Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 23

Morgunblaðið - 17.08.2018, Page 23
Marta María Jónasdóttir mm@mbl.is O rðið flugumferðarstjóri skýrir sig nokkurn veginn sjálft. Við sjáum til þess að umferð flugvéla og ann- arra loftfara gangi smurt og örugglega fyrir sig. Flugumferð- arstjórar fá snemma í náminu sérhæf- ingu í turni, aðflugi eða yfirflugi. Í stuttu máli hefur starfsmaður í turni yfirumsjón með allri umferð á flugvell- inum sjálfum, sem og flugtaki og lend- ingu. Aðflugið tekur þá við og kemur vélum annaðhvort inn til lendingar eða frá flugvellinum. Í áframhaldandi klifri véla tekur yfirflugið við og stýrir vél- um í næsta aðliggjandi flugstjórn- arsvæði.“ Hvernig kom það til að þú ákvaðst að læra flugumferðarstjórn? „Frá því að ég var barn hef ég verið heilluð af flugi, litið upp þegar ég heyrði í flugvél og skimað. Áhuginn hjá mér kviknaði þó fyrst af alvöru í kennslustund í veðurfræði við Háskóla Íslands þar sem kennarinn var að kynna okkur flugveðurfræði. Ég sótti um starf sem fluggagnafræðingur hjá Isavia en þar kynntist ég flugumferð- arstjórninni betur. Að vinna í þessu skemmtilega umhverfi jók áhugann og þegar Isavia auglýsti eftir nemendum í flugumferðarstjórn sló ég til og sé ekki eftir því.“ Hvernig er þetta nám? „Námið er þannig uppsett að nem- endur byrja í almennu bóklegu námi. Að því loknu er bekknum skipt í hópa sem sérhæfa sig í turni, aðflugi eða yf- irflugi. Bóklega náminu er áfram hald- ið í sérnáminu en þar er einnig rík áhersla lögð á verklega þáttinn sem fer fram í hermi. Þá tekur að lokum við starfsnám þar sem nemendur stýra flugumferð undir umsjón kennara.“ Hvernig líkaði þér í náminu? „Þetta er mjög krefjandi og erfitt nám. Nemendur vinna náið með kenn- urum og fá stöðugt að kynnast nýjum raunverulegum verkefnum. Námið er ólíkt því sem ég hef áður kynnst en það er mjög lítið svigrúm gefið fyrir mistök og það þarf alltaf að hafa 100% einbeitingu. Námið er samt sem áður það skemmtilegasta sem ég hef stund- að, gríðarlega fjölbreytt og engir tveir dagar eins.“ Hvaða eiginleikum þarf maður að vera gæddur til þess að geta orðið góð- ur flugumferðarstjóri? „Starfinu fylgir mikil ábyrgð og mikilvægt er að geta tekið réttar ákvarðanir hratt. Flókin vandamál geta komið upp undir mikilli pressu og þá þarf oft að grípa í plan B, C eða jafnvel D.“ Hvernig er andrúmsloftið í vinnunni? „Stemningin í vinnunni er mjög góð og félagslífið öflugt. Einnig er gaman að eiga í samskiptum við flugmenn og aðra flugumferðarstjóra um allan heim.“ Hvernig líkar þér að vinna sem flug- umferðarstjóri? „Ég er með sérhæfingu í yfirflugi og starfa því í flugstjórnarmiðstöðinni sem staðsett er í Reykjavík. Staðsetn- ingin og vaktavinnan henta mér mjög vel. Ég hlakka til að mæta í vinnuna og geri mér grein fyrir því að það er ekki sjálfgefið.“ Hvar sérðu sjálfa þig eftir fimm ár? „Símenntun er mikilvægur hluti af starfinu, enda reglur og tækni í sí- felldri þróun. Ég verð komin með aukna reynslu og meiri réttindi og held áfram að rokka þetta.“ Áhuginn kvikn- aði í veðurfræði Erna Katrín Árnadóttir flugumferðarstjóri í flug- stjórnarmiðstöð segir að símenntun sé nauðsyn- leg. Hún segist vera alsæl með að hafa ákveðið að læra flugumferðarstjórn og segir að það sé alltaf gaman í vinnunni. Ljósmynd/Heiða Helgadóttir Erna Katrín Árnadóttir flugumferðarstjóri segist vera í draumastarfinu. FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 23 Viltu gerast vinur JSB? Danslistarskóli JSB er á facebook Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • jsb@jsb.is • www.jsb.is Nám og kennsla Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem listdansskóli á grunn- og framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB. Kennslustaður: Danslistarskóli JSB í Reykjavík, Lágmúla 9. E F L IR / H N O T S K Ó G U R Kennsla hefst 5. september Rafræn skráning er á jsb.felog.is. Nánari upplýsingar í síma 581 3730. Jazzballett Skemmtilegt og fjölbreytt dansnám fyrir stelpur og stráka frá 6 ára aldri. Í boði eru byrjenda- og framhaldshópar á aldrinum 6-7 ára, 8-9 ára, 10-12 ára, 13-15 ára og 16 ára og eldri. Uppbyggileg dansþjálfun sem veitir nemendum útrás fyrir dans- og sköpunargleði. Unnið er með fjölbreytta tónlist í tímum. Frábært dansnám sem eflir og styrkir nemendur, bæði líkamlega og andlega. Forskóli fyrir 3-5 ára Skemmtilegt og þroskandi dansnám fyrir börn á aldrinum 3-5 ára. Dansgleði og hreyfifærni nemenda virkjuð í gegnum dans og leiki. Kennt er 1x í viku. Vertu með í vetur! Innritun fyrir haustönn stendur yfir á www.jsb.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.