Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Elínrós Líndal elinros@mbl.is G unnhildur á þrjú börn á aldrinum 21-42 ára, þrjú barnabörn og veit fátt skemmtilegra en njóta lífsins með vinum og stórfjölskyldunni, lesa góðar bækur, stunda heimspeki og fara daglega í sund og gönguferðir á Seltjarnarnesi þar sem hún nýtur náttúrunnar með heimilishund- inum Aragorn. Stærsta stjórnunarfélag Íslands Hún útskýrir Stjórnvísi með eftir- farandi hætti: „Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag á Íslandi Að njóta litlu hlutanna í lífinu Gunnhildur Arnardóttir er framkvæmdastjóri Stjórnvísi og meðstofn- andi sprotafyrirtækisins HR Monitor. Gunnhildur hefur varið mestum hluta starfsævi sinnar við starfsmannastjórnun sem á hug hennar allan. Stjórnvísi býður upp á fjölmörg námskeið í vet- ur sem Gunnhildur segir frá í viðtalinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gunnhildur Arnardóttir segir að dagskrá vetrarins sé afar fjölbreytt. Hefur þig alltaf dreymt um að vinna á leikskóla eða læra að verða leikskóla- kennari? Háskóli Íslands, Háskóla- félag Suðurlands og Samtök sunn- lenskra sveitarfélaga gerðu könnun um eftirspurn eftir fjarnámi á há- skólastigi á Suðurlandi. Upp úr stóð að fjölmargir vildu verða leikskóla- kennarar eða starfsfólk á leikskólum. Á sama tíma var Háskóli Íslands að hefja undirbúning fyrir umsóknir um þróun náms í hinum ýmsu faghá- skólafræðum til mennta- og menn- ingarmálaráðuneytisins og var ákveðið að í samstarfi við Háskóla- félag Suðurlands yrði sótt um þróun- arverkefni í leikskólafræðum á faghá- skólastigi. Í upphafi undirbúningsferlisins var send út könnun á sunnlenska leik- skólastarfsmenn (þá sem ekki eru fagmenntaðir leikskólakennarar) til þess að kanna nánar áhuga þeirra á svona námi og sýndi hún fram á að ef slíkt nám yrði keyrt sem fjarnám með staðarlotum á Suðurlandi og með stuðningi frá vinnuveitanda væru um 73% líkur á að viðkomandi starfsmaður færi í slíkt nám. Nú ári seinna, og mun fyrr en áætl- anir gerðu ráð fyrir, hefur þetta nám verið þróað og til stendur að hefja kennsluna nú á haustdögum. Hugtakið fagháskólanám stendur fyrir nám á svokölluðu 4. stigi og er tilraun til þess að brúa það nám fram- haldsskóla sem ekki endar með stúd- entsprófi, yfir í háskólanám. Sá hópur sem horft er til inn í þetta nám er oftar en ekki með nokkurt nám að baki í framhaldsskóla og í fullorðinsfræðslu og með starfs- reynslu í faginu. Til þess að meta getu einstaklinga til þátttöku í nám- inu verða verkfæri hæfnigreininga og hæfnimats nýtt og hefur sá þáttur verið unnin í samstarfi við Fræðslu- miðstöð atvinnulífsins. Um er að ræða tveggja ára til- raunaverkefni þar sem námið er skipulagt sem fjarnám með vinnu ásamt staðbundnum lotum/dögum á Suðurlandi og mun Háskólafélag Suðurlands halda utan um námið í samtarfi við HÍ. Náminu lýkur með diplómu en getur einnig nýst sem hluti af B.Ed. gráðu í leikskólakenn- arafræðum. Umsóknarfrestur er til 20.ágúst en nánari upplýsingar um námið og um- sóknarferlið er að finna á www.hfsu- .is. Langar þig í nám í leikskólafræðum? Morgunblaðið/Valli Tækifærin eru endalaus! Kynntu þér öðruvísi og spennandi nám hjá okkur: Langar þig að prófa eitthvað annað? Fisktækniskóli Íslands býður upp á fjölbreytt, hagnýtt og öðruvísi nám á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára nám, sem byggt Tækni Hönnun Nýsköpun Framkvæmd er upp á óvenjulegan, persónulegan og umfram allt – spennandi máta. Kynntu þér námsleiðirnar okkar á fiskt.is – þar sem tækifærin eru endalaus!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.