Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 24

Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 24
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is N ámsflokkar Reykjavíkur sem eru elsta fullorð- insfræðslustofnun lands- ins, hófu starfsemi í febrúar árið 1939 og verða því 80 ára á næsta ári. Frá upphafi hefur starfsemin þróast í takt við þarfir samfélagsins og segir Iðunn Antons- dóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykja- víkur, áhugavert að sjá hve framsýnn hópur fólks setti stofnunina á lagg- irnar: „Strax í upphafi er mörk- uð sú stefna að gera samfélaginu gagn og fylla upp í skörð í framboði menntunar,“ segir hún. „Framan af fólst starfið eink- um í að hjálpa fólki með stutta skólagöngu að auka menntun sína, en kennslan hefur þróast í sífellu í takt við óskir almennings hverju sinni um fræðslu á ólíkum sviðum.“ Námsflokkar Reykjavíkur hafa líka frá upphafi státað af einvalaliði kennara og ráðgjafa sem leggja all- an sinn metnað í að liðsinna nem- endum. „Gaman að segja frá því að á meðal þeirra fjölmörgu kennara sem unnið hafa hjá okkur eru tveir forsetar lýðveldisins, þau Vigdís Finnbogadóttir og Kristján Eld- járn,“ upplýsir Iðunn. Virkja og efla Í dag er aðalhlutverk Námsflokk- anna að styðja við fólk sem þarf hvatningu til að koma aftur undir sig fótunum og þannig bæta eigin lífs- gæði. „Þessir nem- endur eiga það sameiginlegt að eiga lögheimili í Reykjavík, vera á endurhæfing- arlífeyri hjá Tryggingastofnun Íslands og hafa notið fjárhags- aðstoðar frá Reykja- víkurborg. Við leggjum okkur fram við að mæta nemendum á þeirra forsendum og gera þá færari í að takast á við vinnu og nám og verða virkari sem samfélagsþegnar.“ Námið er kynjaskipt; annars vegar er Kvennasmiðja og hins vegar Karlasmiðja. Kennt er í 10- 15 manna hópum, 4-5 sinnum í viku og varir námið frá 9 upp í 18 mán- uði. „Við bjóðum fram ýmsar hefð- bundnar námsgreinar en kennum þær á sumpart óhefðbundinn hátt og t.d. eru enska og íslenska kenndar saman og þá í gegnum Njálu og Eglu. Verklegt og list- rænt nám er líka veigamikill þáttur í Kvenna- og Karlasmiðju og geta nemendur t.d. lagt stund á grafíska hönnun, saum, silfursmíði, útskurð og stuttmyndagerð.“ Bakhjarlar unga fólksins Hjá Námsflokkum Reykjavíkur er líka rekið öflugt starf til stuðnings 16-20 ára ungmennum sem þurfa leiðsögn og hvatningu. Er um að ræða verkefni sem unnið er í sam- starfi við Mennta- og menningar- málaráðuneytið og Fjölbrautaskól- ann við Ármúla. „Við erum með námsleiðina Námskraft sem stend- ur þeim til boða sem hafa hætt í skóla eða ekki byrjað nám á fram- haldsskólastigi,“ segir Iðunnn. „Nemendurnir fá mikla ráðgjöf og hverjum hópi fylgir sérstakur hóps- stjóri sem er náms- og starfs- ráðgjafi.“ Í Námskrafti læra nemendur heimspeki, stærðfræði, listrænar og verklegar greinar og segir Iðunn að það sé engin tilviljun að þessi fög hafi orðið fyrir valinu: „Mikil breidd er í hverju námskeiði og leitum við að styrkleikum hvers og eins. Þegar nemandinn hefur fund- ið það sem hann er góður í og hef- ur gaman af þá veitir það honum vonandi hvatann til að takast á við hin fögin og njóta sín í náminu.“ Ungu fólki stendur líka til boða að taka þátt í námsleiðinni Starfs- kraftur. „Um er að ræða bóka- lausan áfanga sem er ætlaður ung- mennum sem hafa ekki áhuga á bóknámi en þurfa engu að síður að efla sig til að standa betur að vígi á vinnumarkaði og verða góðir starfs- kraftar,“ segir Iðunn. „Í þessu námi leggjum við áherslu á sjálfs- eflingu í víðum skilningi og leitum að styrkleikum nemendanna. Þátt- takendur fara síðan í starfsþjálfun, t.d. við afgreiðslustörf, á leik- skólum, hjá garðyrkjustöðvum eða hjá fyrirtækjum borgarinnar en halda áfram að vera hjá okkur tvisvar í viku.“ Iðunn segir að stundum kvikni áhugi hjá ungmennunum að setjast aftur á skólabekk og er þá tíminn hjá Námsflokkum Reykjavíkur bú- inn að veita þeim ágætan undirbún- ing: „Þau ljúka t.d. námi í skyndi- hjálp sem veitir þeim eina fram- haldsskólaeiningu og getur það verkað hvetjandi. Nemendum sem lokið hafa Starfskrafti er velkomið að færa sig yfir á Námskraft á næstu önn og geta þannig búið sig enn betur undir að halda áfram námi.“ Hjálpa nemendum að ná lengra Í dag byggist starf Námsflokka Reykjavíkur einkum á að efla og styðja ungt fólk sem hefur helst úr námi og fullorðna sem þurfa á hvatningu að halda til að koma undir sig fótunum í vinnu og einkalífi. Morgunblaðið/Ómar Þeir sem hugnast ekki bóknám geta prófað Starfskraft sem felur m.a. í sér starfsþjálfun s.s. við afgreiðslustörf. Iðunn Antons- dóttir 24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Vetrarstarfið er að hefjast – verið velkomin til okkar Nánari upplýsingar og skráning á simenntunha.is - sími 460 8090 NÁM SAMHLIÐA STARFI Stjórnendanám – hefst 2. sept. Leiðsögunám – hefst 3. sept. Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun – hefst 10. okt. NÁMSKEIÐ Á MEISTARASTIGI Málörvun og læsi – hefst 4. sept. Læsi til náms – hefst 4. sept. Menntun og upplýsingatækni – hefst 4. sept. Uppbygging og þróun lærdómssamfélags – hefst 4. sept. Lýðræði, mannréttindi og fjölmenning – hefst 4. sept. Listmeðferð I: Grunnnámskeið – hefst 16. nóv. Listmeðferð II: Grunnhugtök, aðferðir, kenningar – hefst 7. sept. UPPELDI OG KENNSLA Kvíði barna og unglinga (foreldrar) – 20. sept. og 3. okt. Hagnýtar, einfaldar og jákvæðar aðferðir í kennslu – 20. sept. og 3. okt. CAT–kassinn og CAT–appið – 1.okt. HEILBRIGÐIS– OG FÉLAGSVÍSINDI Family Nursing Externship – vinnustofa með Bell og Wright – 9.–12. okt. Heimilis– og kynferðisofbeldi gegn börnum – 10. okt. STJÓRNUN Stjórnun álags og streitu – 20. sept. Fyrirlestrartækni: Frá orði til áhrifa – 11. okt. FJÁRMÁL OG REKSTUR Rekstrarkostnaður: Sérstök og frjáls álagning atvinnuhúsnæðis –11. sept. Áætlanagerð í rekstri – 19. okt. TUNGUMÁL Spænska II – hefst 4. sept. Ítalska I – hefst 17. sept. MENNING Hin hliðin á Tenerife – 30. ágúst Á slóðum fonsagna – tríólógía – 18.-20. sept. Náms- og starfsráðgjafar Náms- flokka Reykjavíkur eru til taks fyrir alla sem þangað leita. Það getur ver- ið gagnlegt að setjast niður með ráðgjafa og t.d. reyna að finna rétta stefnu í námi, fá hjálp við að leysa úr örðugleikum og kannski koma auga á nýja möguleika. „Náms- og starfsráðgjafar geta líka hjálpað fólki að leysa ýmis konar persónu- legan vanda og mörgum sem þykir gott að eiga trúnaðarsamtal við menntaðan ráðgjafa. Náms- og starfsráðgjafar geta einnig leiðbeint um hvernig ná má betri árangri í námi, kennt námstækni og að- stoðað við skipulag heimavinn- unnar,“ segir Iðunn. Meðal þeirrar þjónustu sem náms- og starfsráðgjafar veita er að gera áhugasviðsgreiningu en niður- stöðurnar geta gefið dýrmætar vís- bendingar um hvaða nám og störf væri réttast að skoða. Áhugasviðs- greining gagnast t.d. þeim sem eiga erfitt með að gera upp við sig hvaða braut væri rétt að velja í framhalds- skóla, eða hvaða nám ætti að skoða í háskóla, en niðurstöður greiningar- innar geta líka nýst fólki sem telur sig vita alveg hvert það stefnir en gæti kannski komið auga á aðrar leiðir í námi og starfi, ellegar stað- fest að það sé á réttri braut. „Grein- ingin getur varpað ljósi á hvar styrk- leikarnir liggja og í hvaða störfum þessir styrkleikar gætu nýst vel,“ segir Iðunn. Morgunblaðið/Styrmir Kári Veistu hvað þú vilt læra?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.