Fréttablaðið - 20.10.2018, Page 40

Fréttablaðið - 20.10.2018, Page 40
Dóttir mín er mikill snillingur og er sem betur fer með svipuð áhugamál og ég. Þannig erum við oft að búa til lög, föndrum mikið saman og svo búum við líka til alls kyns dansa. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Ljóðstafur Jóns úr  Vör Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir í átjánda sinn til ljóðasamkeppninnar um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Ljóðum skal skilað í fjórum eintökum undir dulnefni ekki síðar en 7. desember. Með hverju ljóði þarf að fylgja lokað umslag merkt dulnefninu sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð en öllum öðrum gögnum eytt. Athugið að ljóðin mega ekki hafa birst áður. Ljóðstafurinn verður afhentur ásamt viður- kenningum sunnudaginn 20. janúar 2019 við hátíðlega athöfn í Salnum. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar Skilafrestur í kepp nina er til og með 7 . d es em b er 2 01 8 / Verðlaunaafhendingin er liður í Dögum ljóðsins í Kópavogi. Nánari upplýsingar: menningarhusin@kopavogur.is eða 441 7607 Utanás kriftin e r Ljóðsta fur Jón s úr Vö r Mennin garhúsi n í Kóp avogi Digrane svegi 1 200 Kó pavogu r MENNINGARHUSIN.KOPAVOGUR. IS Eftir níu eftirminnileg ár með gleðisveitinni FM Belfast hefur Árni Vilhjálmsson, einn söngvara sveitarinnar, sagt skilið við félaga sína og hafið sólóferil. Hann kemur fram á Airwaves-tón- listarhátíðinni í næsta mánuði en fyrr í vikunni gaf Árni út fjórða lag sitt á árinu, Sides. Óhætt er að segja að tónlist Árna sé talsvert ólík þeirri sem hann var að fást við í FM Belfast þar sem lífleg elektrón íkin víkur fyrir rólegri tónlist með hjálp fjölbreyttari hljóðfæra. „Tónlistin sem ég gef út undir nafninu Árni Vil er á frekar persónulegum nótum. Ég hef mest unnið hana með Þóri Bogasyni (Thoracius Appotite) en hann er mjög hæfi- leikaríkur, bæði tónlistarlega og svo gerir hann frábær myndbönd.“ Innblásturinn segist hann sækja í ýmis stef úr lífi sínu. „Stefin eru samt örugglega á einhvern hátt almenn líka og eitthvað sem marg- ir hafa staðið frammi fyrir. Eins og t.d. óttann við að verða ekki það sem þú vilt vera, þráhyggju og vera með drauma en liggja svo bara í kvíða og aðgerðarleysi uppi í rúmi á Facebook og fylgjast með lífinu fjara út.“ Hálfgerðar geimverur Lögin fjalla líka á einhvern hátt um eitthvað sammannlegt, að sögn Árna. Um það hvað við erum lík og dílum við sömu hlutina en getum um leið birst hvert öðru eins og geimverur. „Þetta eru kannski að einhverju leyti barnalegar og persónulegur pælingar en lögin og textarnir eru unnir með lítilli ritskoðun. Textarnir eru á ensku af því hugðarefnin eru frekar almenn og þá er fínt að fleiri skilji orðin. Ég er samt orðinn frekar spenntur fyrir því að prófa líka að gefa út lög á íslensku.“ Um þessar mundir er verið að klára að mixa önnur lög plötunnar en hann reiknar með því að hún komi út fyrir jól. „Ég hef líka verið að vinna lög með Thomasi Stankiewicz sem er mjög klár pródúsent og ætlum við að gefa út nokkur lög á komandi mánuðum. Einnig kemur bráðlega út lag sem við Teitur Magnússon sömdum saman.“ Góður tími Árin níu með FM Belfast voru eftirminnileg að sögn Árna sem segir allar tónleikaferðirnar standa upp úr í minningunni. „Það er í rauninni frekar merkilegt að svona lítil indí elektrósveit hafi náð að túra sumar eftir sumar á hverju festivalinu á fætur öðru víða um heim. Einnig var mjög lærdómsríkt að vinna með Árna Rúnari og Lóu en þau eru einstaklega skapandi. Það sem ég lærði kannski líka er að maður verður að vera trúr sinni sannfæringu og gera það sem er satt fyrir mann sjálfan. Á tímabili var það FM Belfast en það tók endi eins og gengur og gerist. Eftir níu ár og þrjár plötur var ég orðinn þreyttur á að túra og fannst það ekki lengur jafn gefandi. Það var kominn tími á að ég gerði eitthvað nýtt og rannsakaði mína eigin rödd betur.“ Útvarpið skemmtilegt Þótt flestir þekki tónlistarmann- inn Árna á hann sér ýmsar fleiri listrænar hliðar. Hann er m.a. einn meðlima í leikhópnum Kriðpleir og listahópnum Art – Studio Art Collective sem var stofnaður nýlega. „Útvarpsleikritið Bónus- ferðin eftir okkur félaga í Kriðpleir var flutt á Rás 1 fyrir stuttu og er hægt að hlýða á það á vef RÚV. Það var mjög skemmtilegt að vinna leikrit fyrir þennan miðil en við höfðum ekki gert það áður. Við vorum ekki alveg vissir um hvernig dínamíkin á milli karakteranna myndi skila sér í útvarpi en við teljum að vel hafi tekist til. Leik- hópurinn var að skila inn umsókn í sviðslistasjóð og reikna ég með því að við vinnum nýtt verk á næsta ári.“ Ólíkar afurðir Listahópurinn Art-Studio Art Collective var stofnaður nýlega af Árna og vini hans Ými Grön- vold myndlistarmanni og Þórði Hans Baldurssyni, forritara og digital listamanni. „Við vinnum alltaf eftir ákveðnu ferli og höfum verið að búa til hitt og þetta, þar á meðal alls kyns varning eins og trefla, handklæði, boli og peysur. Einnig gerðum við orkudrykkinn Zenergy – Positive Energy Drink sem er skúlptúr og concept-verk um jákvæða orku.“ Hann segir ferlið sem þeir vinni eftir kalla eiginlega á að það verði alltaf eitthvað búið til. „Þess vegna hafa mjög ólíkir hlutir orðið til eins og t.d. költið okkar, The World Cult, sem er komið með um 50 meðlimi, orkustöðvasamfestingur, Thai nudd vagn, nýtt skjaldarmerki sem við unnum með Óla Stef og svo nýi pappinn sem er unninn með rapparanum og fjöllistamann- inum Joey Christ. Ég legg til að fólk fylgist með þessu á instagraminu okkar, @artstudioartcollective.“ Sjálfbær þróun til umræðu Þegar Árni sinnir ekki listinni og daglegu starfi sínu hjá Íslensku auglýsingastofunni, segist hann verja mestum tíma sínum með dóttur sinni og kærustu. „Dóttir mín er mikill snillingur og er sem betur fer með svipuð áhugamál og ég. Þannig erum við oft að búa til lög, föndrum mikið saman og svo búum við líka til alls kyns dansa.“ Kærastan hans, Snjólaug Árna- dóttir, pælir mikið í loftslags- málum og segir Árni þau verja mestum tíma sínum í að spjalla um sjálfbæra þróun. „Þar má nefna umræðuefni á borð við hækkun sjávar, plastmengun, offjölgun mannkyns og fleira. Henni finnst líka gaman að flytja fyrir mig alls kyns fyrirlestra, þá helst eitthvað tengt almennri lögfræði. Utan þess hef ég helst áhuga á tónlist, öllu tengdu sjálfshjálp, myndlist, sviðslistum og kannski gríni líka. Mér finnst líka gaman að gera grín. Ég hugsa að það sem mér þyki skemmtilegast sé að gera eitthvað skapandi í hópi.“ Rannsakar eigin rödd betur Árni Vilhjálmsson, fyrrverandi söngvari gleðisveitarinnar FM Belfast, hefur sagt skilið við sveitina og hafið sólóferil ásamt því að sinna fjölbreyttum verkefnum með ýmsum leik- og listahópum. „Það sem ég lærði kannski líka er að maður verður að vera trúr sinni sann- færingu og gera það sem er satt fyrir mann sjálfan. Á tímabili var það FM Belfast en það tók endi eins og gengur og gerist,“ segir Árni Vilhjálmsson sem undirbýr sína fyrstu sólóplötu um þessar mundir. MYND/ANTON BRINK 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . O K TÓ B e R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 2 0 -1 0 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 2 1 -C E 2 8 2 1 2 1 -C C E C 2 1 2 1 -C B B 0 2 1 2 1 -C A 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 1 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.