Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 2

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Kvöldskóli FB Haustönn 2018 Húsasmiðabraut, Sjúkraliðabraut, Rafvirkjabraut, Fab-Lab áfangar Margir áfangar til stúdentsprófs. Skráning í fullum gangi á www.fb.is Kennsla hefst 22. ágúst 2018. Allar nánari upplýsingar á www.fb.is og kvold@fb.is Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Valgarður Gíslason Hrafnhildur er skipulögð og jarðtengd en líka ævintýra- manneskja sem fer í teygjustökk, hoppar í fossa, syndir í köldum sjó og Meðalfellsvatninu þar sem hún býr í sveita- sælu með fjölskyldunni. Hún er framkvæmdastjóri FKA, eins af öflugustu félagasamtökum hér á landi sem sam- anstendur af 1200 félögum en segir þó að mikilvægasta hlutverkið sitt sé að vera mamma. Hvað er FKA? „FKA eru félagasamtök fyrir allar konur í atvinnulífinu sem eiga eða reka fyrirtæki eða eru í stjórnenda- og leið- togastörfum og vilja stórefla tengslanetið sitt, styrkja sjálfa þig og hafa áhrif til eflingar íslensks atvinnulífs.“ Af hverju eru konur í kvennasamtökum eins og þess- um? „Fyrst og fremst til að efla sjálfar sig, stækka tengsl- anetið og ekki síst til að hafa það gaman. Gríðarleg breidd er af konum í samtökunum og koma þær úr öllum greinum atvinnulífsins. Í FKA gefst konum tækifæri til að koma sér á framfæri, gera sig sýnilegar, gefa af sér af reynslu og miðla til þeirra sem eru óreyndari eins og við gerum í gegn- um„mentor“-prógrammið okkar með FKA Framtíð. En samstaða er enn gríðarlega mikilvæg og í krafti fjöldans er FKA hreyfiafl sem sameinast í mikilvægum verkefnum til að ná fram jafnvægi þar sem við þurfum að ná frekari árangri eins og við höfum gert varðandi konur í stjórnir, konur í stjórnendastöðum og sýnileiki kvenna í fjölmiðlum. Allt okkar starf stuðlar að því að íslenskt atvinnulíf einkennist af fjölbreyti- leika öðrum löndum til fyrirmyndar.“ Áhugaverð námskeið sem þú mælir með? „Að vera fram- kvæmdastjóri þessa flotta félags er í raun eitt stórt námskeið því FKA stendur fyrir um 100 við- burðum á ári sem sam- anstanda af; fræðslu- fundum, námskeiðum, fyrirtækjaheimsóknum, ferðum og ráðstefnum.“ Hvert er besta nám- skeið sem þú hefur farið á? „Ef það er eitthvert eitt námskeið sem hefur haft afgerandi áhrif á það hvernig ég vinn sem stjórnandi þá er það án nokkurs efa, mark- þjálfunarnámskeiðið sem ég bætti við mig þegar ég vann hjá Háskólanum í Reykjavík. Þar lærði ég meðal annars virka hlustun, spyrja spurninga á ákveðin hátt og það er mjög mikilvægt tól í stjórnendakassann minn.“ Hvað gerir þú til að dekra við þig? „Að rækta líkama og sál. Byrjaði síð- asta vetur að mæta aftur reglulega í ræktina að lyfta og það er í raun algjört dekur að hugsa vel um sig og fá smá „ME TIME“.“ Hvert er uppáhalds- tískumerkið þitt? „Ég spái lítið í fatamerkjum, horfi frekar á flíkina en þegar kemur að töskum þá er Mich- ael Kors í uppáhaldi.“ Hvaða hönnuð heldur þú upp á? „Ég elska allt frá skartgipalín- unni VERA DESIGN – ótrúlega fallegar vörur með sögu og þjóð- legum bakgrunni.“ Hvað þýðir tíska fyrir þig? „Tíska er alls konar – mér finnst mikilvægast að finna sinn stíl og vera bara þú sjálfur. Auðvitað koma oft tísku- bylgjur sem maður hleypur með – en persónulegur stíll stendur ávallt upp úr.“ Hver er uppáhaldsliturinn þinn? „Fjólublár, bleikur og turkís eru uppáhaldslitirnir mínir en þegar kemur að fötum þá er hinn klassíski svarti allsráð- andi en ég er hrifin af húðlituðum fötum og laxableikur hef- ur síðan verið að detta aðeins inn í hinn svarta fataskáp undanfarið.“ Uppáhaldsíþróttafatnaður? „„BEFIT & KUSK Collection“ buxurnar eru í algjöru uppáhaldi hjá mér. Þetta er íslensk hönnun og saumað af Hrönn Sigurðardóttur. Ég nota buxurnar alltaf í ræktinni því þær eru þægilegar, með háum streng og mjög klæðileg- ar.“ Hvaða hlutur er ómissandi? „Enginn hlutur er að mínu mati ómissandi en ég sný hik- laust við heim ef ég gleymi símanum mínum.“ Hver er mest notaða snyrtivaran í snyrtitöskunni? „MAC varaliturinn – Myth.“ Hver er uppáhaldsverslunin þín? „Veit ekki, sakna þó Karen Millen.“ Hver er uppáhaldsborgin til að versla í? „Ég fer aldrei í sérstakar verslunarferð- ir…gerði síðustu stóru fatakaup á Egils- stöðum í Sentrum þegar ég var stödd á Íslandsmeistaramótinu í fimleikum með dóttur minni. Sætar búðir geta leynst á ýmsum stöðum.“ Áttu þér uppáhaldsflík? „Get ekki verið án Canada Goose úlpunnar minnar þegar það verður kalt í Kjósinni á vet- urna en mamma og pabbi gáfu mér hana þegar ég varð fertug – ein besta og hlýjasta flíkin mín.“ Hver er besti veitingastað- urinn á Íslandi að þínu mati? „Verð að segja „PAMA“ en það köllum við systkinin að vera boðin í mat til mömmu og pabba. Mamma býr til heimagerðar pizzur sem toppa allt og pabbi er einn sá mesti listakokkur sem sögur fara af. Annars er indverskur í uppáhaldi og Austur-Indía fé- lagið.“ Uppáhaldsmorgunmat- urinn? „Á morgnana fæ ég mér yf- irleitt „smoothie“ sem ég geri fyrir alla fjölskylduna eða þá gríska jógúrt með jarðarberjum, bláberjum og múslí. Á sunnu- dögum bakar Bubbi „Ömmu Grétu“ skonsur sem eru bestar í heimi.“ Uppáhaldssmáforrit? „Pinterest “ Hvað skiptir þig mestu máli í líf- inu? „Hamingjan felst í að vera til í núinu og njóta allra litlu hlutanna sem stundum virðast vera svo sjálf- sagðir en eru í raun stærsta gjöfin.“ Fagurkerinn Hrafnhildur Hafsteinsdóttir er framkvæmdastjóri FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu. Mesta hluta starfsævinnar hefur hún unnið að því að efla fólk í gegnum menntun, stjórnun og félagsstörf. Hrafnhildur hefur fjölhæfa menntun frá ólíkum heimshornum og mikla víðsýni eftir að hafa búið erlendis og ferðast um heimsálfurnar sjö. Hún er fagurkeri fram í fingurgóma og kann að njóta lífsins. Elínrós Líndal elinros@mbl.is Hrafnhildur Hafsteins- dóttir er framkvæmda- stjóri FKA á Íslandi. Rose Gold skartgripir frá Vera Design eru í uppáhaldi hjá Hrafnhildi. „BEFIT & KUSK Collection bux- urnar eru í algjöru uppáhaldi hjá mér.“ Laxableikur litur er einkennislitur Hrafnhildar. H austið er einn mest spenn- andi tími ársins með öllum sínum töfrum, haustlægð- um, rigningum og rómantík. Að skipuleggja veturinn er hin besta skemmtun og það hafa allir gott af því að eiga stefnumót við sjálfan sig til að fara aðeins yfir hvað okkur raun- verulega langar í lífinu. Stundum þarf bara aðeins að fínpússa planið til að ná meiri árangri og hleypa inn meiri gleði. Við vöxum sem manneskjur þegar við lærum eitthvað nýtt og leggjum örlítið meira á okkur. Eða þannig er það alla- vega hjá mörgum. Þetta 40 síðna blað er fullt af góðum hugmyndum um hvernig við getum auðgað líf okkar með námi og nám- skeiðum. Einn af viðmælendum blaðsins er Árel- ía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við Há- skóla Íslands. Hún kennir og skrifar bækur en hún rankaði við sér í upphafi ársins og hugsaði með sér: „Hvers vegna lifi ég ekki „first class“ lífi?“ Þá átti hún ekki við að vera það mikill greifi að hún ferðaðist bara um á fyrsta far- rými í flugvélum heldur vildi hún fá meira út úr lífinu. Í viðtali hér í blaðinu segir hún lesendum hvernig hún fór að þessu og hverju það skilaði. Ég veit að þið eigið eftir að fá mikinn innblástur af því að lesa viðtalið við Árelíu Eydísi og auðvitað alla hina skemmtilegu viðmælendurna í blaðinu. Mér fannst merkilegt að heyra hana tala um þetta, „að gera sig upp“, því sjálf hef ég verið að reyna að taka mig á. Hætta að vera þessi týpa sem er alltaf að bíða eftir að þátturinn „Allt í drasli“ banki upp á og ákvað að fara að haga mér eins og fullorðin vitiborin manneskja, ekki eins og óþekkur krakki. Á meðan ég æfi mig í að vera þessi fullorðna vitiborna manneskja hlusta ég á podköst í símanum mínum. Listinn er fjölbreyttur en þó er ég hrifnust af svona þerapíu-podköstum eins og Dear Sugars sem er í umsjón Cheryl Strayed og Steve Almond. Þau segja að heimurinn sé fullur af týndu og einmana fólki í ástarsorg. Það getur vel verið að það sé rétt. Hlustendur senda inn bréf með vandamálum sínum og sjá Strayed og Al- mond um að leysa þau á sinn sjarmerandi hátt. Á þetta get ég hlustað enda- laust. Auðvitað hef ég lært fullt nýtt en yfirleitt stend ég mig að því að verða ennþá þakklátari fyrir líf mitt. Það er nefnilega ekki sjálfgefið að allt sé í jafn- vægi. Í heimi þar sem hraði og kulnun bítast á og allir eru í samkeppni um að sigra heiminn getur ver- ið flókið að finna jafnvægið. En þá þurfum við að hlusta á okkar innri rödd, ekki æða af stað á einhver námskeið eða í eitthvert nám því það er svo mikið í tísku akkúrat núna heldur velja okkar leið sjálf, því þegar við gerum það ger- ist yfirleitt eitthvað óvænt og skemmtilegt. Vonandi kveikir þetta blað í ykkur og fær ykkur til að prófa eitthvað nýtt. Ertu ekki örugglega á fyrsta farrými? Marta María Jónasdóttir Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifaði bókina Sterkari í seinni hálfleik.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.