Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
N
ámskeið geta opnað fólki
ýmsar dyr. Tungu-
málakúrs getur leitt til
ferðalaga á framandi
slóðir, bókmennta-
námskeið veitt nýja sýn á mergjuð
verk, og svo eru vitaskuld starfs-
tengdu námskeiðin sem varða leið-
ina að velgengni á vinnumarkaði.
En síðan eru námskeiðin sem
verða hreinlega til þess að líf fólks
tekur nýja og betri stefnu. Fyrir
Snorra Ingason var það nám í fugla-
leiðsögn sem beindi honum á alveg
nýja braut. „Ég hafði menntað mig í
viðskiptafræðum og frá 1986 unnið
við markaðs- og sölustjórnun hjá
ýmsum góðum fyrirtækjum. Árið
2011, þá orðinn fimmtugur, var ég í
vel launuðu starfi sölustjóra hjá
bókaforlagi en þyrsti í að gera eitt-
hvað annað,“ segir hann.
Vildi komast úr kjallaranum
Snorri minnist vinnuaðstöðu sinnar í
kjallararými í gömlu húsi í Vest-
urbænum. „Mig dreymdi um að
komast út undir bert loft og vera í
náttúrunni. Starfið snerist einkum
um ferðabækur og kort og reyndi ég
að haga vinnunni þannig að ég gæti
verið sem mest utan skrifstofunnar,
upptekinn við að koma sendingum
til kaupenda um land allt.“
Snorri hafði líka þróað með sér
áhuga á fuglum um þetta leyti. „Ég
var loksins búinn að ná þeim aldri að
hafa þroskann og þolinmæðina til að
skoða fugla,“ segir hann glettinn.
„Vorið 2011 álpaðist ég síðan á nám-
skeið í fuglaleiðsögn og lét mig
hlakka til að geta farið með fólk í
ferðalög um landið til að sýna þeim
fugla. En svo rann upp fyrir mér að
ég þyrfti að geta sýnt ferðalöngum
fleira en fallega fugla, og vissara
væri að stíga skrefið til fulls – svo ég
skráði mig í leiðsögunámið hjá End-
urmenntun HÍ.“
Ekki var nóg með að Snorri afréði
að fá leiðsöguréttindi og skipta um
starfsvettvang, heldur smitaði hann
sambýliskonu sína Bogu Kristínu af
áhuganum og luku þau leiðsög-
unáminu saman. „Hún hafði að-
allega unnið við sölustörf í ferða-
þjónustugeiranum, og við höfðum
ferðast mikið um landið. Við sáum
bæði að nú væri ráð að breyta til,
seinni hálfleikur lífsins að hefjast,
börnin farin að heiman og nægilegt
fjárhagslegt svigrum til að geta
kvatt vel launuð sölu- og stjórn-
unarstörf.“
Í nógu að snúast árið um kring
Er óhætt að segja að Snorri og
Boga hafi valið hentugan tíma til að
skipta um starfsvettvang því um það
leyti sem þau ljúka leiðsögunáminu
er mikið uppgangstímabil að hefjast
í ferðaþjónustunni og enginn skort-
ur á vinnu fyrir leiðsögumenn.
Snorri segir samt að fyrsta árið hafi
ekki verið auðvelt og verk-
efnaframboðið mjög sveiflukennt.
„Nóg var að gera yfir sumarmán-
uðina en veturnir rólegir, en það
breytist þegar hópferðafyrirtækin
byrja að bjóða
upp á norður-
ljósaferðirnar. Í
dag er svo komið
að yfir vetrartím-
ann má reikna
með að í kringum
tíu rútur haldi af
stað frá BSÍ hvert
einasta kvöld í leit
að norðurljósum
til að sýna erlend-
um ferðalöngum og þarf leiðsögu-
mann í hverja rútu.“
Ef sumir lesendur skyldu sjá
nýjan starfsvettvang Snorra og
Bogu í hillingum þá segir Snorri að
þó það geti vissulega verið gaman
að vinna sem leiðsögumaður þá
henti starfið ekki öllum og þyki illa
borgað. „Tímakaupið er rétt innan
við 2.000 kr en leiðsögumenn geta
haft það alveg ágætt með mikilli
vinnu. Gefur ágætlega í aðra hönd
að fara í átta daga ferð og vera
kannski að 12-14 tíma á dag, en þá
verður líka að muna að vinnan kall-
ar á að vera að á sunnudögum og
almennum frídögum,“ útskýrir
Snorri og bætir við að hann sjái alls
ekki eftir að hafa tekið stökkið yfir
í leiðsögugeir-
ann. „Starf leið-
sögumannsins
kallar ekki
endilega á mik-
ið líkamlegt
þrek, enda oft-
ast farið á milli
staða á bíl og
ekki algengt að
þurfa að labba
mikið á fjöllum,
en engu að síður getur verið lýjandi
að hafa 30-40 manns í sinni umsjá –
fólk af öllum gerðum og með mis-
munandi þarfir og kröfur. Sumir
taka inn á sig það versta í þessu
starfi og halda það ekki út en leið-
sögumaður þarf að hafa þann eig-
inleika að vera í senn kærulaus og
agaður og taka það ekki of nærri
sér þó ekki séu allir viðskiptavin-
irnir eins og hugur manns.“
Lífið tók nýja stefnu eftir
endurmenntunarnámskeið
Snorri Ingason var orð-
inn fimmtugur þegar
hann lét drauminn ræt-
ast og fór í leiðsögu-
nám. Hann kvaddi skrif-
borðsvinnu og sýnir
núna erlendum ferða-
löngum landið.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Mig dreymdi um að komast út undir bert loft og vera í náttúrunni, “ segir
Snorri Ingason sem áður vann ágætlega launaða innivinnu hjá bókaforlagi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eftirspurn er eftir leiðsögufólki árið um kring og getur verið gaman að sýna erlendum gestum það sem landið hefur upp á að bjóða. Ferðamenn við Dettifoss.
Sumir taka inn á sig það
versta í þessu starfi og
halda það ekki út en leið-
sögumaður þarf að hafa
þann eiginleika að vera í
senn kærulaus og agaður
Víkkar sjóndeildarhringinn
Erasmus+
eykur áhuga, víðsýni og færni
Taktu skrefið og kynntu þér þá möguleika sem
standa þér til boða á erasmusplus.is
6.600 Íslendingar hafa farið utan í skiptinám við evrópska háskóla
9.900 Íslendingar hafa tekið þátt í æskulýðssamstarfi
2.200 íslenskir starfsnámsnemar hafa notið stuðnings til náms og starfsþjálfunar í Evrópu
8.400 íslenskir starfsmenn í mennta- og æskulýðsgeiranum hafa farið í heimsóknir til Evrópu