Morgunblaðið - 17.08.2018, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 29
með 3.000 virka félagsmenn frá
300 fyrirtækjum og mjög öflugt
tengslanet. Félagið er opið öllum
einstaklingum, fyrirtækjum og
stofnunum sem hafa áhuga á
stjórnun eins og stjórnendum,
sérfræðingum, nemendum og öðr-
um áhugamönnum um stjórnun.
Fyrirtækin í Stjórnvísi koma úr
öllum greinum atvinnulífsins og
félagið hjálpar þeim að ná árangri
á hagkvæman og markvissan
hátt. Árlega eru haldnir yfir 100
viðburðir á vegum félagsins í
formi funda og ráðstefna auk þess
sem Stjórnvísi er eigandi Ís-
lensku ánægjuvogarinnar og
Stjórnunarverðlaunanna.“
Faghópar lykilatriðið
Getur þú nefnt mér nokkur
áhugaverð námskeið sem þú mæl-
ir með?
„Dagskrá vetrarins 2018-2019
verður kynnt í byrjun september
á www.stjornvisi.is og þá kemur í
ljós hvað öflugar stjórnir faghóp-
anna bjóða upp á. Kjarnastarfið
fer fram í faghópum, í dag eru 20
slíkir starfandi innan félagsins á
jafnmörgum sviðum stjórnunar.
Hver faghópur er með 5-10
manna stjórn sem boðar fé-
lagsmenn til fundar að jafnaði
einu sinni í mánuði þar sem til-
tekið málefni er tekið til umfjöll-
unar í fyrirlestrar- og umræðu-
formi eða á annan hátt. Fundirnir
sem eru hver og einn eins og ör-
námskeið skapa vettvang fyrir
stjórnendur til umræðna, auka
þekkingu og styrkja tengslanetið.
Árlega bjóða tugir fyrirtækja fé-
lögum til sín í heimsókn, þannig
miðlast þekking milli fyrirtækja
og stuðlar að faglegri stjórnun og
eflingu stjórnenda. Varðandi
áhugaverða fundi/námskeið þá vil
ég hvetja alla þá sem hafa áhuga
á hvers kyns stjórnun að kynna
sér úrval faghópanna. Í Stjórnvísi
eru faghópar um fjármál fyr-
irtækja, gæðastjórnun og ISO-
staðla, heilsueflandi vinnuum-
hverfi, kostnaðarstjórnun, mann-
auðsstjórnun, markþjálfun,
persónuvernd, samfélagsábyrgð,
stjórnun viðskiptaferla (BPM),
stefnumótun og árangursmat, um-
hverfi og öryggi, þjónustustjórn-
un, verkefnastjórnun o.fl. Á síð-
asta ári voru stofnaðir fjórir nýir
faghópar sem allir eru með sterk-
ar stjórnir og vel var mætt á
fundi á þeirra vegum. Þetta eru
faghópar um persónuvernd, jafn-
launastjórnun, framtíðarfræði og
góða stjórnarhætti.“
Framtíðarfræði áhugaverð
Spurð um námskeið sem hefur
heillað hana á vegum Stjórnvísi
segir Gunnhildur:
„Ef ég ætti að velja eitthvað
eitt sem er næstum ómögulegt
því fundirnir eru allir fræðandi og
höfða til ólíks hóps stjórnenda þá
nefni ég faghóp um framtíð-
arfræði sem er nýstofnaður og
hélt vel sóttan fund í Eflu með
Andrew Curry um miðjan júní sl.
Faghópurinn er fyrir alla þá sem
hafa áhuga á framtíðarfræðum,
nýtingu þeirra og möguleikum.
Tilgangur faghópsins er að auka
víðsýni og styðja við nýsköpun og
samkeppnishæfni atvinnulífs með
notkun framtíðafræða. Markmiðið
er að efla þekkingu á notkun
framtíðarfræða sem hagnýtu tæki
fyrir fyrirtæki og stofnanir til að
takast á við framtíðaráskoranir,
jafnt tækifæri sem ógnanir.
Framtíðarfræði samanstanda af
aðferðum sem hægt er að beita til
að greina á kerfisbundinn hátt
mögulegar birtingarmyndir fram-
tíðar og vera þannig betur í stakk
búin til að mæta óvæntum áskor-
unum.“
Gunnhildur segir að þeir sem
hafa mest not fyrir að sækja sér
þekkingu hjá Stjórnvísi séu allir
þeir sem eru áhugasamir um
stjórnun. „Ýmist eru þetta sér-
fræðingar, stjórnendur með
mannaforráð, nemendur og
áhugafólk um stjórnun. Á Stjórn-
vísifundum kynnist þú því nýjasta
í stjórnunarfræðunum því fund-
irnir eru oft samsettir af tveimur
fyrirlesurum. Annars vegar eru
fræðin kynnt og hins vegar
hvernig þau er nýtt. Þetta er al-
gjörlega einstakt að fá þessa
blöndu og að auki að gefa sér
tíma til að kynnast þeim sem hafa
sams konar áhuga. Auk funda á
vegum faghópanna eru einnig
haldnar fjölmargar ráðstefnur um
málefni sem bera hæst hverju
sinni er varða framsækna stjórn-
un.“
Hvað aðrir eru að gera
„Allir viðburðir á vegum Stjórn-
vísi hafa alltaf það megininntak
að skapa einstaka innsýn í hverju
starfsmenn í öðrum fyrirtækjum
eru að vinna að, hvernig fræðin
eru nýtt í raun. Þar hittir þú þá
sem eru að fást við það sama og
þú og styrkir um leið tengslanetið
við stjórnendur í öðrum fyr-
irtækjum, færð aðgengi að upp-
lýsingum og hvetur starfsmenn til
að bæta árangur sinn. Stjórnvísi
er með samstarf við Festu,
Franklin Covey á Íslandi, Endur-
menntun HÍ, Opna háskólann og
Icelandic Startups auk þess að
standa árlega að uppskeruhátíð
Íslensku ánægjuvogarinnar og
Stjórnunarverðlaunum Stjórnvísi
og Samfélagsskýrslu ársins.“
Hvað er að þínu mati áhuga-
verðast við að vera alltaf að bæta
við sig þekkingu?
„Aldrei hefur aðgengi að upp-
lýsingum verið meira og betra en
í dag og því þörfin fyrir að bæta
stöðugt við sig þekkingu mik-
ilvæg. Til þess að bæta þá sér-
þekkingu sem við höfum valið
okkur er einstaklega mikilvægt
að fylgjast með því nýjasta sem
er að gerast í okkar fagi hverju
sinni, tileinka sér það og innleiða.
Þekking breytist svo ört að við
hreinlega verðum að fylgjast með
því nýjasta. Að bæta við sig þekk-
ingu eykur sjálfstraust, skapar
gleði og stóreykur líkurnar á at-
vinnutækifærum. Eitt af því sem
spurt er um í atvinnuviðtölum er
menntun og hvernig þú hefur við-
haldið þinni menntun. Þá er ekki
gott að svara því að ekki hafi
unnist tími til slíks. Atvinnurek-
endur eru því í meira mæli að
gera sér grein fyrir hversu mik-
ilvæg símenntun er og hvetja
starfsmenn til að stunda hana.
Eitt af skemmtilegri lögum sem
ég þekki er „Það er leikur að
læra, leikur sá er mér kær, að
vita meira og meira meir í dag
enn í gær.“
Heilinn er vöðvi sem
verður að halda við
Telur þú fólk geta lært á öllum
aldri? „Það er engin spurning að
allir geta lært sama á hvaða aldri
þeir eru. Ég er þakklát fyrir hve
fjölmiðlar hafa verið duglegir upp
á síðkastið við að kynna nýjar
rannsóknir sem leiða í ljós mik-
ilvægi þess að læra alla ævi. Heil-
inn er vöðvi sem verður að halda
við rétt eins og við pössum upp á
andlega og líkamlega heilsu. Ný-
verið var þáttur í Ríkissjónvarp-
inu þar sem læknir sagði að sú
spurning sem flestir hefðu áhuga
á að vita svarið við væri: „Hvern-
ig styrkjum við heilann og kom-
um í veg fyrir heilabilun.“ Í þeirri
rannsókn sem þar var kynnt kom
fram mikilvægi þess að hreyfa sig
reglulega og sá hópur sem kom
best út var sá sem lærði nýja list,
að teikna módel.“
Hvað einkennir góðan stjórn-
anda að þínu mati?
„Það sem einkennir góðan
stjórnanda er að hann hlustar og
hefur áhuga á fólki sem mann-
eskjum. Góður stjórnandi gætir
þess að allir starfsmenn hafi
verkefni við hæfi, hann nýtur
trausts, auðvelt er að leita til
hans, gefur sjálfstæði til ákvörð-
unartöku, starfsmenn vita ná-
kvæmlega til hvers er ætlast af
þeim og hafa mælakvarða sem
segir hverjum og einum hvernig
hann er að standa sig í vinnunni,
gerir kröfur um árangur, hugar
að þjálfun og þróun og gætir þess
að laun séu markaðshæf.“
Þegar stórt er spurt
Hvað skiptir þig mestu máli í líf-
inu?
„Þessi spurning er mikilvæg og
hefur verið umræðuefni í heim-
speki-klúbbnum mínum. Á hverju
hausti hittist árgangurinn minn
1957 í Laugalækjarskóla og
bekkjarbróðir okkar Jón Thor-
oddsen heimspekingur velur efni
og stýrir um-ræðum. Eins og allt-
af var ekki hægt að komast að
einni sameiginlegri niðurstöðu
hvað það er sem skiptir hvern og
einn mestu máli eftir að grunn-
þörfunum hefur verið fullnægt.“
Eitthvað að lokum?
„Munið að lifa lífinu lifandi og
njóta litlu hlutanna.“
„Það er engin spurning
að allir geta lært sama á
hvaða aldri þeir eru. Ég
er þakklát fyrir hve fjöl-
miðlar hafa verið dugleg-
ir upp á síðkastið við að
kynna nýjar rannsóknir
sem leiða í ljós mikilvægi
þess að læra alla ævi.
Heilinn er vöðvi sem
verður að halda við.“
Kringlan | Smáralind
Stórt aðalrými
með innbyggðum
vasa fyrir fartölvu
Herschel Supply Co
Pop Quiz bakpoki verð frá 11.995 kr.
Herschel Supply Co er kanadískt vörumerki
sem framleiðir vandaða bakpoka, töskur,
veski og fylgihluti. Herschel hannar gæða-
vörur þar sem næmt auga fyrir smá-
atriðum og fjölbreytt litaval mætast
þannig að hver og einn geti fundið
tösku við sitt hæfi. Þú finnur nánari
upplýsingar um vöruúrval og verð á
www.ntc.is
Þægilegar ólar
Efst á pokanum
er fóðraður vasi
Auka hólf með fjölda
vasa fyrir lykla,
penna og aðrar
nauðsynjar
Vatnsheldir
rennilásar