Morgunblaðið - 17.08.2018, Side 32
Hrafnhildur trúir því að
dans sé fyrir alla og
vinnur hún ötullega
að því að auka
aðgengi fólks að
dansi.
sem er viðurkennd
af mennta-
málaráðuneyt-
inu þar sem
hægt er að
leggja
áherslu
bæði á
klassískan
ballett og
nútíma/
samtíma-
dans. Hún
hefur lagt
hjarta sitt alla
leið í þennan fag-
lega skóla með það
markmið að undirbúa
nemendur það vel að þeir geti farið
út í atvinnumennsku ef þeir óska
sér. Mér gafst það tækifæri að
taka við sem skólastjóri síðastliðið
haust og ég legg áherslu á að
halda vel utan um alla þá faglegu
vinnu sem Guðbjörg Astrid hefur
sett inn í skólann og kennt mér.
Hún er enn til staðar til að gefa
okkur góð ráð. Hins vegar langaði
mig að gera dans aðgengilegri fyr-
ir alla og bjóða einnig nemendum
skólans að kynnast óhefðbundnum
verkefnum utan hefðbundinnar
námskrár til að efla þá enn frekar.
Einnig höfum við bætt við tveimur
„prógrömmum“ sem ég er mjög
stolt af.
Annars vegar er undirbúnings-
einstakt
tjáning-
arform þar
sem ekki er
þörf á að nota
orð. Það er
margsannað hvað
dansinn er góður
fyrir heilsuna, bæði
fyrir líkama og sál.“
Hún segir að bakgrunnur henn-
ar sé í klassískum ballett. „Mér
þykir mjög vænt um að halda vel
utan um klassíkina en einnig þykir
mér mikilvægt að fá að kynnast
öðrum dansstílum líka. Þá hef ég
sjálf fundið mig vel í nútíma- og
samtímadansi og fundist mikilvægt
að vera opin fyrir því sem er að
gerast hverju sinni.“
Hvernig lýsir þú starfsemi
Klassíska listdansskólans í dag?
„Guðbjörg Astrid Skúladóttir
stofnaði Klassíska listdansskólann
árið 1993. Skólinn býður upp á
nám í klassískum ballett og nú-
tíma/samtímadansi fyrir nemendur
frá þriggja ára aldri. Árið 2006
stofnaði hún einnig framhaldsbraut
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
É
g byrjaði í ballett þegar ég
var fimm ára í Ball-
ettskóla Eddu Scheving.
Þegar ég var átta ára fór
ég svo yfir í Klassíska
listdansskólann, þar sem ég stund-
aði ballettnám þar til ég varð 17
ára. Þá lagði ég land undir fót og
fór til Kanada í dans- og tónlist-
arnám. Síðan lá leið mín til Rotter-
dam þar sem ég stundaði nám við
Codarts í eitt ár, en eftir það ár
þurfti ég að taka mér pásu frá
dansinum í nokkra mánuði vegna
veikinda. Það voru virkilega mikil
vonbrigði og tók á sálarlega, en ég
kom mér fljótt aftur á strik og
ákvað að fara aftur út í nám.
London varð fyrir valinu þar sem
ég stundaði þriggja ára nám í
dansháskólanum Trinity Laban
þaðan sem ég útskrifaðist árið
2009.“
Hrafnhildur hefur unnið ótal ólík
dansverkefni bæði hér á landi og
erlendis. Hún segir að fyrstu árin
hennar eftir skóla hafi hún í raun
búið í ferðatösku og flakkaði á milli
staða. „Slíkur lífsstíll hentaði mér
mjög vel. Þrátt fyrir að vera alltaf
á ferðinni, var ég með annan fótinn
á Íslandi, bæði vegna fjölskyld-
unnar en einnig kom ég oft til að
kenna í Klassíska listdansskól-
anum. Kennsla og miðlun þekk-
ingar minnar hefur alltaf verið
ástríða hjá mér.“
Heimili fyrir sjálfstætt
starfandi danslistamenn
Hún segir að þegar hún hafi komið
til Íslands hafi Dansverkstæðið
verið að komast á laggirnar.
„Dansverkstæðið er heimili fyrir
sjálfstætt starfandi danslistamenn.
Þar kynntist ég íslenska dans-
samfélaginu betur og fann fljótt
hvað ég brann fyrir því sama og
þetta duglega fólk gerir. Að byggja
upp sterkara danssamfélag á ís-
landi. Einnig að efla dansmenntun
og svo er auðvitað draumurinn að
á Íslandi rísi danshús.“
Aðspurð segir Hrafnhildur að
áhugamál sín tengist almennt dansi
og listum, menningu og ferðalög-
um. „Eins kann ég ákaflega vel við
að vinna með fólki. Þegar ég var
yngri var ég líka mikið í golfi, ég
hef ekki gefið því tíma síðustu ár-
in. En ég reyni að rifja upp sveifl-
una allavega einu sinni á ári,“ segir
Hrafnhildur og brosir.
Hvað er dans í þínum huga?
„Dans er í mínum huga nokkuð
sem við fæðumst öll með í okkur.
Hann er hluti af mannfólkinu og
sést best þegar ungbörn byrja að
dilla sér við tónlist löngu áður en
þau byrja að ganga. Dansinn er
nám fyrir framhaldsbraut þar sem
fólki býðst að koma í mjög krefj-
andi dansnám þó að það byrji seint
og hins vegar ungdanshóp sem
kallast „FWD Youth Company“
sem er ætlaður ungum dönsurum
sem hafa lokið framhaldsbraut og
langar að þróa sig enn frekar sem
dansara. Það er virkilega mikil og
góð samvinna meðal starfsfólks og
kennara skólans. Ég vinn alla
vinnu Dansgarðsins í nánu sam-
starfi við Ernesto Camilo Aldaza-
bel Valdes og allt það góða fólk
sem er að byggja upp þetta æv-
intýri með okkur.“
En Ballettskóla Guðbjargar
Björgvins?
„Guðbjörg Björgvins stofnaði
ballettskóla Guðbjargar Björgvins
árið 1982, en líkt og Guðbjörg Ast-
rid er hún ofurkona sem brennur
fyrir þessari vinnu og hafa gefið
svo ótal mörgum dönsurum góða
og einlæga kennslu í gegnum árin.
Okkur í Dansgarðinum bauðst að
bæta við Ballettskóla Guðbjargar í
garðinn okkar. Við erum spennt
fyrir þeirri viðbót.“ Hún segir Ball-
ettskóla Guðbjargar Björgvins
bjóða upp á dansnám fyrir nem-
endur frá þriggja ára aldri, en þar
er einnig boðið upp á ballettíma
fyrir fullorðna, sem hentar öllum.
Ballettskóli Guðbjargar Björgvins
er með starfsemi sína á Eiðistorgi.
Vinnusmiðjur fyrir
hælisleitendur
Hvað getur þú sagt mér um Dans-
garðinn?
„Dansgarðurinn er regnhlífar-
verkefni sem er með það markmið
að gera dans aðgengilegri fyrir alla
auk þess að bjóða upp á faglega
menntun í klassískum ballett, nú-
tímadansi, samtímadansi, skapandi
dansi og fræðslu.
Síðastliðinn vetur hefur verið
mjög viðburðaríkur og má þar
nefna verkefnið Dans fyrir alla,
þar sem leiðbeinendur frá Dans-
garðinum hafa boðið upp á skap-
andi dans í leikskólum og frí-
stundaheimilum, auk þess sem
grunnskólabörn og kennarar þeirra
hafa komið í heimsókn til okkar í
Dansgarðinn í dansfræðsludag.
Einnig höfum við verið með vinnu-
smiðjur með hælisleitendum. Þessi
verkefni hafa verið möguleg vegna
samstarfs við Reykjavíkurborg og
List fyrir alla.“
Að lokum segir Hrafnhildur að
hún voni að í framtíðinni verði sett
meira fjármagn í dansmenntun og
danslist í landinu. „Við höfum mik-
inn áhuga á ýmsum samstarfsverk-
efnum bæði hérlendis og erlendis,
og munum halda áfram að styrkja
og rækta slík tengslanet.“
Hrafnhildur Einarsdóttir byrjaði í Ballettskóla Eddu Scheving aðeins fimm ára að aldri. Allar götur síðan hefur hún tileinkað lífið listgreininni.
Hún starfar í dag sem skólastjóri Klassíska listdansskólans og Ballettskóla Guðbjargar Björgvins og ræðir í viðtali listgreinina frá sínu brjóstviti.
Það býr
dans í öllum
Falleg uppsetning
á ballett er mikil
skemmtun.
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar