Morgunblaðið - 25.08.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 25.08.2018, Síða 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið Opið virka daga 11-18 laugardaga 11-15 Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum 25. ágúst 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 107.69 108.21 107.95 Sterlingspund 138.42 139.1 138.76 Kanadadalur 82.41 82.89 82.65 Dönsk króna 16.709 16.807 16.758 Norsk króna 12.868 12.944 12.906 Sænsk króna 11.804 11.874 11.839 Svissn. franki 109.44 110.06 109.75 Japanskt jen 0.9663 0.9719 0.9691 SDR 150.26 151.16 150.71 Evra 124.65 125.35 125.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.2513 Hrávöruverð Gull 1187.3 ($/únsa) Ál 2038.0 ($/tonn) LME Hráolía 74.72 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Rekstur golfklúbba á suðvesturhorni landsins hefur verið upp og ofan það sem af er sumri. Slæmt sumar hefur vitanlega spilað inn í og leikið suma velli grátt en margir golfklúbbar virðast aftur á móti ná að halda velli og vel það. Er þá einkum um að ræða golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu þar sem félagsmenn eru fleiri. Rekst- ur golfklúbba sem reiða sig meira á utanaðkomandi umferð og vallar- gjöld hefur hins vegar verið þungur. Veðuráhrifin engin hjá GR Golfklúbbur Reykjavíkur stendur vel enda hefur hann nokkra sérstöðu með sína 3 þúsund félagsmenn. „Veðrið hefur í sjálfu sér ekki haft nein áhrif á okkur,“ segir Björn Víg- lundsson, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur. Segir hann sölu vallar- gjalda óverulegar tölur í rekstrinum og nema þau einungis um 5% af heildartekjum klúbbsins. „Megnið af tekjunum kemur í gegnum eitthvað sem er ekki „veðurtengt“. Meðlima- gjöld eru frágengin yfir veturinn sem og aðrir fastir samningar,“ segir Björn. „Við erum með fleiri meðlimi í ár en í fyrra og vallargjöldin hafa ein- faldlega verið vegin upp með meiri tekjum af því. Heildaráhrifin eru því engin,“ segir Björn. Golfklúbbur Brautarholts er einn þeirra valla í jaðri höfuðborgarsvæð- isins þar sem reksturinn hefur geng- ið bærilega. Að sögn Gunnars Páls Pálssonar framkvæmdastjóra hefur Brautarholt notið góðs af vinavalla- samningi við GR sem haldið hefur uppi sölu á vallargjöldum. „Það lítur út fyrir smávægilega aukningu í veltu hjá okkur,“ segir Gunnar og tekur fram að ferðamenn sem sótt hafi völlinn séu fleiri í ár en í fyrra. Stærri klúbbar í borginni ekki í vandræðum Hljóðið var gott í Gunnari Inga Björnssyni, hjá Golfklúbbi Mosfells- bæjar. „Hvað varðar tekjur hefur gengið nokkuð vel. Það er fjölgun í klúbbnum hjá okkur. Við erum á svipuðum stað og í fyrra,“ segir Gunnar og bætir því við að sala á vall- argjöldum, sem eru um 10% af heild- atekjum klúbbsins, sé einnig á pari við söluna í fyrra. En maí og júní voru daprir. „Maður hefur verið í þessu í 15-20 ár. Við höfum oft fengið erfiðan maí eða júní. En að sjá tvo mánuði í röð vera svona slæma, og jafnvel ekk- ert spes að gerast þar til það fer að líða á ágúst, hefur ekki gerst áður.“ Ólafur Þór Ágústsson hjá Golf- klúbbnum Keili í Hafnarfirði segir að í heild séu tekjurnar meiri en í fyrra. Smávægileg aukning hafi verið á sölu vallargjalda þrátt fyrir slakan fyrri hluta sumars en að krónutölurnar séu að skila sér í takt við aukinn gang í júlí og ágúst. Agnar Már Jónsson, fram- kvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, segir veðrið hafa haft smávægileg áhrif á tekjustreymi klúbbsins. „Ef við tökum saman vall- argjöld, tekjur af mótum, leigu á golf- bílum og boltum, þá höfum við farið fimm milljónir niður á milli ára. Af rekstrartekjum eru þetta um 2%. Þannig séð erum við ekkert í slæm- um málum. Útlið var svart í maí og júní en það hefur rétt sig við,“ segir Agnar. Þungur rekstur utan höfuðborgarsvæðis Hljóðið var eilítið þyngra þegar numið var staðar utan höfuðborgar- svæðisins. Hjá Golfklúbbi Borgar- ness hefur reksturinn verið þungur að sögn Jóhannesar Ármannssonar framkvæmdastjóra. „Þetta hefur ekki gengið eins vel og hefur verið barningur. Fyrri hluti sumars var náttúrlega ferlegur. Fram í miðjan júlí var þetta bara rigning,“ segir Jó- hannes. Spurður um mikilvægi vall- argjaldanna segir Jóhannes: „Þau eru okkar lífæð. Við erum lítill klúbb- ur og byggjum okkar starfsemi á gestakomu. Heilt yfir höfum við farið niður í tekjum og í leiknum hringjum líka. En það hefur verið góður skrið- ur á þessu eftir miðjan júlí,“ segir Jó- hannes og bætir því við að Golfklúbb- ur Borgarness sé einn af fáum klúbbum sem ekki njóta stuðnings sveitarfélagsins. „Hjá þessum golf- klúbbum sem reiða sig á vallargjöld verður reksturinn í járnum eða í mín- us hjá flestum,“ segir Jóhannes. Guðmundur Sigvaldason hjá Golf- klúbbnum Leyni á Akranesi segir að reksturinn verði öfugum megin við núllið í ár. „Við erum vallargjalda- klúbbur. Þau skipa stóran sess. Við höfum farið 25% niður í leiknum hringjum. Þátttaka í mótum hefur líka fallið. Við höfum farið niður í tekjum í takt við fækkun á spiluðum hringjum,“ segir Guðmundur. Gunnar Þór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Golfklúbbs Suður- nesja, segir að mikið tekjutap blasi við. Vallargjöld séu 15-20% af heild- arrekstrartekjum sem dregist hafa saman um 30% á milli ára. „En við vorum það heppin að geta opnað í apríl. Apríl var betri heldur en maí og júní. Sem er mjög sérstakt,“ segir Gunnar. Hann reiknar með að rekst- urinn verði á núlli en til þess að ná því hafi þurft að fækka starfsfólki. Slæmt sumar hefur leikið minni golfklúbba grátt Morgunblaðið/Eggert Sumar Íslenskir kylfingar fóru ekki varhluta af vætutíðinni í sumar, einkum sunnanlands og vestan. Þungur rekstur » Rekstur golfklúbba utan höfuðborgarsvæðis hefur verið þungur og líklega í mörgum tilfellum röngum megin við núllið. Í Borgarnesi, á Akranesi og á Suðurnesjum hefur sala á vallargjöldum dregist saman um allt að 30% » Slæmt sumar hefur ekki haft mikil áhrif á rekstur stærri golfklúbba á höfuðborgar- svæðinu þar sem þeir reiða sig í meiri mæli á félagsgjöld  Sala á vallargjöldum var meiri í apríl heldur en í maí og júní á Suðurnesjum Mánaðartekjur eintaklinga voru að meðaltali 534 þúsund krónur á síð- asta ári samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Heildartekjur ein- staklinga voru því um 6,4 milljónir króna að meðaltali á árinu 2017 og hækkuðu um 6,7% milli ára á föstu verðlagi. Miðgildi heildartekna var 5,0 milljónir króna á ári, eða 416 þúsund krónur á mánuði, sem þýðir að annar hver einstaklingur hafði mánaðar- tekjur undir þeirri fjárhæð. Sam- kvæmt Hagstofunni jókst miðgildi heildartekna jafnt og þétt til ársins 2007 en lækkaði svo um rúmlega 20% næstu þrjú árin eftir það. Síðan þá hafa meðaltekjur verið á uppleið og voru á síðasta ári nálægt því sem þær voru árið 2007 á sama verðlagi. Samsetning tekna hefur þó breyst frá því sem var fyrir um áratug, sam- kvæmt Hagstofunni, þar sem hlut- deild fjármagnstekna í heildar- tekjum er að meðaltali minni nú en var í kringum árið 2007. Garðbæingar tekjuhæstir Meðaltekjur voru hæstar í Garða- bæ þegar litið er til tíu fjölmennustu sveitarfélaganna, en heildartekjur þar námu 8,2 milljónum króna á síð- asta ári. Meðaltekjur í Kópavogi námu 6,9 milljónum og í Reykjavík 6,5 milljónum króna. Í Fjarðabyggð voru meðaltekjur 6,6 milljónir króna, á Akranesi 6,2 milljónir króna, á Akureyri 5,9 milljónir króna og í Ár- borg og á Ísafirði um 5,8 milljónir króna. Meðaltekjur einstaklinga orðnar jafnháar og árið 2007  Helmingur landsmanna með yfir 416 þúsund í mánaðartekjur Morgunblaðið/Árni Sæberg Tekjur Meðaltekjur hækkuðu um 6,7% milli áranna 2016 og 2017. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.