Morgunblaðið - 25.08.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 25.08.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150 Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju Fyrir passann, ökuskírteinið, ferilskrána o.fl. Skjót og hröð þjónusta Engar tímapantanir Góð passamynd skiptir máli SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Í gær var hálf öld liðin frá því að Norræna húsið í Reykjavík var vígt við hátíðlega athöfn að viðstöddum 250 gestum, innlendum og erlendum. Af því tilefni býður húsið lands- mönnum í dag upp á afmælisdagskrá sem það kallar „norræna menning- arveislu“. Hefst dagskráin kl. 10 fyr- ir hádegi með morgunverði í tjaldi við húsið og lýkur með tónleikum sem hefjast kl. 19. Fjöldi hljómlist- armanna lætur þar til sín taka. Síð- degis verður vígð ný bryggja í Vatnsmýrinni sem er gjöf Reykja- víkurborgar. Meðal annarra dag- skráratriða er finnskt saunabað úti í garði, barnabíó, andlitsmálning og sýning á finnskri hönnun. Norræna húsið hefur allar götur síðan það var vígt verið vettvangur fjölbreytilegrar menningar- starfsemi, fyrirlestra, ráðstefna, tón- leika, leiklistar og myndlistarsýn- inga. Þá hefur þar frá upphafi verið starfrækt vinsælt bókasafn með nor- rænum bókum. Í húsinu er einnig veitingastaður sem mikið er sóttur. Húsið hannaði Finninn Alvar Aalto (d. 1976) sem jafnan er talinn einn fremsti arkitekt heims. Hann var valinn til verksins að ósk Íslend- inga og fór Gylfi Þ. Gíslason, þáver- andi menntamálaráðherra, á fund hans með erindið. Í kjölfarið kom Aalto hingað til landsins og valdi staðsetningu í Vatnsmýrinni eftir talsverða yfirlegu. Eru línur hússins mótaðar undir áhrifum af landslag- inu umhverfis það. Fundið hefur ver- ið að því að öðrum byggingum hafi á síðustu árum verið þröngvað fullþétt upp að húsinu og það dregið úr þeim heildaráhrifum sem arkitektinn hafði í huga við valið. Norræna húsið má rekja til áskor- unar sem samþykkt var á þingi Norðurlandaráðs 1963. Hvatti ráðið ríkisstjórnir Norðurlanda til að koma á fót í Reykjavík stofnun til að vinna að auknu menningarsamstarfi milli Íslands og annarra norrænna ríkja. Þegar stofnunin tók til starfa fimm árum síðar var hún að ýmsu leyti einstök og átti sér í raun enga hliðstæðu í nálægum löndum. Nú hefur sambærilegum „norrænum húsum“ verið komið á fót á Græn- landi, í Færeyjum og Álandseyjum. Bygging Norræna hússins kostaði talsvert fé, um 45 milljónir króna að því er fram kom í blöðum á þeim tíma. Það er jafngildi um 618 millj- óna ef notast er við hækkun neyslu- vísitölu á tímabilinu. Spunnust nokkrar umræður um þetta og full- yrti eitt blaðanna að byggingar- kostnaður m.v. rúmmetra væri 121% hærri en meðalbyggingarkostnaður í Reykjavík. Ivar Eskeland, fyrsti for- stöðumaður hússins, sagði hins veg- ar að kostnaðurinn væri 50% hærri. Íslendingar gátu þó verið rólegir yfir þessu því bygging hússins snerti lítt pyngju þeirra, hún var sameiginlegt verkefni Norðurlandanna og framlög ríkjanna miðuð við mannfjölda. Hlut- ur Íslands mun hafa verið um 1%. „Í heldur hryssingslegu en björtu veðri lyftust fánar Norðurlandanna að húni framan við Norræna húsið,“ sagði Morgunblaðið í frásögn af vígslu hússins 24. ágúst 1968. Í leið- ara blaðsins daginn eftir sagði að bygging hússins væri einstætt vinar- bragð af hálfu frændþjóðanna á Norðurlöndum. Þótt ýmsir tignar- menn erlendir væru viðstaddir vígsl- una höfðu nokkrir þurft að afboða komu sína á síðustu stundu, þar á meðal Per Borten, forsætisráðherra Noregs. Rússar og fleiri ríki Var- sjárbandalagsins höfðu nokkrum dögum fyrr ráðist inn í Tékkóslóv- akíu og heimsfriðurinn hékk á blá- þræði. Má segja að vígsla hússins hafi að nokkru fallið í skugga hinna válegu tíðinda. Aðalræðuna við vígslu Norræna hússins flutti nóbelsskáldið Halldór Laxness. „Við höfum mú fyrir aug- um áþreifanlegan vitnisburð þess að Norðurlandaþjóðirnar heyra sam- an,“ sagði hann. „Norræna húsið í Reykjavík hefur verið reist og full- gert, hús sem að allri sinnri gerð ber vitni fagurri og göfugri hugsun sem glætt hefur huga margra, hinni nor- rænu hugsun.“ Halldór kvaðst ekki ætla að skilgreina þá hugsun. „Húsið stendur hér fullgert. Þegar menn reisa kirkju er það sökum þess að Guð hefur þegar verið skilgreindur; jafnvel þegar byggingin stendur fullbúin taka menn ekki til að skil- greina Guð heldur er kirkjan vígð. Sú staðreynd að húsið stendur hér segir meira en orð,“ sagði hann. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Vígsla Fánar Norðurlandaþjóða dregnir að hún við Norræna húsið í fyrsta sinn þegar húsið var tekið í notkun. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Skáldið Halldór Laxness flutti aðalræðu við vígslu hússins 24. ágúst 1968. „Að húsið stendur hér segir meira en orð“  Hálf öld frá vígslu Norræna hússins  Öflugt menningarstarf  Viðamikil afmælisdagskrá í dag Morgunblaðið/Arnþór Afmæli Í tilefni dagsins voru fánar Norðurlandaþjóðanna dregnir að hún við Norræna húsið í gær. Þrjár umsóknir bárust um emb- ætti prests við Garðaprestakall (Garðabæ) í Kjalarnesprófasts- dæmi, en umsóknarfrestur rann út hinn 20. ágúst sl. Séra Friðrik Hjartar er að láta af störfum í Garðaprestakalli fyrir aldurs sak- ir. Umsækjendurnir þrír eru guð- fræðingarnir Bryndís Svavarsdótt- ir, Henning Emil Magnússon og Ingimar Helgason Biskup Íslands skipar í emb- ættið frá 1. október 2018 til fimm ára. Umsóknir hljóta umfjöllun matsnefndar um hæfni til prests- embættis og að fenginni niður- stöðu hennar fjallar kjörnefnd prestakallsins um umsóknirnar. Kjörnefnd kýs að því búnu milli umsækjendanna og skipar biskup Íslands þann umsækjanda sem hlýtur löglega kosningu. Sóknarprestur auk séra Friðriks Hjartar er séra Jóna Hrönn Bolla- dóttir og prestur séra Hans Guð- berg Alfreðsson, sem jafnframt er prestur Bessastaðasóknar. Í Garðasókn eru þrjár kirkjur, Garðakirkja í Görðum á Álftanesi, sem er sóknarkirkja Garðasóknar, Bessastaðakirkja og Vídalínskirkja í Garðabæ. Kirkja hefur staðið í Görðum á Álftanesi frá fornu fari. Kirkjan var illa farin er ráðist var í end- urbyggingu hennar um miðja síð- ustu öld. Vídalínskirkja, sem var vígð 30. apríl 1995, er kennd við Jón bisk- up Vídalín í Görðum, en hann var prestur frá 1696 til 1698 er hann var vígður biskup í Skálholti. Vídalínskirkja er hönnuð af Skúla H. Norðdahl arkitekt, en hann hannaði einnig safnaðarheim- ilið sem byggt var fyrr. Kirkjan rúmar allt að 300 manns í sæti. sisi@mbl.is Þrír sækja um embættið  Prestsembætti í Görðum laust  Séra Friðrik hættir Morgunblaðið/Árni Sæberg Vídalínskirkja Kirkjan er í Garða- bæ og var tekin í notkun árið 1995.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.