Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 25
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 25
Ballettskóli Guðbjargar Björgvins býður upp nám í klassískum ballet og nútímadansi frá 3. ára aldri.
Einnig er boðið upp á ballet fyrir fullorðna. Innritun er hafin á www.ballet.is, kennsla fer fram á Eiðistorgi, Seltjarnarnesi
Nánari upplýsingar hjá info@ballet.is og í síma 5349030
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
I
ngibjörg dansaði í sýningum Þjóðleik-
hússins og víðar frá unga aldri, var síð-
an kennari og skólastjóri við Listdans-
skóla Þjóðleikhússins sem síðar varð
Listdansskóli Íslands. Hún hefur
samið dansa og hreyfingar fyrir fjöl-
mörg sviðsverk og einnig nokkur
verk fyrir Íslenska dansflokkinn.
Undanfarin ár hefur hún sérhæft
síg í eldri dönsum, þ.e. miðalda-,
endurreisnar- og barokkdönsum.
Að komast nær
tónlistinni með dansi
Námskeiðið sem hún heldur hefur
oftast einfaldlega verið kallað Barokk-
dans og hefur verið opið öllum tónlist-
arnemum og -kennurum. Það er haldið á
vegum Listaháskóla Íslands.
„Markmiðið er fyrst og fremst að komast
nær þessari tónlist. Talsvert af tónlist bar-
okktímans er danstónlist og með því að
kynnast og læra þau spor og dansmynstur
sem voru sköpuð við þessa tónlist er
mögulegt að komast nær túlkun hennar. Má
þar t.d. nefna áherslur, hraða en fyrst og
fremst stíl, t.d. glæsileika menúettsins, létt-
leika bourrée, samspil dansara í gavotte og
svo mætti lengi telja.“
Ingibjörg segir að til að nálgast þessi
markmið séu í fyrstu lærð undirstöðusporin
sem séu raunar mjög einföld. „Því eru
kenndir aðeins eldri dansar, t.d. pavan, sem
eru eingöngu byggðir á þessum einföldu
sporum en „gefa tóninn“ varðandi það sem
koma skal. Síðan eru kynntar breytingarnar
sem urðu á þessum sömu sporum og spora-
samsetningum á barokktímanum. Einnig er
farið í mismunandi hneigingar og æfðar
handa- og armhreyfingar. Síðan eru lærðir
heilir dansar sem flestir eru skráðir niður
um og upp úr 1700. Tekið skal fram að bar-
okkdansar eru nokkuð flóknir og það tekur
tíma að læra hvern dans. Því kenni ég oft
líka nokkra einfalda enska sveitadansa sem
voru farnir að sækja á á þessum tímum, t.d.
við hirð Lúðvíks 14. Dansmeistarar hans
höfðu þó aðeins farið um þá höndum, fágað
og stílfært.“
Barokkdans þarf að dansa með glæsibrag
Ingibjörg segir að barokkdans þurfi að dansa
með glæsibrag. „Einfaldur glæsileiki á að
einkenna hann, engin tilgerð. Dansarinn þarf
að hafa góða tilfinningu fyrir tónlistinni og
rýminu sem dansað er í og hafa gott vald á
líkama sínum. Einnig verður samspil dansara
að einkennast af virðingu og ánægjunni af
því að dansa saman.
Öll hreyfing hefur góð áhrif á heilsuna.
Dansinn hreyfir allan líkamann; þó svo að
mest reyni á fætur er dans ekki dans nema
allur líkaminn sé með. Dans er alhliða, hæg
og nákvæm þjálfun sem reynir jafnt á tækni,
þol og listræna eiginleika. Tónlistin er afar
mikilvægur þáttur. Hvort sem dansaður er
hraður og krefjandi dans eða mjúkur og seið-
andi gefur hann dansaranum tækifæri til
þess að njóta þess að finna valdið sem hann
hefur yfir líkama sinum og finna hvernig tón-
listin ber hann um rýmið. Fátt er heilsusam-
legra, bæði líkamlega og andlega, en finna
gleðina sem fylgir því að dansa.“
Að geta hlakkað til sérhvers dags
Spurð hvað dans geri fyrir fólk segir hún að
fólk sem á og hefur átt við andlega vanheilsu
að stríða hafi leitað í dansinn til að létta á
erfiðleikum sínum. „Eins konar alþýðulækn-
ing sem hefur verið kunn í fleiri aldir. Nú á
tímum er dansþerapía eitt af meðferð-
arúrræðum fyrir fólk sem á við þessa van-
heilsu að stríða.“
Það sem skiptir Ingibjörgu sjálfa mestu
máli er fyrst og fremst fjölskyldan.
„Heilsan og vinir. Það að geta hlakkað til
sérhvers dags, jafnvel þótt það rigni,“ segir
hún að lokum.
Dansinn eflir andlega heilsu
Ingibjörg Björnsdóttir nam við
Listdansskóla Þjóðleikhússins
og Scottish Ballet School í Ed-
inborg auk þess að taka þátt í
námskeiðum í ýmsum stíl-
brigðum dansins víða um lönd.
Undanfarin ár hefur hún sér-
hæft síg í eldri dönsum, þ.e.
miðalda-, endurreisnar- og
barokkdönsum.
Ljósmynd/Aðsend
Dansinn hreyfir allan líkamann
og framkallar mikla gleði.
Ingibjörg Björnsdóttir er lands-
mönnum kunn fyrir einstaka
hæfileika í dans og kennslu.