Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 27
ir. Eitt af þessum námskeiðum
fjallar um sólstrandaparadísina Te-
nerife. „Tenerife er einn vinsælasti
áfangastaður íslenskra ferðalanga
og liggur straumurinn til Kan-
aríeyja árið um kring. Snæfríður
Ingadóttir kennir námskeiðið og
varpar þar ljósi á nýjar og minna
þekktar hliðar eyjunnar. Snæfríður
hefur skrifað leiðsögubók um Te-
nerife og veitir fólki innblástur til
að kynnast eyjunni með öðrum
hætti í næstu heimsókn, enda
margt annað í boði en hvítar
strendur og hótelbarir,“ segir Ás-
laug.
Bókmenntatengd námskeið hafa
verið fastur liður hjá Endur-
menntun frá upphafi og vill Áslaug
m.a. vekja sérstaka athygli á nám-
skeiðinu Draugar og dulræn fyr-
irbæri í íslenskum bókmenntum
sem Auður Aðalsteinsdóttir kennir.
„Hið andlega og dulræna hefur
verið áberandi í verkum íslenskra
höfunda bæði að fornu og nýju og
skoðar námskeiðið meginþræði og
birtingarmyndir hins yfirskilvitlega
í völdum íslenskum skáldsögum,
allt frá Sjálfstæðu fólki til Ha-
nami.“
Íslendingasagnanámskeið á
þremur mismunandi námskeiðs-
tímum eru á dagskrá í haust, og öll
í umsjón Ármanns Jakobssonar.
„Mjög stór hópur fólks sækir þessi
námskeið og margir koma til okkar
ár eftir ár til að fræðast betur um
Íslendingasögurnar,“ upplýsir Ás-
laug. „Í haust verður kafað ofan í
Gísla sögu, Gunnlaugs sögu og
Hrafnkels sögu og fer það orð af
Ármanni að hann komi efninu til
skila á lifandi og skemmtilegan
hátt.“
Að sögn Áslaugar finnst mörg-
um að námskeiðin dýpki mjög
skilning þeirra á bókmenntaarf-
inum. „Þar gefst tækifæri til að
skoða sögurnar frá mismunandi
sjónarhornum og kynnast skoð-
unum annarra á sögupersónum og
söguþræði. Margir sækja líka í
þann góða félagsskap sem nám-
skeiðin veita þar sem kynnast má
öðru fólki sem hefur dálæti á forn-
sögunum.“
Til að reyna að skilja Trump
Endurmenntun skipuleggur líka
námskeið sem kryfja málefni sam-
tíma og fortíðar. Magnús Sveins-
son kennir eitt námskeið af þess-
um toga í haust, um bandarísk
stjórnmál og Donald Trump.
„Þessi námskeið eru góður vett-
vangur fyrir fólk til að koma sam-
an, ræða málin og fá dýpri sýn á
málefnin,“ segir Áslaug og bendir
einnig á námskeið Illuga Jökuls-
sonar um eina illræmdustu per-
sónu mannkynssögunnar, Adolf
Hitler: „Það er forvitnilegt að velta
fyrir sér atburðum líðandi stundar
í ljósi sögunnar, en á námskeiðinu
reynir Illugi m.a. að svara því
hvort hörmungar helfarar og
heimsstyrjaldar hafi verið óhjá-
kvæmilegar, eða hvort persóna
Hitlers hafi þar haft úrslitaáhrif.“
AFP
Trump er hálfgerð ráðgáta, og þarf helst heilt námskeið til að reyna að byrja að skilja hann.
Morgunblaðið/Eggert
Danir kunna að njóta lífsins, og hægt er að sækja námskeið um „hygge“ á danska vísu.
Forvitnilegt er að skoða áhrif Adolfs
Hitler á þróun sögunnar.
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 27
JL-HÚSINU, HRINGBRAUT
KORPÚLFSSTÖÐUM
MIÐBERGI, BREIÐHOLTI
NÁMSKEIÐ HEFJAST 3. SEPTEMBER. SKRÁNING Á MIR.IS