Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 17
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 17
L A N G A R Þ I G AÐ LÆ R A
AÐ S TJ Ó R N A F LU GUM F E R Ð ?
UMSÓKNARFRESTUR
2 . SEPTEMBER 2018
STARFSTÖÐ
REYK JAVÍK OG KEFLAVÍK
UMSÓKNIR
ISAVIA . IS/ATVINNA
I S AV I A H E F U R O P N AÐ F Y R I R U M S Ó K N I R U M
N Á M Í F L U G U M F E R Ð A R S T J Ó R N Í J A N Ú A R 2 0 1 9
Isavia annast rekstur íslensku flugleiðsöguþjónustunnar og er eini starfs-
vettvangur flugumferðarstjóra á Íslandi. Flugumferðarstjórar stýra flug-
umferð á flugvöllum á Íslandi og á íslenska flugstjórnarsvæðinu semer
5,4milljónir ferkílómetrar að stærð og eitt það stærsta í heiminum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðkomandi þarf að vera a.m.k. 18 ára og hafa
lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi
• Góð tök á íslensku og ensku í tali og riti
• Viðkomandi þarf að vera góður í mannlegum
samskiptumog sjálfstæður í vinnubrögðum
• Umsækjendur skulu geta staðist læknisskoðun
skv. reglugerð um skírteini flugumferðarstjóra
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinumog einkunnumúr námi.
Hæfir umsækjendur verða boðaðir í inntökupróf.
Sérstök athygli er vakin á því að nemar sem teknir verða inn í grunnnám
í flugumferðarstjórn hjá Isavia í janúar 2019munu ekki greiða skólagjöld.
Þó fullnægjandi árangur náist í námi er það ekki trygging fyrir starfi
hjá Isavia að námi loknu. Hægt er að lesameira um námið á isavia.is,
www.isavia.is/flugumferdarstjori.
Isavia rekur öflugt net flugvalla á Íslandi og flugleiðsöguþjónustu á einu stærsta
flugstjórnarsvæði heims. Hjá Isavia og dótturfélögum vinnur samhentur hópur sem telur
um 1.400manns. Okkarmarkmið er að vera hluti af góðu ferðalagi allra þeirra sem fara
um flugvelli okkar og flugstjórnarsvæði.
gömlum númerum, helstu snjall-
forritunum og þar fram eftir göt-
unum. En maður andar inn og út
og tekur sinn tíma í að koma hlut-
unum í rétt horf. Flest okkar könn-
umst við að þegar við erum komin
yfir erfiðasta hjallann virkar nýja
uppfærslan mun betur en sú fyrri,“
segir Árelía og bætir við hlæjandi:
,,Í sannleika sagt virkar Árelía
2018 nokkuð vel. Smá hnökrar sem
þarf að laga en þannig er það allt-
af.“
Trúir á æðri mátt
Ertu trúuð?
„Já, ég trúi á æðri mátt og Guð.
Eins trúi ég á lögmálið um að þeg-
ar þú setur út hugmynd eða mark-
mið þá komi hlutirnir til þín. Eitt
lítið dæmi um þetta er að frá því ég
ákvað að fara í uppfærsluna hef ég
flogið þrisvar sinnum á fyrsta far-
rými, án þess að borga fyrir það.
Hugsaðu þér það! Inntakið í upp-
færslunni er einmitt að vera snjall-
ari.Sem dæmi þá vil ég endurhugsa
fjármálin þannig að ég auki inn-
komu. Við slíka hugmynd þarf að
finna fleiri tekjumöguleika og
leggja hugann í bleyti.“
Varstu með gamlar hugmyndir
um peninga sem þú þurftir að losa
þig við?
„Já, ekki spurning. Í nýrri upp-
færslu vildi ég hugsa stærra.
Stækka sjóndeildarhinginn og fjár-
málin mín fóru undir þá hugsun.
Að finna fleiri áhugaverða tekju-
stofna er bráðnauðsynlegt fyrir
konu eins og mig.“
Árelía segir að vinkonurnar taki
ötullega þátt í hugmyndinni og
sendi reglulega á hana skilaboð,
jafnvel myndskilaboð, um eigin
uppfærslu. „Þessi uppfærslu-
hugmynd mín er að smitast yfir í
nærumhverfið. Vinkonurnar eru
stór hluti af mínu lífi og þær eru
skemmtilega opnar fyrir þessari
uppfærsluhugmynd.“
52 ára krakkaskratti
Spurð hvaða bók hún sé að vinna í
segist Árelía hafa verið að skila
handriti að nýrri bók; í raun sé hún
á lokametrunum með tvær bækur
en hún vilji sjaldnast tala um þær
fyrir útgáfu. Landsmenn muna eft-
ir bókinni „Sterkari í seinni hálf-
leik“ sem Árelía skrifaði um það
æviskeið sem hún er á núna. Spurð
um aldur segir hún snögg upp á
lagið: ,,Ég er að verða 52 ára, al-
gjör krakkaskratti ennþá!“
Þetta segir hún af einlægni og á
eftir setningunni fylgir mikill hlát-
ur.
Það er á hreinu að skemmtilegri
og lífsglaðari konu er erfitt að finna
á landinu.
Ertu búin að losa þig við allan
efa, ótta og egóið? Er það þess
vegna sem þú ert svona glöð? „Nei,
ég held að við náum því nú seint,
sama hvað maður reynir. Ég upplifi
eins og allir aðrir hugsanir um að
ég sé ekki nóg, að enginn muni lesa
bækur mínar og þar fram eftir göt-
unum. En síðan tala ég bara við
sjálfan mig. Ég er búin að vera
nógu lengi á lífi til að taka bara
sénsinn. Það versta sem gæti gert
er að ég geri mig af fífli.“
Tilgangurinn að miðla
Ertu búin að finna þinn tilgang í
lífinu?
„Já og eflaust þess vegna er ég
svona frjáls að gefa út efnið mitt.
Tilgangur minn er að miðla til
fólks. Ég geri það með því að
stunda rannsóknir, vera kennari,
skrifa bækur og greinar, pistla og
blogg. En einnig með þeirri reynslu
sem ég hef öðlast í lífinu.“
Árelía skildi fyrir tveimur árum
og segir að skilnaðir séu atburðir í
lífinu sem fái fólk til að hugsa hlut-
ina upp á nýtt. ,,Minn skilnaður
fékk mig til að fara upp úr hjólför-
unum og endurskoða svo margt í
lífinu. Það var upphafið að því
breytingaferli sem ég hef verið í.“
Að lokum talar Árelía um mikil-
vægi þess að njóta lífsins. Að líta
ekki á sig sem fórnarlamb í neinum
aðstæðum. ,,Slík hugsun myndi
kalla á ennþá nýrri uppfærslu.
Þessi stöðuga endurhugsun og upp-
færsla svo ég geti notið lífsins er
nauðsynleg. Það er mitt markmið í
lífinu.“
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Stór þáttur í námi Söngskólans er að þjálfa nem-
endur í að koma fram og tjá sig í söng, leik og
hreyfingum.
Námið veitir nemendum ómælda gleði og
byggir upp sjálfstraust.
Nemendaóperan hefur verið starfrækt allt frá
árinu 1982 og sett upp hátt í 50 uppfærslur, bæði í
heimabyggð, Reykjavík, og á ýmsum stöðum á
landsbyggðinni.
Fyrir utan þetta almenna söngnám býður skól-
inn upp á ýmis námskeið; söngnámskeið utan
venjulegs vinnutíma, fyrir söngáhugafólk á öllum
aldri, ýmis meistaranámskeið og fyrirlestra fyrir
söngnemendur, söngvara og söngkennara.
22. ágúst næstkomandi fara fram inntökupróf í
Söngskólann, allir umsækjendur þreyta inntöku-
próf.
Söngur gleður
Ljósmynd/Thinkstockphotos
Söngnámskeið
utan venjulegs
vinnutíma fyrir
söngáhugafólk
á öllum aldri
eru vinsæl.
Söngskólinn í Reykjavík fagnar 45 ára afmæli í haust. Hátt í fimm
þúsund nemendur hafa stundað nám við skólann. Nemendur skól-
ans eru víða um heiminn starfandi við söng. Boðið er upp á söng-
nám fyrir stúlkur og stráka frá 11 ára aldri.