Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Það sem þjálfunin færir þér: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og aukin vellíðan • Trú á eigin getu, skýrari markmið og meiri árangur • Kynnist nýju fólki, bætir samskiptahæfni og styrkir sambönd • Jákvæðara viðhorf og minni kvíði Farðu þína eigin leið Námskeið hefjast 20-25 ára 18. sept. 16-19 ára 19. sept. og 15. okt. 13-15 ára 20. sept. og 16. okt 10-12 ára 25. sept. og 20. okt. Ókeypis kynningartími 5. september - Skráning ádale.is/ungtfolk Nánari upplýsingar og skráning ádale.is eða í síma5557080 Copyright©2018DaleCarnegie &Associates, Inc. All rights reserved. Gennext_72318_iceland_sept Elínrós Líndal elinros@mbl.is S tefán útskrifaðist frá Berk- lee College of Music 1983 í Boston í Bandaríkjunum. Hann hefur verið starfandi tónlistarkennari og tónlist- armaður síðastliðin 40 ár og komið viða við, m.a. með Ljósunum i bæn- um, Tívolí, Stórsveit Reykjavíkur, Tamla-sveitinni og fjölda annarra hljómsveita. Heimasíða Stefáns er www.stefanstefansson.net en þar má finna mikið af upplýsingum um feril og hljóðupptökur þessa merka lista- manns. Nú geta allir lært tónlist Þú samdir lagið Disco Frisco. Vissir þú að það myndi slá svona vel í gegn? „Já, ég er sekur um að hafa samið og sungið Disco Frisco! Þetta átti að vera ádeila á diskóið sem þá var að ryðja sér inn á tónlistarmarkaðinn. Sumum okkar fannst þetta ekki kúl, en þegar maður er um tvítugt þá er maður kúl, og því samdi ég þennan ádeilusöng sem snerist í höndunum á mér og varð að diskósmelli! Það var reyndar ekki dauðans alvara þarna á ferðinni, þannig að mér finnst bara gaman að heyra þetta í dag. Ég vissi ekki að lagið myndi slá svona ræki- lega í gegn, en það tók aðeins tvo til þrjá daga til að verða ótrúlega mikið spilað af þeim útvarpsrásum sem voru starfandi þá.“ Stefán hefur alltaf haft brennandi áhuga á kennslu og kennslutækni. „Eitt leiddi af öðru og ég fór að setja kennsluefni skipulega á netið. Má þar nefna Tónmenntavefinn, ton- mennt.com, sem margir grunnskólar nýta sér í kennslu, en þar er alls kyns gagnvirkt kennsluefni að finna, svo sem spurningakeppnir, undirleik við íslenska sönglagaarfinn og margt fleira. Hins vegar setti ég af stað fjar- kennsluna við okkar skóla fyrir nokkrum árum www.tonlistar- kennsla.net og gaf notkun hans góða raun. Nemendur sem ekki komust í tíma gátu stundað námið á sínum hraða og þegar þeir vildu. Það hefur reynst nemendum dýrmætt að geta líka rifjað upp með því að spóla til baka í myndböndunum. Hafa nú þeg- ar nokkrir tónlistarskólar nýtt sér þetta fyrir nemendur sína síðastliðin ár. Nú mun vefurinn bjóða upp á nám fyrir einstaklinga hvar sem er á landinu.“ Viðbót við staðarnám í tónlist Hver er sérstaða vefsins og markmið hans? „Við erum fyrsti tónlistarskólinn til að setja á laggirnar formlega fjar- kennslu í tónlist. Þetta hefur enginn að mér vitandi gert áður og það sem er mikilvægt að átta sig á er að þetta nám er samkvæmt aðalnámskrá tón- listarskóla. Þetta léttir líka nem- endum lífið að þurfa ekki að komast í tíma, sem margir eiga erfitt með. Þessu er hins vegar ekki ætlað að koma í staðinn fyrir staðarnám í tón- listarskólum heldur aðeins að vera viðbót.“ Hvaða þýðingu hefur tónlist fyrir þig? „Tónlist gerir einfaldlega lífið ríkulegra og færir tilverunni meiri dýpt. Ég hygg að það sama gildi um aðrar listgreinar. Ef þú kannt að meta tónlist og njóta, sem og mynd- listar, góðra bókmennta, kvikmynda o.s.frv. þá hefur þú einfaldlega tæki- færi til að lifa ríkulegra lífi en ella. Það þarf ekki endilega að vera listin, heldur það að geta notið, sem dæmi fallegrar náttúru og góðs félags- skapar. Þetta hefur maður séð þegar ungt fólk kynnist tónlist, þessum galdri, hve sterk og góð áhrif hún hefur á manneskjur, á hvaða aldri sem er. Og góð áhrif á manneskjur eru gott innlegg í að gera heiminn aðeins betri.“ Gott að gefa út tónlist Hvers vegna er gott að kunna að skapa tónlist? „Tónlistarsköpun er ein af þessum aðgerðum þar sem er útstreymi frá okkur. Það er, eitthvað kemur frá okkur og út til annarra. Í dag er ein- faldlega svo mikið innstreymi, sér í lagi í gegnum alla þessa miðla, að stundum vill það verða yfirþyrmandi. Þess vegna er svo gott að snúa þessu við og setja eitthvað frá sér, sem ég held að sé þörf hjá okkur flestum, með orðum, tónum, dansi eða öðru. Tónlistin er tilvalin til þessa, og for- dómar í garð tónlistarsköpunar fara minnkandi. Í dag þykir sjálfsagt að einhver óreyndur tónlistarmaður með litla sem enga þekkingu á tónlist taki upp lag og gefi út á Youtube. Þetta hefði ekki gengið í mínu ung- dæmi, svo maður taki öldunga- og vitringslega til orða.“ Er eitthvað sem þú vilt sjá breyt- ast með tilkomu tónlistarvefsins? „Ég er að vona að fleiri ungir tón- listarmenn sæki sér almenna tónlist- armenntun. Og kveði niður bábiljur eins og að það að læra nótur geti haft neikvæð áhrif á tónlistarsköpun. Það yrði eins og að segja að Halldór Lax- ness hefði aldrei átt að læra að lesa vegna þess að það myndi hafa haml- andi áhrif á listsköpun hans. Tónlistarskólar eru íhaldssamar stofnanir og það eru ástæður fyrir því. Mikið af því sem þar er hægt að læra er gríðarlega gagnlegt. Tón- listarskólarnir mættu samt vera meira með fingurinn á púlsinum hvað varðar notkun á nútíma tækni til kennslu, það er svo allt annað mál.“ Í miðri tæknibyltingu Hvernig sérðu tónlistina í framtíð- inni? „Ég held að enginn geti sagt til um hvernig tónlistargeirinn á eftir að þróast næstu áratugina. Við erum í miðri tæknibyltingu sem enginn sér fyrir endann á. Hún gerist svo hratt að rétt þegar við erum búin að til- einka okkur eitthvað gerist eitthvað nýtt. En sjálf tónlistin breytist ekki mikið þrátt fyrir að tækin og tólin sem við notum breytist nánast í hverjum mánuði. Tónlist er ann- aðhvort góð eða slæm og sú skil- greining fer fram í kollunum á okkur og þeir breytast á hraða snigilsins.“ Eitthvað að lokum? „Þeim sem hafa áhuga á að nýta sér þennan vef er bent á að hafa sam- band í gegnum www.tonlistar- kennsla.net eða Tónlistarskóla Ár- bæjar www.tonarb.net “ „Ég er sekur um að hafa samið og sungið Disco Frisco“ Stefán S. Stefánsson, skólastjóri Tónlistar- skóla Árbæjar, saxófón- leikari og tónskáld, er landsmönnum kunnur. Það hafa margir dansað við lagið „Disco Frisco“ sem hann samdi hér á árum áður. Tónlistar- kennsla í gegnum netið hefur átt hug hans að undanförnu. Hann segir tónlistina galdur sem breyti fólki. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ljósmynd/Thinkstockphotos Það færist sífellt í aukana að fólk taki hluta af námi í gegnum tölvu. Tónlistarnám er engin undantekning á því. Stefán S. Stefánsson tónlistarmaður segir að upplýsingatæknin nýtist vel við tónlistarkennslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.