Fréttablaðið - 20.10.2018, Qupperneq 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
sagði á Alþingi
að henni sjálfri
hugnuðust ekki
heræfingar og
að öllum ætti að
vera kunnugt um
afstöðu hennar og
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs til veru Íslands í NATO.
Þorvaldur Gylfason
hagfræðiprófessor
sagði yfirvofandi
innlimun FME
í Seðlabankann
líta út eins og
klunnaleg tilraun
til að koma allri
yfirhylmingu með
bönkunum fyrir á einum og sama
stað.
Oddný G. Harðardóttir
þingmaður
er fyrsti flutnings
maður frumvarps
sem skyldar
ábyrgðarmenn
rannsókna til að
tilkynna tilviljana
kennda greiningu á
alvarlegum sjúkdómi, þar á meðal
erfðabreytileika sem felur í sér
auknar líkur á alvarlegum sjúk
dómi, til Embættis landlæknis.
Oddný sagði að tryggja yrði bæði
rétt þeirra sem vilja vita og hinna
sem ekki vilja vita.
Þrjú í fréttum
Her, innlimun
og forvarnir
Tölur vikunnar 14.10.2018 - 20.10.2018
55%
er hækkun
raungengis á
mælikvarða
launa frá 2015.
8,2%
er hækkun íbúðaverðs
á þessu ári gangi spá
greiningardeildar
Íslandsbanka
eftir. Spáð er
5,5 prósenta
hækkun á
næsta ári og
4,4 prósenta
hækkun árið
2020.
20,3%
fólks á aldrinum 25-29
ára bjuggu í foreldra-
húsum árið 2016.
24,8 prósent karla
og 15,6 prósent
kvenna.
300
tilkynningar um
kynferðisbrot
bárust lögregl-
unni á höfuð-
borgarsvæðinu
á árinu 2017.
69%
erlendra ferðamanna á Íslandi heim-
sóttu Rangárvallasýslu í fyrra. Áætlað
er að fjöldinn hafi verið 1.381 þúsund.
Fjöldinn sexfaldaðist á áratug. Þrettán-
föld fjölgun er að vetrarlagi.
13%
er gengisveiking krónunnar
síðustu sex mánuði.
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED.
RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 6.260.000 ÁN VSK.
KR. 7.762.400 MEÐ VSK.
RAM 3500 LIMITED 40” BREYTTUR
lögreglumál Osteópatafélag
Íslands og Sjúkranuddarafélag
Íslands segja félagsmenn í gegnum
tíðina hafa heyrt sögur af með
höndlaranum sem hefur verið
kærður nokkrum sinnum á árinu
fyrir kynferðisbrot í meðferð.
„Þessi félög finna sig knúin til
að tjá sig um málið og verja sína
félagsmeðlimi. Meðlimir innan
allra félaganna hafa heyrt fjöldann
allan af sögum frá skjólstæðingum
sínum um óeðlilega starfshætti frá
þessum manni. Við höfum fengið til
okkar fólk sem hafa leitað álits um
það hvort aðferðir sem hann beitir
þyki eðlilegar. Við fordæmum svona
starfsaðferðir,“ segja félögin tvö.
Félögin segja það alvarlegt að
ekkert eftirlit sé með starfsemi
utan heilbrigðisgeirans. Leið vanti
til að tilkynna aðila sem ekki heyra
undir nein félög. Maðurinn sé ekki
meðlimur í ofantöldum félögum.
„Að okkar mati er hér um að ræða
mjög alvarlegt mál og umfangmesta
sinnar tegundar á sviði meðhöndl
ara hér á landi. Við höfum samúð
með þessum konum og vonum að
réttlæti náist hjá þeim.“
Egill Þorsteinsson, formaður
Kírópraktorafélags Íslands, segir
meðlimum félagsins brugðið
vegna málsins. „Stétt kíróprakt
ora er slegin yfir þessum fréttum.
Maður sá sem kærður er, hefur ekki
menntun kírópraktors, er ekki með
limur í Kírópraktorafélagi Íslands
og tengist ekki stétt kírópraktora á
nokkurn hátt.“
Maðurinn hefur verið kærður
fyrir kynferðisbrot gegn nokkrum
konum sem voru í meðferð hjá
honum en hann á meðal annars að
hafa meðhöndlað þær í gegnum leg
göng þeirra. Eftir umfjöllun Frétta
blaðsins um málið á fimmtudag
stigu fram fjórar konur í kjölfarið
samdægurs og í gær bættust þrjár
í hópinn. Samtals eru konurnar
orðnar sautján.
„Til mín hafa nú leitað alls
sautján konur. Sjö þeirra hafa nú
þegar mætt í skýrslutöku hjá lög
reglunni og þrjár hafa beðið þess að
gefa skýrslu síðan í apríl. Nokkrar
eru að meta stöðu sína,“ segir Sig
rún Jóhannsdóttir, lögmaður og
réttargæslumaður kvennanna.
„Frá því að fréttaflutningurinn fór
af stað hafa svo sjö konur haft sam
band við mig til viðbótar og lýst
því fyrir mér hvernig umræddur
maður mun hafa brotið á þeim. Ég
hef fengið nokkrar á fund til mín nú
þegar en hinar koma næstu daga,“
bætir Sigrún við.
Steinbergur Finnbogason, lög
maður mannsins, segir fátt annað
í stöðunni en að spyrja að leiks
lokum.
„Umræðan er að þróast og vinda
upp á sig í takti við þá múgsefjun
sem ég tel að stefnt hafi verið að frá
upphafi. Fyrir minn skjólstæðing er
fátt annað í stöðunni en að spyrja að
leikslokum. Hann kemur af fjöllum
en verður að treysta á faglega rann
sókn og ef til vill úrskurð dómstóla.
Stríðið á Alþingi götunnar er tapað
eins og öll önnur í svona málum,“
segir Steinbergur.
gunnthorunn@frettabladid.is
Sagt umfangsmesta mál sinnar
tegundar á sviði meðhöndlara
Konurnar sem telja sig hafa orðið fyrir kynferðislegu broti af hálfu manns sem meðhöndlar einstaklinga
með stoðkerfisvanda eru nú orðnar sautján. Osteópatafélag Íslands og Sjúkranuddarafélag Íslands segja
félagsmenn hafa löngum heyrt sögur af manninum. Lögmaður mannsins segir málið vera múgsefjun.
„Við höfum samúð með þessum konum og vonum að réttlæti náist,“ segja
Osteópatafélag Íslands og Sjúkranuddarafélag Íslands. NOrdicphOtOS/Getty
Látinn hætta í World
Class eftir tæpa viku
Maðurinn starfaði í stuttan
tíma hjá líkamsræktarstöðinni
World Class fyrir um fimm
árum. Þar átti hann að með-
höndla og hnykkja viðskiptavini
en var fljótlega látinn fara eftir
að stöðinni barst kvörtun um
kynferðislega áreitni af hálfu
mannsins. Þetta staðfestir Björn
Leifsson, eigandi World Class.
„Þessi maður kom til okkar
og það var ekki vika liðin frá
því að hann hóf störf þegar við
þurftum að láta hann fara vegna
þessa,“ segir Björn. „Hann var því
látinn fara strax.“
Konráð Valur Gíslason, einka-
þjálfari hjá World Class, segir að
þrjár konur hafi sagt sér frá slíkri
meðferð hjá manninum.
„Þetta kom upp þegar ung
stúlka, um 16-17 ára, var í með-
ferð hjá honum þegar hann
starfaði hjá World Class. Eftir
meðferðina sagði hún kærasta
sínum frá sem hringdi hingað
inn og kvartaði yfir manninum,“
segir Konráð. „Ég vissi af þremur
konum í þjálfun hjá mér sem
höfðu farið til hans og lent í ein-
hverju misjöfnu.“
Björn Leifsson,
eigandi World
class.
Til mín hafa nú
leitað
alls sautján
konur.
Sigrún Jóhanns-
dóttir lögmaður
2 0 . o k T ó b e r 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
2
0
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
1
-7
0
5
8
2
1
2
1
-6
F
1
C
2
1
2
1
-6
D
E
0
2
1
2
1
-6
C
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K