Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 32

Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 32
Hrafnhildur trúir því að dans sé fyrir alla og vinnur hún ötullega að því að auka aðgengi fólks að dansi. sem er viðurkennd af mennta- málaráðuneyt- inu þar sem hægt er að leggja áherslu bæði á klassískan ballett og nútíma/ samtíma- dans. Hún hefur lagt hjarta sitt alla leið í þennan fag- lega skóla með það markmið að undirbúa nemendur það vel að þeir geti farið út í atvinnumennsku ef þeir óska sér. Mér gafst það tækifæri að taka við sem skólastjóri síðastliðið haust og ég legg áherslu á að halda vel utan um alla þá faglegu vinnu sem Guðbjörg Astrid hefur sett inn í skólann og kennt mér. Hún er enn til staðar til að gefa okkur góð ráð. Hins vegar langaði mig að gera dans aðgengilegri fyr- ir alla og bjóða einnig nemendum skólans að kynnast óhefðbundnum verkefnum utan hefðbundinnar námskrár til að efla þá enn frekar. Einnig höfum við bætt við tveimur „prógrömmum“ sem ég er mjög stolt af. Annars vegar er undirbúnings- einstakt tjáning- arform þar sem ekki er þörf á að nota orð. Það er margsannað hvað dansinn er góður fyrir heilsuna, bæði fyrir líkama og sál.“ Hún segir að bakgrunnur henn- ar sé í klassískum ballett. „Mér þykir mjög vænt um að halda vel utan um klassíkina en einnig þykir mér mikilvægt að fá að kynnast öðrum dansstílum líka. Þá hef ég sjálf fundið mig vel í nútíma- og samtímadansi og fundist mikilvægt að vera opin fyrir því sem er að gerast hverju sinni.“ Hvernig lýsir þú starfsemi Klassíska listdansskólans í dag? „Guðbjörg Astrid Skúladóttir stofnaði Klassíska listdansskólann árið 1993. Skólinn býður upp á nám í klassískum ballett og nú- tíma/samtímadansi fyrir nemendur frá þriggja ára aldri. Árið 2006 stofnaði hún einnig framhaldsbraut Elínrós Líndal elinros@mbl.is É g byrjaði í ballett þegar ég var fimm ára í Ball- ettskóla Eddu Scheving. Þegar ég var átta ára fór ég svo yfir í Klassíska listdansskólann, þar sem ég stund- aði ballettnám þar til ég varð 17 ára. Þá lagði ég land undir fót og fór til Kanada í dans- og tónlist- arnám. Síðan lá leið mín til Rotter- dam þar sem ég stundaði nám við Codarts í eitt ár, en eftir það ár þurfti ég að taka mér pásu frá dansinum í nokkra mánuði vegna veikinda. Það voru virkilega mikil vonbrigði og tók á sálarlega, en ég kom mér fljótt aftur á strik og ákvað að fara aftur út í nám. London varð fyrir valinu þar sem ég stundaði þriggja ára nám í dansháskólanum Trinity Laban þaðan sem ég útskrifaðist árið 2009.“ Hrafnhildur hefur unnið ótal ólík dansverkefni bæði hér á landi og erlendis. Hún segir að fyrstu árin hennar eftir skóla hafi hún í raun búið í ferðatösku og flakkaði á milli staða. „Slíkur lífsstíll hentaði mér mjög vel. Þrátt fyrir að vera alltaf á ferðinni, var ég með annan fótinn á Íslandi, bæði vegna fjölskyld- unnar en einnig kom ég oft til að kenna í Klassíska listdansskól- anum. Kennsla og miðlun þekk- ingar minnar hefur alltaf verið ástríða hjá mér.“ Heimili fyrir sjálfstætt starfandi danslistamenn Hún segir að þegar hún hafi komið til Íslands hafi Dansverkstæðið verið að komast á laggirnar. „Dansverkstæðið er heimili fyrir sjálfstætt starfandi danslistamenn. Þar kynntist ég íslenska dans- samfélaginu betur og fann fljótt hvað ég brann fyrir því sama og þetta duglega fólk gerir. Að byggja upp sterkara danssamfélag á ís- landi. Einnig að efla dansmenntun og svo er auðvitað draumurinn að á Íslandi rísi danshús.“ Aðspurð segir Hrafnhildur að áhugamál sín tengist almennt dansi og listum, menningu og ferðalög- um. „Eins kann ég ákaflega vel við að vinna með fólki. Þegar ég var yngri var ég líka mikið í golfi, ég hef ekki gefið því tíma síðustu ár- in. En ég reyni að rifja upp sveifl- una allavega einu sinni á ári,“ segir Hrafnhildur og brosir. Hvað er dans í þínum huga? „Dans er í mínum huga nokkuð sem við fæðumst öll með í okkur. Hann er hluti af mannfólkinu og sést best þegar ungbörn byrja að dilla sér við tónlist löngu áður en þau byrja að ganga. Dansinn er nám fyrir framhaldsbraut þar sem fólki býðst að koma í mjög krefj- andi dansnám þó að það byrji seint og hins vegar ungdanshóp sem kallast „FWD Youth Company“ sem er ætlaður ungum dönsurum sem hafa lokið framhaldsbraut og langar að þróa sig enn frekar sem dansara. Það er virkilega mikil og góð samvinna meðal starfsfólks og kennara skólans. Ég vinn alla vinnu Dansgarðsins í nánu sam- starfi við Ernesto Camilo Aldaza- bel Valdes og allt það góða fólk sem er að byggja upp þetta æv- intýri með okkur.“ En Ballettskóla Guðbjargar Björgvins? „Guðbjörg Björgvins stofnaði ballettskóla Guðbjargar Björgvins árið 1982, en líkt og Guðbjörg Ast- rid er hún ofurkona sem brennur fyrir þessari vinnu og hafa gefið svo ótal mörgum dönsurum góða og einlæga kennslu í gegnum árin. Okkur í Dansgarðinum bauðst að bæta við Ballettskóla Guðbjargar í garðinn okkar. Við erum spennt fyrir þeirri viðbót.“ Hún segir Ball- ettskóla Guðbjargar Björgvins bjóða upp á dansnám fyrir nem- endur frá þriggja ára aldri, en þar er einnig boðið upp á ballettíma fyrir fullorðna, sem hentar öllum. Ballettskóli Guðbjargar Björgvins er með starfsemi sína á Eiðistorgi. Vinnusmiðjur fyrir hælisleitendur Hvað getur þú sagt mér um Dans- garðinn? „Dansgarðurinn er regnhlífar- verkefni sem er með það markmið að gera dans aðgengilegri fyrir alla auk þess að bjóða upp á faglega menntun í klassískum ballett, nú- tímadansi, samtímadansi, skapandi dansi og fræðslu. Síðastliðinn vetur hefur verið mjög viðburðaríkur og má þar nefna verkefnið Dans fyrir alla, þar sem leiðbeinendur frá Dans- garðinum hafa boðið upp á skap- andi dans í leikskólum og frí- stundaheimilum, auk þess sem grunnskólabörn og kennarar þeirra hafa komið í heimsókn til okkar í Dansgarðinn í dansfræðsludag. Einnig höfum við verið með vinnu- smiðjur með hælisleitendum. Þessi verkefni hafa verið möguleg vegna samstarfs við Reykjavíkurborg og List fyrir alla.“ Að lokum segir Hrafnhildur að hún voni að í framtíðinni verði sett meira fjármagn í dansmenntun og danslist í landinu. „Við höfum mik- inn áhuga á ýmsum samstarfsverk- efnum bæði hérlendis og erlendis, og munum halda áfram að styrkja og rækta slík tengslanet.“ Hrafnhildur Einarsdóttir byrjaði í Ballettskóla Eddu Scheving aðeins fimm ára að aldri. Allar götur síðan hefur hún tileinkað lífið listgreininni. Hún starfar í dag sem skólastjóri Klassíska listdansskólans og Ballettskóla Guðbjargar Björgvins og ræðir í viðtali listgreinina frá sínu brjóstviti. Það býr dans í öllum Falleg uppsetning á ballett er mikil skemmtun. 32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.