Morgunblaðið - 25.08.2018, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018
Lísbet Sigurðardóttir
lisbet@mbl.is
„Í hálfa öld hefur FS starfað undir
þeim einu formerkjum að vera í þágu
stúdenta. Friður hefur ríkt um fyr-
irtækið, enda [rekið] án alls fjár-
hagslegs stuðnings frá hinu op-
inbera. Við höfum verið
nýjungagjörn og hugmyndarík, leit-
að allra leiða til að gera alltaf betur
og á hagkvæmari hátt. Þetta er dag-
legt verkefni, en við erum stolt af að
hafa aldrei hvikað frá grundvall-
arstefnunni um að efla lífsgæði og
félagsleg úrræði stúdenta,“ sagði
Guðrún Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Félagsstofnunar
stúdenta (FS), við hátíðlega athöfn
sem haldin var í tilefni af 50 ára af-
mæli stofnunarinnar í gær.
FS hefur staðið fyrir ýmsum við-
burðum í tengslum við afmælið og
munu hátíðahöldin standa yfir út af-
mælisárið. Á fimmtudag bauð Fé-
lagsstofnun fyrrverandi fram-
kvæmdastjórum og stjórnar-
formönnum Félagsstofnunar,
fyrrverandi formönnum Stúdenta-
ráðs og öðrum velunnurum stofn-
unarinnar á hátíðarathöfn til þess að
heiðra sögu Félagsstofnunar og
minnast góðra verka í þágu stúd-
enta.
„Á löngum starfsferli hef ég
skynjað að hjarta margra slær með
stofnuninni, óháð átökum í stúdenta-
pólitík eða öðrum stjórnmálum. Því
er gaman að hitta ykkur hér saman
og finna að þrátt fyrir möguleg átök
á öðrum vettvangi þykir öllum vænt
um FS,“ sagði Guðrún, en hún hefur
verið framkvæmdastjóri FS í 19 ár.
Guðrún hefur á þeim árum stýrt
mikilli uppbyggingu innan FS, svo
sem byggingu fjölda nýrra stúdenta-
íbúða, opnun Hámu og Stúdenta-
kjallarans á Háskólatorgi og sat
jafnframt í bygginganefnd Háskóla-
torgs.
FS var stofnuð með lögum hinn 1.
júní 1968, en sögu stofnunarinnar
má rekja til þess að hugsjónarmenn
úr röðum stúdenta og Háskóla Ís-
lands tóku höndum saman og leiddu
stofnun Félagsstofnunar stúdenta,
fyrirtækis í eigu stúdenta. For-
sprakkar verkefnisins voru Björn
Bjarnason, þá lagastúdent og síðar
ráðherra, og Ármann Snævarr há-
skólarektor. Guðrún rifjaði upp í
ræðu sinni að mikil samstaða hefði
verið um stofnunina sem hafi ráðið
úrslitum um hve vel tókst til.
Auk Björns og Ármanns nefndi
Guðrún stóran þátt Gylfa Þ. Gísla-
sonar, þáverandi menntamálaráð-
herra, og Stefáns Hilmarssonar, þá-
verandi bankastjóra, í tengslum við
uppbyggingu FS. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar frá stofnun FS og
háskólasamfélagið hefur breyst í
tímans rás. Nú eru konur áberandi í
áhrifastöðum innan fyrirtækisins, en
stjórnarformaður FS og fram-
kvæmdastjóri eru konur auk þess
sem forseti Stúdentaráðs Háskóla
Íslands er kona.
Í dag rekur FS viðamikla starf-
semi. Skrifstofur, bóksölu og bóka-
kaffi stúdenta, Hámu, veitinga- og
skemmtistaðinn Stúdentakjallarann,
stúdentagarða og þrjá leikskóla. Um
170 starfa hjá FS og eignir stofn-
unarinnar eru á fjórða tug milljarða.
Stúdentagarðar FS, þar sem um
10% stúdenta við Háskóla Íslands
búa, hýsa 1.200 íbúðaeiningar.
Guðrún minntist á að margar
hendur kæmu að víðtækri starfsemi
FS. „Án alls þessa fólks, sem þykir
vænt um vinnuna sína, væri ekkert
af þessu hægt. Framtíð FS er björt.
Samstarf við Stúdentaráð, stjórn-
völd og Háskólann hefur verið gott
og hlökkum til við áframhaldandi
samvinnu. Við finnum að við erum öll
í sama liði og erum þakklát fyrir þá
staðreynd,“ sagði Guðrún að lokum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veisla Fyrrverandi framkvæmdastjórum og stjórnarformönnum Félagsstofnunar stúdenta, fyrrverandi formönn-
um Stúdentaráðs og öðrum velunnurum var boðið í afmælisteiti stofnunarinnar sem hefur dafnað í 50 ár.
Hjartað slær með FS
Félagsstofnun stúdenta fagnar 50 ára afmæli um þessar mundir
Félagsstofnun/Ásgeir Ásgeirsson
Forysta Elísabet Brynjarsdóttir, forseti SHÍ, Guðrún Björnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri FS, og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarformaður FS.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins,
Sanna Magdalena Mörtudóttir, lagði
til á síðasta fundi skipulags- og sam-
gönguráðs Reykjavíkur að hætt yrði
við hótelbyggingu á Skúlagötu 26.
Þess í stað yrðu byggðar íbúðir á
reitnum. Meirihlutinn hafnaði þess-
ari hugmynd Sönnu.
Á reitnum Skúlagötu 26 áformar
félagið Rauðsvík að byggja 17 hæða
hótel með 195 herbergjum. Húsið
verður alls um 13 þúsund fermetrar.
Um þetta bókaði Sanna:
„Þrátt fyrir að fyrirhuguð sé hús-
næðisuppbygging á þessu svæði er
mikilvægt að stuðla að enn frekari
húsnæðisuppbyggingu í borginni í
stað margra hæða hótelbyggingar.
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins
telur það að greiða leiðina fyrir
byggingu svo stórs hótels í hjarta
Reykjavíkur, í miðri húsnæðis-
kreppu, ekki vera ákjósanlegt, þegar
áhersla ætti að vera fyrst og fremst
á íbúðauppbyggingu fyrir almenn-
ing.“
Fulltrúar Pírata, Samfylkingar-
innar og Viðreisnar bentu á í bókun
að deiliskipulagið gerði ráð fyrir að á
þessu gamla atvinnusvæði, þar sem
áður voru engar íbúðir, risi íbúðar-
hús með 31 íbúð. Þær bættust við um
það bil 130 íbúðir sem nú væru að
rísa milli Vitastígs og Barónsstígs.
„Um þessar mundir er verið að
byggja nokkur hundruð nýjar íbúðir
af alls konar stærðum og gerðum við
Hverfisgötu. Hótelið sem nú verður
byggt rís á skilgreindu atvinnusvæði
við Skúlagötu við hlið Kex-hostels,“
sagði m.a. í bókuninni. sisi@mbl.is
Sanna vildi íbúð-
ir í stað hótels
Meirihlutinn hafnaði hugmyndinni
Tölvumynd/T.ark
Skúlagata 26 Hugmynd arkitekt-
anna að útliti hins nýja hótels.
Nú eru fjórir veiðidagar eftir af
strandveiðum sumarsins, sem lýkur
30. ágúst. Samtals hafa 547 bátar
landað afla, en þeir voru 594 á ver-
tíðinni í fyrra. Alls er búið að landa
9.400 tonnum sem er 92,2% af
10.200 tonna viðmiðun. Heimilt er
að róa 12 daga í mánuði frá mánu-
degi til fimmtudags og í hverri veiði-
ferð er heimilt að draga 650 kíló, í
þorskígildum talið, af kvótabundn-
um tegundum, að ufsa und-
anskildum.
Grímur AK er aflahæstur strand-
veiðibáta á vertíðinni með 46,5 tonn
í 44 róðrum. Flestir bátar hafa róið
á svæði A frá Arnarstapa í Súðavík
og þar er heildaraflinn orðinn 3.700
tonn. Þar hefur hver bátur landað
að meðaltali tæplega 21 tonni.
Á heimasíðu Landssambands
smábátaeigenda kemur fram að á
yfirstandandi tímabili hafi tíðarfarið
verið strandveiðimönnum afar erf-
itt. Þá segir þar að meðalverð á
mörkuðum hafi verið um 16% hærra
í ár en það var í fyrra og hafi verðið
hækkað enn frekar í ágústmánuði.
Strandveiðum að ljúka
Dansskólinn DanceCenter Reykja-
vík fagnar í dag tíu ára afmæli og
verður með opið hús á nýjum stað í
Síðumúla 15 frá 15 til 17 þar sem
kynnt verða námskeið á opnunar-
tilboði og boðið upp á veitingar.
Í skólanum verður fjölbreytt
kennsla og fjöldi námskeiða fyrir
alla aldurshópa. Sérstök námskeið
eru fyrir börn og unglinga, auk
samverustunda með foreldrum.
Ýmsir viðburðir verða á vegum
skólans, leiðsögn erlendra gesta-
kennara, dansferðir og danskeppni.
Haustönn hefst 3. september.
Skólinn er undir forustu Nönnu
Óskar Jónsdóttur, sem stofnaði
hann 2007 og útvíkkaði starfsemi
hans með stofnun heilunarmið-
stöðvarinnar KristalHofsins í fyrra.
Fagna í nýju
húsnæði
Dans Opið hús á tíu ára afmæli.
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur