Morgunblaðið - 25.08.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 25.08.2018, Síða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2018 Snarfarahöfn Tveir menn spá og spekúlera á bryggju nálægt seglbátnum Marín í smábátahöfninni við Naustavog í Reykjavík þar sem Snarfari, félag skemmtibátaeigenda, er með aðstöðu. Eggert Biðlistar dagvistunar- úrræða aldraðra hafa verið til umfjöllunar í vikunni. Þörfin er brýn sem má sjá af því að bara í Kópavogi bíða 135 eftir dagvistun, þar af á fjórða tug með heilabil- un. Kópavogur hefur um nokkurt skeið verið tilbúinn, í samstarfi við hjúkr- unarheimilið Sunnuhlíð, með húsnæði fyrir tíu rými í dagvistun. Reynslan sýnir að tíu rými þjóna 20-25 manns þannig að við erum tilbúin til að stytta biðlist- ana strax. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi er eðlilegt að spurt sé hvað okkur sé þá að vanbúnaði. Hvað Kópavog varðar þá er okkur ekkert að vanbúnaði en bærinn er aftur á móti háður úthlutunum plássa frá ríkinu. Málið strandar þannig á því að við höfum ekki, þrátt fyrir ítrekaðar óskir, fengið vilyrði um úthlutun dag- vistunarrýma. Verkaskiptingin er alveg skýr. Sveitarfélögin sjá um húsnæði fyr- ir dagvistunarúrræði en ríkið úthlutar fjármagni með hverju og einu þeirra. Dagvistunarúrræði kostar 7.000 kr. á dag og sértækt úrræði á borð við það sem heilabilaðir þurfa kostar 15.000 kr. Þetta er því mjög hagstæð þjónusta miðað við til dæmis hjúkrunarheimili. Það er í samræmi við kröfur nútímans að geta lengt þann tíma sem fólk getur búið heima hjá sér um leið og dagvistun léttir á nánustu aðstand- endum, börnum og fjöl- skyldu. Þá er mikill skort- ur á hjúkrunarrýmum og get ég ekki látið hjá líða að minna á að stækkun ríkisins á hjúkrunarheim- ilinu í Boðaþingi hefur dregist úr hömlu, sem aft- ur lengir biðlista eftir dag- vistun. Í ljósi þessara tafa á uppbyggingu í Boðaþingi og langra biðlista sem hafa myndast biðla ég fyr- ir hönd Kópavogsbúa til heilbrigðisráðherra, Svan- dísar Svavarsdóttur, um að okkur verði sýndur skiln- ingur á ástandinu. Ég óska eftir því að tekið verði tillit til þess sem fram kemur í bréfaskriftum til ráðuneyt- isins og prýðilegs fundar sem ég átti með ráðherra og starfsfólki heilbrigð- isráðuneytisins. Undirritaður vill taka fram að það er engin tog- streita Kópavogsbæjar við ríkið sem tefur málið. Hér þurfa aðilar einfaldlega að virða þá verkskiptingu sem er á milli ríkis og sveitarfélaga. Vandinn liggur að mínu mati í því að ríkið hefur ekki úthlutað nægu fjármagni í þessi úrræði. Ég vona að umfjöllun og umræða um þetta mikilvæga mál verði til þess að það verði gripið til aðgerða. Kópavogur getur fjölgað dagvistunarúrræðum aldr- aðra strax, en það verður ekki gert án samstarfs við heilbrigðisráðuneytið. Eftir Ármann Kr. Ólafsson »Dagvistun aldraðra léttir á nánustu aðstandendum, börnum og fjöl- skyldu. Kópa- vogsbær er tilbúinn til að stytta biðlistana strax. Ármann Kr. Ólafsson Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs. Styttum biðlista eftir dagvistun aldraðra strax Lengst af hefurverðmætasköpun verið tiltölulega einhæf í okkar samfélagi og einkum byggst á sjáv- arútvegi, iðnaði og landbúnaði. Á síðustu árum hefur ferðaþjón- ustan dregið vagninn í aukningu hagvaxtar og sköpun betri lífskjara. Nú dregur úr þeirri miklu aukningu eins og vænta mátti. Áfram mun þessi mik- ilvæga atvinnugrein þó skipta okkur mjög miklu máli. En önn- ur tækifæri hafa lítt eða ekki verið nýtt og það er mjög mik- ilvægt að við horfum til fleiri tækifæra til verðmætasköpunar – og þótt fyrr hefði verið. Við stöndum frammi fyrir gríðarlega miklum tækni- framförum sem gjarnan eru kölluð „fjórða iðnbyltingin“. Þær snúast m.a. um að tengja saman fjölmargar tækninýj- ungar sem litið hafa dagsins ljós á síðustu árum og munu koma fram á næstu árum. Öflug fjar- skipti eru lykilatriði þegar kem- ur að þessum málum. Forsenda þeirra er að alvöru uppbygging geti átt sér stað á þessum vett- vangi, þ.e. öflugri tengingar í gangflutningum á milli Íslands, Evrópu og Bandaríkjanna. Samkeppnisforskot Norður- landanna og Írlands felst t.a.m. í mun öflugri fjarskiptateng- ingum til annarra landa en við höfum hér. Slíkar tengingar eru lykilatriði í að laða í auknum mæli starfsemi gagnavera til Ís- lands, en þar er m.a. horft til fjölda ljósleiðara til og frá land- inu sem og öryggis slíkra teng- inga. Ytri aðstæður til starfsemi lengi hefur ágreiningur í þeim málum valdið því að byggðir landsins búa við mjög mismun- andi tækifæri til að geta horft til verkefna sem þessara af ein- hverri alvöru. Þessu verður að breyta. Stöðugur ágreiningur um línulagnir og skortur á framtíðarsýn í uppbyggingu raforku er þegar farinn að hafa mjög skaðleg áhrif og því miður hafa mörg tækifæri víða um land farið forgörðum vegna þessa. Þar höfum við upp á síð- kastið þurft að sjá á bak tæki- færum sem skapað hefðu tugi vellaunaðra starfa á lands- byggðinni. Í raun hefur okkur tekist ótrúlega vel að byggja upp öfl- ugt samfélag fárra íbúa í stóru landi. En við þurfum áfram að hugsa stórt og við eigum ekki að sætta okkur við að leysanleg verkefni, svo sem bættar sam- göngur, efling raforkufram- leiðslu og dreifikerfis raforku, sé orsök þess að við náum ekki treysta þær stoðir landsins sem nauðsynlegar eru, til að skapa hér aðstæður fyrir enn blóm- legra samfélag. Hvatningarorð Einars Benediktssonar, skálds og athafnamanns, eiga við í dag sem fyrr; „reistu í verki, viljans merki – vilji er allt sem þarf“. gagnavera eru mjög já- kvæðar hér á landi t.d. hag- stæð veðrátta með tilliti til kælingar á tölvubúnaði, umhverf- isvæn og sjálfbær raf- orkufram- leiðsla og menntað vinnuafl. Það er ekki að ástæðulausu sem mörg lönd leggja mikla áherslu á uppbyggingu í þess- um iðnaði. Gjarnan verða til klasar gagnavera sem leiða til uppbyggingar þekking- armiðstöðva, gjarnan í dreifðari byggðum, tengdum gagna- vinnslu. Í þessu felast mikil tækifæri fyrir ungt fólk með fjölbreytta menntun og fyrir samfélagið sem slíkt, að greiða leið fyrir virka þátttöku okkar í fjórðu iðnbyltingunni. Við eig- um að setja okkur háleit mark- mið nú þegar í þessum efnum. Stjórnvöld geta og eiga að leika stórt hlutverk í þessum mála- flokki. Best og eðlilegast er að skapa hér aðstæður til að einka- aðilar geti ráðist í nauðsynlegar framkvæmdir, reki og eigi gagnaflutningsleiðir með sama hætti og er á landi. Einnig þarf að leggja áherslu á uppbygg- ingu þessa iðnaðar á lands- byggðinni, líkt og gert er er- lendis. Í þeirri stefnu felst raunveruleg byggðastefna þar sem nýjum stoðum er skotið undir byggð með fjölbreyttara samfélagi íbúa um allt land. Órjúfanlegur hluti uppbygg- ingar á þessum vettvangi er efl- ing raforkuframleiðslu og dreifikerfis raforku. Allt of Eftir Jón Gunnarsson » Stöðugur ágrein- ingur um línu- lagnir og skortur á framtíðarsýn í upp- byggingu raforku er þegar farinn að hafa mjög skaðleg áhrif. Jón Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Vilji er allt sem þarf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.