Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 26
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is F ramboð námskeiða hjá Endurmenntun HÍ er svo mikið að ekki er hlaupið að því að henda reiður á þeim öllum. „Að meðaltali eru um 200 styttri námskeið á dag- skrá hjá Endurmenntun á hverju misseri, bæði starfstengd og per- sónuleg, auk lengri námsbrauta eins og ökukennaranáms og leið- sögunáms sem spanna allt að þrjú til fjögur misseri,“ segir Áslaug Björt Guðmundardóttir, markaðs- og viðskiptastjóri EHÍ. Að sögn Áslaugar ber framboðið í haust þess greinileg merki að landsmönnum er umhugað um að rækta sál og líkama. „Bæði má finna styttri námskeið um ýmsar hliðar jógaiðkunar og núvitundar og lengri námsbrautir á borð við Hug og heilbrigði, þar sem engar forkröfur eru gerðar til nemenda, yfir í diplómanám á meistarastigi í jákvæðri sálfræði.“ Að læra huggulegheit Eitt besta dæmið um þessa þróun í námskeiðaúrvalinu er stutt kvöld- námskeið sem haldið verður þann 26. september þar sem kafað verð- ur ofan í þá dönsku list að hafa það huggulegt. Yfirskrift nám- skeiðsins er Aukum eigin lífsgæði og hamingju með – HYGGE og á heimasíðu Endurmenntunar er auglýsingin fyrir námskeiðið myndskreytt með makindalegum ketti í mjúku fleti. „Okkur fannst upplagt að nota kött sem einkenn- ismynd námskeiðsins enda fáir sem kunna það betur en kettir hafa það huggulegt og notalegt,“ segir Áslaug en kennarar á nám- skeiðinu eru Kristín Linda Jóns- dóttir sálfræðingur og Anna Jóna Guðjónsdóttir ráðgjafi. Áslaug segir ekki öllum gefið að kenna huggulegheit á danska vísu, en bækur um hygge seljast nú eins og heitar lummur um allan heim og grunar marga að frændur okk- ar Danir hafi fundið lykilinn að lífshamingjunni með þeim siðum, viðhorfi og lífsstíl sem hygge stendur fyrir. Hygge, segir Áslaug, snýst um meira en að gefa sér tíma í dagsins amstri til að slaka á með öl í glasi eða góðan ostbita á diski. „Dönsk huggulegheit snerta á því hvaða venjur fólk temur sér í sínu daglega lífi, hvernig það gerir notalegt í kringum sig bæði á heimili og vinnustað, og hvernig samskiptin eru við annað fólk.“ Fyrir þá sem vilja taka „danskheden“ enn lengra, bendir Áslaug einnig á dönskunámskeið Casper Vilhelmsen og námskeið Charlotte Bøving um danska menningu og samfélag séð í gegn- um danska sjónvarpsþætti. „Nám- skeiðin fara bæði fram á dönsku og henta vel þeim sem vilja með þess- um hætti þjálfa sig í dönsku tal- máli.“ Tenerife og bókmenntagrúsk Í haust eru jafnframt mörg nám- skeið á dagskrá sem kennd hafa verið við miklar vinsældir í árarað- Frá dönskum huggulegheit- um yfir í Trump og Hitler Íslendingasagnanám- skeiðin verða á sínum stað hjá Endurmenntun og hægt að fræðast um nýjar hliðar á ævintýra- eyjunni Tenerife. Morgunblaðið/Hari Áslaug segir námskeið um sjálfsrækt áberandi á haustönn og t.d. hægt að fræðast um jóga og núvitund. 26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 FJARNÁM Skráning á haustönn fer fram dagana 22. ágúst til 3. september á slóðinni www.fa.is/fjarnam Átt þú rétt á styrk ? Sjómennt er fræðslusjóður sjómanna og útgerðarfélaga Sjómennt styrkir starfsmenntun sjómanna beint til fyrirtækja í útgerð. Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Sjómenntar Kynntu þér rétt þinn á www.sjomennt.is Sjómennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sjomennt@sjomennt.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.