Fréttablaðið - 20.10.2018, Page 22
Þær Ása Fanney Gests-dóttir og Guja Sandholt óperusöngvarar eru listrænir stjórnendur Óperudaga í Reykjavík og hafa veg og vanda af
viðamikilli og fjölbreyttri dagskrá
hátíðarinnar.
Ása Fanney bjó og starfaði við
góðan orðstír sem mezzósópran-
söngkona í Þýskalandi í tólf ár áður
en hún flutti heim til Íslands. Hún
hefur starfað við söng og sjálfstætt
undanfarin ár við ýmis verkefni í
menningarlífinu. Guja Sandholt býr
bæði í Reykjavík og Amsterdam og
starfar eins og Ása bæði að skipu-
lagningu menningarviðburða og
sem söngkona. Um þessar mundir
syngur hún til dæmis stundum hlut-
verk Juliu Child í Bon Appétit!
Ása Fanney og Guja hafa staðið í
ströngum undirbúningi vegna hátíð-
arinnar í rúmt ár. Þetta er í annað
skipti sem hátíðin er haldin en árið
2016 var hún haldin í Kópavogi.
Guja: „Við ætlum að breyta
Reykjavík í óperu-, leik- og söngsvið
í tvær vikur og það verða alls kyns
mismunandi söngviðburðir í gangi
fyrir fólk á öllum aldri.
Við verðum úti um alla Reykjavík.
Til dæmis í Safnahúsinu, Hörpu,
Árbæjarlaug og Gerðubergi. Þá
verða skipulagðar heimsóknir í
skóla tengdar hátíðinni. Við létum
semja óperu fyrir börn. Hún heitir
Plast óperan og er eftir Gísla Jóhann
Grétarsson. Árni Kristjánsson sem
hefur mikið unnið með börnum og
kennt þeim leiklist gerði skemmti-
legt handrit sem fjallar um þetta
málefni; umhverfisvernd og plast.
Hann kemur skilaboðunum áfram
án þess að vera að benda með fingr-
inum. Mjög skemmtilegt og eitthvað
Ópera um alla Reykjavík
Guja Sandholt og Ása Fanney Gestsdóttir söngkonur og stjórnendur Óperudaga. Fréttablaðið/EyþÓr
Um helgina
Appið
Kahoot-appið er
til þess fallið að
gera allan lærdóm
skemmtilegan. Í því
er hægt að búa til spurningaleiki
og þrautir og spila bæði einn
eða í stórum hópi. Í appinu
er einnig að finna fjölda
þrauta og spurningaleikja.
Margir nota appið til
að gera heimalærdóm
barna sinna spennandi.
Fjallgönguskór í vetur
Á tískupöllunum
gengu fyrirsætur
í fjallgönguskóm
hjá nokkrum af
stærstu tísku-
húsum heims.
Það er fyrirtakshugmynd að
festa kaupa á slíkum skóm í
vetur og þá er ekki verra að
vera alltaf klár í að príla
eitthvað í hádeginu
meðan birtu
nýtur. Þessir
eru frá Ganni.
Lýsi og D!
Hér á landi þar sem sólar
nýtur lítið við og þá sér-
staklega á vetrarmánuðum
er þörfin fyrir D-vítamín úr
fæðu og fæðubótarefnum
meiri en í suðlægari löndum.
Íslendingar þurfa að bæta
sér upp sólarskortinn og það
má gera með því að taka inn
lýsi eða D-vítamíndropa.
Þeir sem vilja breyta til geta
prófað nýja síldarlýsið undir
merkjum Fisherman sem er
með vægu appelsínubragði.
Saga tveggja borga
Bókmennta-
unnendur
hljóta að
reka upp
gleðióp nú
þegar Saga tveggja
borga eftir
Charles Dick-
ens er komin
út í íslenskri
þýðingu.
Sannkallað
meistaraverk.
Ávanabindandi
kartöflur
„Frönsku
kartöfl-
urnar á
Roadhouse
svíkja engan,
svo góðar að þær
nálgast það að vera
ávanabindandi. Upp-
lagt að njóta þeirra um
helgina.“
Kolbrún Bergþórsdóttir
Forvitnilegt á Óperudögum
Plastóperan
Glæný ópera fyrir börn og foreldra eftir Gísla Jóhann
Grétarsson og Árna Kristjánsson. Hún fjallar um feðg-
inin, Kristin og Eldeyju, sem eyða deginum saman
heima hjá sér á starfsdegi í skólanum.
trouble in tahiti
Verður nú sett upp í fyrsta sinn á Íslandi en tón-
skáldið Leonard Bernstein hefði orðið 100 ára á
árinu. Óperan er aðeins tæp klukkustund að lengd og
verður flutt á ensku.
DUSt
Í verkinu segja fimm heillandi brúður í fullri stærð,
glóandi sópransöngkona og skuggaleg vera söguna
af heimi sem hefur verið leikinn grátt.
Darkness, Everything Went all black
fer fram í myrkri, ef til vill í annarri veröld. Óperan
er skrifuð fyrir tvo söngvara og raftónlistarmann og
fer fram á ensku. In the Darkness, Everything Went
All Black er samvinna milli Operation Opera og Teatr
Weimar.
Í dag hefjast Óperu-
dagar í Reykjavík
sem standa yfir til
4. nóvember. Settir
verða upp ýmsir við-
burðir í leikhúsum,
söfnum og tónlistar-
húsum borgarinnar
og einnig á óhefð-
bundnari stöðum
svo sem í Árbæjar-
laug og víðar.
sem bæði börn og fullorðnir geta haft
gaman af. Plastóperan verður sýnd í
Safnahúsinu sunnudaginn 21. októ-
ber og aðgangur verður ókeypis.“
Markmið þeirra með hátíðinni er
að kynna betur óperu og klassískan
söng fyrir Íslendingum.
Ása Fanney: „Við viljum stækka
áhorfendahóp óperunnar og bjóða
upp á viðburði sem eru ekki eins
formfastir og stórir og fólk kannski
þekkir eða heldur að ópera sé alltaf.
Þetta eru margir stuttir viðburðir
og aðgengilegir. En svo verða líka
hefðbundin verk á borð við Þryms-
kviðu eftir Jón Ásgeirsson í Hörpu.
Við nutum þess að fá veglega styrki
úr norrænum sjóðum þannig að
hingað eru að koma nokkuð margir
norrænir þátttakendur.“
Bæði Ása Fanney og Guja syngja
á hátíðinni. Ása Fanney syngur á
móti Aroni Axel Cortes í Trouble in
Tahiti. Guja gengur til liðs við Bar-
okkbandið Brák ásamt Hrafnhildi
Árnadóttur Hafstað í Fríkirkjunni
og syngur Händel.
Ása Fanney: „Markmiðið með
hátíðinni er líka að búa til nýjan
starfsvettvang fyrir söngvara og vekja
athygli á þeim mikla mannauði sem
við búum yfir.
Guja: Margir óperusöngvarar flytja
út og festast svo þar. Það þarf meiri
grósku í óperusenuna á Íslandi og
við viljum stuðla að því. Íslendingum
gefst á hátíðinni færi á að hlusta á
ýmsa framúrskarandi íslenska söngv-
ara og núna um helgina koma bæði
Hildigunnur Einarsdóttir mezzó-
sópran og Bjarni Thor Kristinsson
bassasöngvari fram á einsöngstón-
leikum í Hannesarholti. Bjarni Thor
tekur einmitt um þessar mundir þátt
í uppsetningu á Niflungahrings Wag-
ners í Þýskalandi.
Við ætlum
að breyta
reykjaVík í
óperu-,
leik- og
söngsVið
í tVær
Vikur.
2 0 . o k t ó b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
helgin
2
0
-1
0
-2
0
1
8
0
4
:2
8
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
2
1
-8
D
F
8
2
1
2
1
-8
C
B
C
2
1
2
1
-8
B
8
0
2
1
2
1
-8
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K