Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 35

Morgunblaðið - 17.08.2018, Síða 35
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2018 MORGUNBLAÐIÐ 35 Foreldrar Fullbókað er í einkakennslu haustið 2018 Tekið er við pöntunum fyrir 2019 Kennarar Fullbókað er á lestrarkennslunámskeið haustið 2018 Næsta LÆS Í VOR námskeið verður haldið haustið 2019 Fínstillt er að þörfum nemandans Námsaukinn er mældur í hverjum tíma Heimakennsla er veitt á höfuðborgarsvæðinu Einkakennsla og þjálfun í 18 ár LÆS Í VOR Málhljóð, lestur og ritun - Talnaleikni og reikningur - - þá sem eru af erlendum uppruna: Þjálfun málhljóða; hlustun, framburður og ritun Gagnreynd kennslutækni: - Stýrð fyrirmæli (direct instruction) - Hnitmiðuð færniþjálfun, hröðunarnám (precision teaching) - Samtengjandi hljóðaaðferð (synthetic phonics) - Talnafjölskyldur (fact families) - Þjálfun aðgreiningar (discrimination training) - Lausnaleit í heyrenda hljóði (talk aloud problem solving) - Smellaþjálfun (clicker training, tag teach) - Hraðflettispil, leifturspjöld (SAFMEDS, flashcards) - Stöðluð hröðunarkort (standard celeration charts) Fyrir: - börn og fullorðna - byrjendur og lengra komna - lesblinda og reikniblinda - þá sem þurfa almenna leiðréttandi hjálp eða - mjög sértæka þjónustu, s.s. börn með einhverfu Guðríður Adda Ragnarsdóttir Atferlisfræðingur og kennari Atferlisgreining og kennsluráðgjöf Sími 866 56 19, adda@ismennt.is Stjórnendanám Stjórnendafræðslunnar erfjarnám fyrir stjórnendur og millistjórnendur í íslensku atvinnulífi. Námsefnið hefur verið unnið og þróað síðustu ár út frá þörfum og óskumvinnumarkaðarins. Stjórnendanám Stjórnendafræðslunnar er samstarfsverkefni Símenntunar Háskólans á Akureyri og starfsmenntasjóðs Sambands Stjórnendafélaga og Samtaka atvinnulífsins. Námið er vinsæll kostur fyrir þá sem kjósa hagnýtt stjórnunarnám með miklum sveigjaleika. Námið er 100%fjarnám sem hægt er að stunda samhliða vinnu. Viðfangsefni áfanganna tengjast því sem þú, nemandinn, ert að gera dagsdaglega inn á þínum vinnustað. Nemendur okkar koma úr öllum áttum og viljum við hafa sem fjölbreyttastan nemendahóp með fjölbreyttan bakgrunn og þekkingu. Námið fer alfarið fram á netinu, nemendur hittast þó einu sinni í viku í gegnum samskiptaforritið Zoom. Á þeim fundum er mikið lagt upp úr því að nemendur læri af hvor öðrum enda gríðarlega mikil þekking og kunnátta í nemendunum sjálfum. Engin krafa er gerð um fyrri menntun eða stjórnunarreynslu. Aðalmálið er að nemandinn sjálfur vilji verða betri stjórnandi og/eða millistjórnandi. Okkar framtíðarsýn er sú að allir okkar stjórnendur fari í gegnum þetta nám, vinnumarkaðinum til góða. Skráning og nánari upplýsingar á stjornendanam.is Elínrós Líndal elinros@mbl.is E sther Helga Guðmunds- dóttir er mörgum kunn, en hún hefur lagt sig fram um að ræða málefni er varða mat og samskipti fólks við mat af skynsemi og þekkingu. Est- her rekur MFM Matarfíkn- armiðstöðina, þar sem fólk getur sótt einstaklingsviðtöl og námskeið til að skilja betur hvað er í gangi ef það missir stjórn á áti og þyngd. Eins og fram hefur komið í viðtölum við hana nota sum okkar mat til að breyta líðan sinni. Hluti landsmanna er að reyna að koma sér í form en án árangurs. Hún vinnur eftir kerfi sem ber góðan árangur og hefur hjálpað fjölda fólks að komast á rétta sporið þegar kemur að þyngd sinni. Þeir sem ná ekki að stjórna Nú býður hún upp á 30 daga afvötn- un frá sykri og sterkju 1. september næstkomandi. Hverjir þurfa að fara í afvötnun af þessum toga? „Þeir gætu þurft að fara í afvötn- un sem finna að þeir byrja að borða sætindi og/eða skyndibita og þá kall- ar það á meira. Viðkomandi missir stjórn á því hve mikið hann borðar,“ segir Esther og útskýrir áfram áskorunina sem viðkomandi stendur frammi fyrir. „Vandinn lýsir sér í stjórnleysi í át- og þyngdarstjórnun. Súkkulaðið kallar og viðkomandi hlýðir kallinu þrátt fyrir einlægan vilja til að fá sér ekki meira.“ Hvað eru margir Íslendingar samkvæmt rannsóknum í ykkar markhópi? „Samkvæmt könnunum á matar- fíkn gætu um 30% íslensku þjóð- arinnar átt við matarfíkn á einhverju stigi að stríða.“ Lífið í bata er gott líf Hvernig veit ég hvort ég er matar- fíkill eða ekki? „Þú veist að þú gætir verið með matarfíkn ef þú borðar meira en þú ætlar þér. Ef þú ert að glíma við af- leiðingar á átinu, eins og ofþyngd eða ýmiss konar heilsubrest. Eins veistu að ef þú heldur áfram að borða á ákveðinn hátt, þrátt fyrir einlægan vilja til að hætta því, er um að ræða einhverja óstjórn sem gæti breytt lífi þínu ef þú ert tilbúin(n) að skoða betur.“ Spurð um lífið í bata segir Esther að það sé gott líf. „Þú upplifir ákveðna frelsistilfinningu og innri frið.“ Að lokum segir Esther að við þurfum öll að skoða hvernig lífsgæði við viljum. „Er súkkulaðibiti sem kallar á annan meira virði en heil- brigði og andlegur styrkur? Við get- um átt stundarfró með neyslu á ýmsum efnum. En þegar við erum laus úr viðjum þeirra upplifum við raunverulega vellíðan og öðlumst tól til að takast á við lífið og tilveruna meðvitað og í núvitund,“ segir hún að lokum. Ljósmynd/Thinkstockphotos Líf án sykurs er gott líf. Stundum er fráhald nauðsynlegt. Þarftu að fara í afvötnun? Þegar einn súkkulaðibiti kallar á þann næsta og þú hefur ekki stjórn á því sem þú borðar gæti lausnin fyrir þig verið að fara í afvötnun frá sykri og sterkju. MFM Mið- stöðin gæti verið með lausnina fyrir þig. Morgunblaðið/Kristinn Esther Helga Guðmundsdóttir er einn helsti sérfræðingur landsins þegar kemur að matarfíkn. Hún hefur leitt fjölmara einstaklinga áfram í gott líf án fíknar í mat. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.