður þar dagskrá með yf-
irskriftinni Hani, krummi, hundur,
svín. Verður dagurinn tileinkaður
húsdýrum en á Árbæjarsafni búa
nokkrar skepnur, íslenskar land-
námshænur, kindur og lömb, hestar
og folald. Auk þess ætla nokkrir ís-
lenskir glaðir fjárhundar að kíkja í
heimsókn í tilefni dagsins. Fyrir þau
börn sem áhuga hafa verður í boði
að fara á hestbak og láta teyma
undir sér stuttan hring. Í Dillons-
húsi er ævinlega heitt á könnunni
og boðið upp á heimilislegar veit-
ingar.
Nú er lag að leyfa litlu fólki að
kynnast blessuðum dýrunum og
njóta þess fagra og notalega um-
hverfis sem umvefur alla sem koma
á Árbæjarsafnið.
Dagskráin hefst kl. 13 og stendur
til kl. 16. Vert er að taka fram að
ókeypis aðgangur er fyrir börn, eldri
borgara og öryrkja.
Hani, krummi, hundur, svín á Árbæjarsafni á morgun
Samskipti Flest börn njóta þess að eiga samskipti við blessaðar skepnurnar.
Börnum boðið að kynnast
húsdýrunum á Árbæjarsafni