Stjarnan - 01.06.1919, Qupperneq 9

Stjarnan - 01.06.1919, Qupperneq 9
STJARNAN. 41 Engar biblíur þar. Allir vita að þar sem biblían er lesin hefir hún þau áhrif á fólkið, að það lifir í friði. Hvernig er því varið ? Ef hún væri skaðleg bók mundum vér váenta þess að finna hana í híbýlum hinna alræmdu glæpamanna. í New York er stórt safn þar sem þeir geyma alskonar þjófalykla, laghnífa, innbrots- járn, drápsvélar og skammbyssur, sem teknar hafa verið frá glæpamönnum. Heldur þú að í þessu safni sé eitt ein- asta. nýja testamenti? Hvers vegna ekki? Ef það væri skaðleg bók mund- um vér vænta þess að finna nýja testa- mentið í öðrum vasanum og skamm- byssuna í hinum hjá glæpamönnum. En þau eiga ekkert saman að sælda. Eitt kvel-dið var voðalegt rifrildi á ein- hverju heimili og maðurinn rotaði kon- una—með biblíu?—Nei, með vínflösku. par sem biblían er lesin ríkir friðurinn á heimilinu. ÖSruvísi en allar aðrar bækur. Hvað er það sem gjörir þessa bók öðruvísi en allar aðrar bækur? Hvers bók er hún ? Hverjir rituðu hana ? Flestir vantrúarmenn liafa undarlegar hugmyndir þessu viðvíkjandi, Postulasöfnuðirnir fengu guðspjöllin af þeim, sem höfðu ritað þau; og bréfin voru rituð og undirskrifuð af mönnum, sem þeir þektu mjög vel. Páll post- uli ritaði: “Kveðjan er með minni, Páls, eigin hendi, og er það merki á hverju bréfi. ” Hvað vitnuðu þessir höfundar um? peir boðuðu það, sem þeir höfðu heyrt, séð og vissu. Jóhannes postuli segir ekki: “pað sem mig hefir dreymt, ög það sem eg hefi ímyndað mér eða gisk- að á, boða eg yður,” heldur: “Efni vort er það, sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höf- um séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins.”—1. Jóh. 1:1. petta var vitnisburður þeirra. peir vitnuðu að þeir sáu Krist í lífi og dauða; að þeir sáu hann eftir upprisuna; þreifuðu á höndum hans, sáu naglaförin og spjót sárið. peir höfðu þekkingu á öllu þessu og vitnuðu um það. peir prédikuðu þann Ivrist seni dó, reis frá dauðum aft- ur. Farðu og’ láttu krossfesta þig' og rís þú upp aftur. pegar Lepaux, meðlimur hinnar frönsku stjórnarnefndar, kom til Tal- leyraiid og kvartaði undan því að hin nýju trúarbrögð—Theophilanthropy— tækju litlum framförum meðal fólksins svaraði hinn gamli slægi stjórnmála- maður: “Mig furðar als ekki á þeim erfiðleikum, sem þú mætir í tilraunum þínum til að útbreiða þessa nýju trú. pað er enginn hægðarleikur að koma inn nýjum trúarbrögðum hjá fólkinu. En það er eitt, sem eg vil ráðleggja þér að gjöra, og þá mipi þér vafalaust tak- ast betur að framkvæma það.” “Hvað er það ? Iívað er það ?” spurði Lepaux með ákefð. “pað er þetta, ” svaraði Talleyrand: “farðu og' láttu krossfesta þig, grafa þig, og rís þú svo upp aftur á þriðja degi. .Parðu svo út um landið og gjörðu kraftaverk, vek þú hina dauðu, lækna þú alskonar sjúkdóma og rek þú út djöfla, þá er enginn vafi á að þú munt ná takmarki þínu. ” Hinn mikli lieimspekingur gekk í burtu án þess að gjöra neinar athuga- semdir. Enn liefir engum fríhyggju manni hepnast að uppfylla þessi skil- yrði. En Kristur dó og reis frá dauð- um aftur. Og' til þess að kunngjöra þennan dýrðlega sannleika létu fylgj-

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.