Morgunblaðið - 25.08.2018, Síða 30
30 MESSURÁ morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
✝ Magnús Guð-jónsson fædd-
ist 13. janúar 1929
á Bíldudal við
Arnarfjörð. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Mörk
16. ágúst 2018.
Foreldrar hans
voru hjónin Katrín
Gísladóttir, f. 7.5.
1903, d. 2.8. 1997,
og Guðjón Jóns-
son, f. 27.10. 1895, d. 14.9.
1979. Magnús átti eina systur,
Arndísi, f. 8.8. 1926, d. 14.11.
2016.
Fjölskyldan bjó lengst af á
Bíldudal en fluttist
til Reykjavíkur ár-
ið 1947.
Magnús giftist
Mörtu Bjarnadótt-
ur 9.12. 1950. Þau
eignuðust einn
son, Pétur Bjarna,
f. 14.8. 1955, sem
giftur er Ragn-
hildi Erlu Bjarna-
dóttur, f. 7.12.
1961. Börn þeirra
eru Magnús Már, f. 16.5. 1990,
og Sigrún Erla, f. 30.3. 2001.
Fyrir átti Pétur soninn Ólaf
Gunnar, f. 17.9. 1978.
Útförin fór fram í kyrrþey.
Afi minn var einn merkilegasti
maður sem ég hef kynnst, ekki
bara vegna þess hversu klár, fjöl-
hæfur og duglegur hann var
heldur líka vegna þess hversu
góður hann var mér. Ég kynntist
honum mjög ungur, á fæðingar-
deild Landspítalans, en man lítið
eftir því en hef heyrt hvað þessi
stund var honum dýrmæt. Á mín-
um 28 árum á ég ógrynni minn-
inga um hann og þann kærleik
sem var okkar á milli.
Þegar ég var í barnaskóla fór
ég nokkrum sinnum í viku til afa
og ömmu upp á Kleppsveg eftir
skóla og iðulega var afi í vinnunni
þannig að við amma dunduðum
okkur við alls kyns leiki. Einn af
þeim var að telja bíla sem fóru
framhjá þangað til afi kom heim.
Þetta fannst mér spennandi leik-
ur þar sem það stytti tímann eftir
afa. Þá var kaffitími með brauði
og kakói og horft á barnatímann
á Stöð 2. Áður en ég var sóttur
tefldum við, spiluðum á píanóið
eða hann kenndi mér kvæði.
Við afi vorum alla tíð góðir vin-
ir. Eftir að ég eltist breyttust
samverustundir okkar en alltaf
þótti mér vænt um þegar afi sótti
mig og við fengum okkur hádeg-
isverð saman í IKEA. Hann lét
mig finna hvað hann var stoltur
af mér og hversu vænt honum
þótti um mig. Það var honum erf-
itt að missa mig til Ungverja-
lands í nám en í staðinn fyrir að
láta mig finna fyrir því lagði hann
upp úr því að hitta mig sem oftast
þegar ég kom heim í fríum.
Í hvert skipti sem við kvödd-
umst kallaði hann mig alltaf hetj-
una sína. Ég veit ekki hvað ég
gerði til að verðskulda þau orð
eða hvort ég á þau skilið en eitt er
víst að hann hefur alltaf verið mín
stoð og stytta. Hann hefur alltaf
verið hetjan mín.
Ég kveð þig, afi minn, og
þakka þér fyrir allt sem þú hefur
gefið mér. Þú munt alltaf lifa í
hjarta mínu.
Magnús Már Pétursson.
Elskulegur tengdafaðir minn
er látinn eftir stutt en hastarleg
veikindi. Við Magnús höfum átt
samleið hátt í fjóra áratugi og því
er margs að minnast en þó fyrst
og fremst hlýju hans og kærleika.
Magnús var mikill sögumaður
enda mundi hann allt sem hann
las og hafði ég sérstaklega gam-
an af að því að hlusta á hann
segja frá lífinu á Bíldudal og
hvernig var fyrir ungan sveita-
dreng að koma í fjölmennið í
Reykjavík.
Skólaganga Magnúsar fyrir
vestan var ekki löng en snemma
kom í ljós að hann var ýmsum
gáfum gæddur. Hann hafði mik-
inn tónlistaráhuga og lærði sjálf-
ur að spila á harmonikku og pí-
anó. Hann naut þess alla ævi að
spila á píanóið sitt og eins að
hlusta á aðra leika. Á gamlárs-
kvöld hefur til margra ára verið
hefð fyrir því á okkar heimili að
allir sem kunna á hljóðfæri æfi og
spili eitt tvö lög og hlakkaði
Magnús ávallt til þessara stunda.
Nýlega fundum við blýantsteikn-
ingar eftir hann frá unglingsár-
unum sem lýsa ótvíræðum list-
rænum hæfileikum. Þá var hann
mikill íþróttamaður og þótti einn
efnilegasti kringlu- og spjótkast-
ari sinnar kynslóðar. Hann æfði
jafnframt fimleika og var hluti af
sýningarflokki fimleikadeildar
Ármanns sem kölluðu sig „6 á
kistunni“.
Magnús varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík og
þaðan lá leið hans í Háskóla Ís-
lands. Á þessum tíma hafði
Magnús gifst tengdamóður minni
og eignast soninn Pétur. Náms-
lánum var ekki fyrir að fara og
smám saman hóf Magnús að
smíða með föður sínum, sem end-
aði með því að hann tók sveins-
próf og hlaut síðar meistararétt-
indi í húsasmíði. Á 7. áratugnum
var hann kallaður til starfa sem
dómkvaddur matsmaður og með-
dómari í Borgardómi Reykjavík-
ur og hjá héraðsdómstólum um
allt land. Í yfir 30 ár sinnti hann
þessum störfum jafnframt húsa-
smíðinni.
Mér varð fljótlega ljóst hversu
áhugasamur hann var og hversu
alvarlega hann tók starf sitt sem
meðdómari og matsmaður. Fáir
voru betur að sér um byggingu
húsa og réttarstöðu aðila á því
sviði. Hann las sér mikið til um
lögfræði og áhuginn á því sviði
leyndi sér ekki, sem eflaust hefur
haft áhrif á að maðurinn minn
lauk lögfræðiprófi.
Ég mat tengdaföður minn
mikils en vænst þótti mér að upp-
lifa hann sem afa barnanna
minna. Þegar sonur okkar og
nafni hans fæddist sá ég alveg
nýja hlið á honum, því gagnvart
þessu litla barni þurfti ekki að
dylja neinar tilfinningar. Hann
umvafði drenginn slíkum kær-
leika, hlýju og nærgætni að hann
mun búa að því alla ævi. Hann sá
heldur ekki sólina fyrir Sigrúnu
Erlu og síðustu vikurnar fylgdist
hann spenntur með ökunámi
hennar en í æfingaakstrinum var
stundum komið við hjá afa.
Ég mun minnast Magnúsar
með virðingu og hlýju enda ríkti
einlæg vinátta og virðing okkar í
milli.
Ragnhildur Erla
Bjarnadóttir.
Þegar ég kynntist Pétri mági
mínum á sínum tíma nam hann
lögfræði við Háskóla Íslands. Á
sumrin vann hann við smíðar með
Magnúsi föður sínum. Þeir feðg-
ar höfðu þá smíðað saman hús á
sumrin allt frá þeim tíma sem
Pétur var ungur maður. Eftir þá
liggja mörg hús sem öll eiga það
sameiginlegt að vera völundar-
smíð. Magnús var nefnilega ein-
staklega vandvirkur í öllu því
sem hann tók sér fyrir hendur.
Það hús sem Magnúsi sjálfsagt
þótti vænst um er heimili þeirra
Ragnhildar og Péturs í Austur-
brún.
Magnús var á tímabili um-
svifamikill húsasmíðameistari
með marga menn í vinnu. Það fór
reyndar ekki öllum vel að vinna
fyrir Magnús því hann var kröfu-
harður og leið ekki neitt það sem
kallast mætti óvönduð vinnu-
brögð. Um margra ára skeið
vann Magnús sem dómkvaddur
matsmaður með Ragnari Ingi-
marssyni prófessor við mat á
göllum í húsnæði. Þar nýttist sér-
þekking hans sérstaklega vel.
Eitt af því sem við Pétur réð-
umst í fyrir nokkrum árum var að
gera upp gamalt hús norður í
landi. Eins og gefur að skilja var
Magnús okkar helsti ráðgjafi í
því verki. Þegar okkur rak í vörð-
urnar hringdi Pétur í föður sinn
sem leysti úr vandamálunum
símleiðis frá Reykjavík. Ef ég
man rétt þá kom Magnús aðeins
einu sinni í fallega húsið á Siglu-
firði sem hann sannarlega á svo
mikið í.
Magnús var afskaplega ljúfur
maður, vandaður og lítillátur.
Þeir Pétur voru miklir félagar og
voru í nánu sambandi alla tíð.
Hann sá ekki sólina fyrir barna-
börnum sínum. Hugsaði vel um
þau og fylgdist náið með uppvexti
þeirra bæði í námi og leik.
Við Ingibjörg sendum Pétri og
fjölskyldu hans innilegar samúð-
arkveðjur við fráfall Magnúsar
Guðjónssonar.
Hannes Þór Bjarnason.
Elsku afi minn. Ég minnist
þess nú þegar þú rifjaðir upp
gamla tíma frá Vestfjörðum, sög-
urnar frá Bíldudal og Ísafirði
þóttu mér skemmtilegastar.
Minnist þess þegar við rúntuðum
um á svarta Pontiacnum með
hvítu leðursætunum. Fórum upp
í sveit og þú leyfðir mér að keyra
kaggann sem ég dáðist svo mikið
að, það var hápunktur fyrir ung-
an dreng með mótordellu.
Vinátta okkar var alltaf mjög
einlæg og afslöppuð og návist þín
var mér alltaf ákaflega kærkom-
in. Man eftir þegar þú spilaðir
fyrir mig á píanóið heima hjá
mömmu. Man þegar þú sagðir
mér frá sveitaböllunum í gamla
daga þegar þú spilaðir fyrir gest-
ina á harmónikku. Við gátum
deilt okkar upplifunum af slíku
sem tónlistarmenn.
Ákaflega þykir mér vænt um
að hafa haft þig í mínu lífi. Þú
varst góður maður og réttsýnn.
Ég ber minningar okkar ofarlega
í huga um ókomna tíð. Þú varst
hæfileikaríkur og samviskusam-
ur. Duglegur og þróttmikill með
eindæmum. Þú varst mikill vinur
minn og mér þykir sárara en orð
fá lýst að fá ekki faðmlag frá þér
fyrr en við hittumst aftur.
Ég kveð þig með einskæru
þakklæti fyrir það að þú varst afi
minn.
Ólafur (Óli) Gunn.
Magnús
Guðjónsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein.
Minningargreinar
AKUREYRARKIRKJA | Þakkargjörð-
armessa kl. 11. Prestur er Svavar Al-
freð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Messa með
skýringum kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jó-
hannesdóttir þjónar fyrir altari og hug-
leiðir efni dagsins. Kór Árbæjarkirkju
syngur undir stjórn Krisztinu Kalló
Szkláner. Á eftir er messukaffi.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Séra Svanhildur Blöndal á Hrafnistu
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Ás-
kirkju syngur, organisti er Bjartur Logi
Guðnason. Kaffisopi í Ási að guðs-
þjónustu lokinni.
BESSASTAÐAKIRKJA | Sameig-
inleg guðsþjónusta Bessastaða- og
Garðasóknar kl. 11. Á degi kærleiks-
þjónustunnar þjóna djáknar Garða-
prestakalls þær Margrét Gunn-
arsdóttir og Helga Björk Jónsdóttir.
Organisti er Ástvaldur Traustason.
BÚSTAÐAKIRKJA | Kærleiksmessa
kl. 11 á degi kærleiksþjónustunnar.
Hólmfríður Ólafsdóttir djákni prédikar.
Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn
kantors Jónasar Þóris. Messuþjónar
aðstoða. Prestur er Pálmi Matthías-
son. Heitt á könnunni eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11,
prestur er Gunnar Sigurjónsson, Vinir
Digraneskirkju sjá um tónlist.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 á spænsku og kl. 18
er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Prestvígsla kl. 11.
Biskup Íslands Agnes M. Sigurð-
ardóttir og séra Hjálmar Jónsson.
Minnum á bílastæðin við Alþingi.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta og skírn kl. 11. Sr. Jón Ómar
Gunnarsson þjónar og prédikar. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar syngja undir
stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur org-
anista. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja
Björnsdóttir.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Kvöld-
vaka kl. 20. Upphaf fermingarstarfs-
ins. Fermingarbörn og foreldrar mæta
til kirkju, kór og hljómsveit kirkjunnar
leiðir sönginn undir stjórn Arnar Arn-
arsonar. Prestar eru Sigríður Kristín
Helgadóttir og Einar Eyjólfsson.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón-
usta kl. 14. Séra Hjörtur Magni Jó-
hannsson leiðir stundina. Hljóm-
sveitin Mantra og Sönghópurinn við
Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunn-
ari Gunnarssyni, organista. Ferming-
arbörn og foreldrar þeirra eru hvött til
að mæta.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Séra Grétar Halldór Gunn-
arsson þjónar og barn verður borið til
skírnar. Organisti er Hákon Leifsson
og félagar úr Kór Grafarvogskirkju
leiða söng.
GRENSÁSKIRKJA | Messað kl. 11.
Séra Eiríkur Jóhannsson prédikar og
þjónar fyrir altari og Ásta Haralds-
dóttir leikur undir sönginn sem Kirkju-
kór Grensáskirkju leiðir. Heitt á könn-
unni.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Guðsþjónusta í umsjón Félags
fyrrverandi þjónandi presta klukkan
14 í hátíðarsal. Prestur er Úlfar Guð-
mundsson. Grundarkórinn leiðir söng
undir stjórn Kristínar Waage org-
anista.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Upphaf fermingarstarfs-
ins. Fermingarbörn næsta vetrar og
foreldrar þeirra sérstaklega boðin vel-
komin. Prestar og organisti kirkjunnar
sjá um stundina. Hressing á eftir í
safnaðarheimilinu.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Dagur kærleiksþjónustunnar í
kirkjunni. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir
og Inga Harðardóttir æskulýðsfulltrúi
þjóna. Hópur messuþjóna aðstoðar.
Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Hörður Áskels-
son. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr.
Bjarna Þórs Bjarnasonar. Fyrirbæna-
guðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Ár-
degismessa miðvikud. kl. 8 og tón-
leikar Schola cantorum kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Organisti er
Kristján Hrannar Pálsson. Samskot
dagsins renna til samtakanna Pieta.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
kl. 11. Organisti er Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir. Prestur er Sunna Dóra
Möller.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11.Translation into
English. Samkoma á spænsku kl. 13.
Reuniónes en español. Samkoma á
ensku kl. 14. English speaking ser-
vice.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sunnu-
dagur kl. 18. Sumarlokahátíð, grill og
gaman fyrir alla fjölskylduna. Sam-
koma með lofgjörð og fyrirbænum kl.
20. Safnaðarráð kirkjunnar sér um
stundina. Eftir hana verður boðið upp
á kaffi og gott samfélag.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudags-
kvöld kl. 20. Arnór Vilbergsson leiðir
ungmennakór kirknanna á Suð-
urnesjum Vox Felix. Sr. Fritz Már og sr.
Erla Guðmundsdóttir þjóna í mess-
unni. Verðandi fermingarbörn og að-
standendur þeirra eru boðin sérstak-
lega velkomin, og munum við segja
frá fræðslunni á vetri komanda eftir
messu.
KIRKJUBÆJARKIRKJA | Messa kl.
14 sunnudag. Prestur er Þorgeir Ara-
son. Organisti er Jón Ólafur Sigurðs-
son. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjóts-
kirkju. Minnt er á kaffisölu Kvenfélags
Hróarstungu í Tungubúð eftir messu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Kópavogskirkju syngur und-
ir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj-
unnar.
LAUGARNESKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 20. Fermingarbörn
næsta vors og foreldrar þeirra eru
boðin sérstaklega velkomin, Hjalti
Jón Sverrisson guðfræðingur flytur
hugvekju, sr. Eva Björk Valdimars-
dóttir þjónar og Arngerður María Árna-
dóttir spilar. Á eftir verður boðið upp á
kvöldkaffi í safnaðarheimilinu.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Messa um kvöldið
kl. 20. Óskar Einarsson stjórnar kór
Lindakirkju. Sr. Guðni Már Harðarson
þjónar.
LÖGMANNSHLÍÐARKIRKJA |
Messa kl. 20 sunnudag. Sr. Gunn-
laugur Garðarsson þjónar. Kór Gler-
árkirkju leiðir söng undir stjórn Petru
Bjarkar Pálsdóttur organista.
ÓHÁÐI söfnuðurinn | Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20. Pétur Þorsteinsson
þjónar fyrir altari og Árni Heiðar Karls-
son leikur undir en þetta er loka-
messa hans sem tónlistarstjóri safn-
aðarins. Að vanda verður maul eftir
messu.
SALT kristið samfélag | Sameig-
inlegar samkomur Salts og SÍK kl. 17
alla sunnudaga í Kristniboðssalnum
Háaleitisbraut 58-60, 3. hæð. Ræðu-
maður Kristján Þór Sverrisson. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11.
Fermingarbörn sérstaklega hvött til
að mæta með foreldrum. Prestur er
Guðbjörg Arnadóttir, Kirkjukórinn
syngur, organisti er Ester Ólafsdóttir.
SELJAKIRKJA | Messa kl. 11, sr.
Bryndís Malla Elídóttir prédikar og
þjónar fyrir altari, organisti er Douglas
Brotchie og sönghópur úr Kór Selja-
kirkju leiðir söng, molasopi að messu
lokinni. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl.
15.30.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Messa kl. 11. Sigurbjarnar Ein-
arssonar biskups minnst. Karl Sig-
urbjörnsson biskup prédikar. Bjarni
Þór Bjarnason sóknarprestur þjónar
fyrir altari. Steinunn Vala Pálsdóttir
flautuleikari og Svava Bernharðsdóttir
víóluleikari leika lag. Guðmundur Ari
Sigurjónsson og Rannveig Karlsdóttir
lesa ritningarlestra. Friðrik Vignir Stef-
ánsson er organisti. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngja. Kaffiveitingar og samfélag eft-
ir athöfn. Sýning á bókum Sig-
urbjarnar biskups í anddyri kirkjunnar.
SJÁVARBORGARKIRKJA | Helgi-
stund kl. 11. Léttir sálmar, hugleiðing
og bæn. Rögnvaldur Valbergsson leik-
ur á harmonikku. Prestur er Sigríður
Gunnarsdóttir.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
sunnudag kl. 11. Sr. Egill Hall-
grímsson annast prestsþjónustuna.
SÓLHEIMAKIRKJA | Messa með
altarisgöngu sunnudag kl. 14. Sr.
Sveinn Alfreðsson þjónar fyrir altari
og prédikar. Organisti er Ester Ólafs-
dóttir Bænir: Gunnlaugur Ingimund-
arson og María K. Jacobsen. Með-
hjálpari er Valdís Ólöf Jónsdóttir.
Reynir Pétur leikur á munnhörpu fyrir
stundina. Messukaffi í Grænu könn-
unni.
ORÐ DAGSINS:
Miskunnsami
Samverjinn
(Lúk. 10)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Kirkjur Sauðárkrókskirkja.