Stjarnan - 01.06.1919, Qupperneq 11

Stjarnan - 01.06.1919, Qupperneq 11
STJARNAN. 43 eina klukkutíma, en þegar innihald meltingarfæranna var rannsakað fannst meira eitur í maga hennar en þarf með til að drepa tvo eða þrjá nienu. Til þess að koma með þess konar spádóma þarf maður ekki að vera leiddur af Guðs anda. Pyrirsagnir spámannanna í ritniiig- unni bera ljósan vott um innblástur hennar. Eins lengi og’ Babýlon liggur í rústum, eins lengi og Níníveborg er ó- bygð og í eyði, eins lengi og Egypta- land er lítilfjörlegra en hin ríkin, eins lengi og Týrus er ber klettur í hafinu þar sem fiskimenn þurka iiet sín, eins lengi og Gyðingum er tvístrað meðai allra þjóða á jörðinni, eins lengi og Jer- úsalem er fótumtroðin af heiðingjunum, eins lengi og veraldarríkin halda áfram á þeirri braut, sem biblían bendir á—• einmitt svo lengi höfum vér sönnun fyr- ir að alvitur Guð stendur bak við allar fyrirsagnii' þeirrar bókar, og “að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns.” Uúdraverður höfundalisti. Engin bók er rituð af mönnum á svo misjöfnu stigi. Iíérna finnum vér orð konunga, höfðingja, skáida, vitringa, heimspekinga, fiskimanna, stjórnmála- manna og mentamanna, sem höfðu ver- ið “fræddir í allri speki Egipta,” og stundað nám við háskólann í Babel, og setið til fóta lærifeðranna í Jerúsalem. Hún er rituð af mönnum í herleiðingu, !á. eyðimörkum, í tjaldbúðum liirðara, “í grænu haglendi” og “við hægt rennandi vatn. ” Meðal liöfunda henn- ar eru tollheimtumenn, hirðar og jarð- yrkjumenn. Meðal þeirra finnum vér fátæka og’ ríka, stjórnmálamenn, prédik ara, útilegumenn, leiðtoga, lögfræðinga dómara og menn af öllum stéttum. Biblían er í sannleika stórmerkilegt bókasafni. í því finnum vér veraldar- sögu, ættartölur, þjóðalýsingar, laga- safn, siðafræði, spádóma, ljóðmæli, mál- snild,læknisfræði, heilbrigðis reglur, mann féiags fræði og fullkomnar regiu'- fyrir hegðun í daglega lífinu. pað er als- konar uppfræðslur í henni; en livaða ó- samræmi mundum vér ekki finna e_f þessar 66 bækur væru ritaðar af mönn- um, sem hefðu ritað eftir eigin hug- þótta. Ef til dæmis læknisfræðilegt verk væri ritað af 30 eða 40 læknum,— stórskamtalæknum og smáskamtalækn- um, uppskurðarlæknum og nuddlækn- um, o.s. frv.—og svo reyna að lækna mann eftir ráðleggingu þeirrar bókar. Heldur þú að hann myndi fá góðan bata ? Ein og sama veran hefir innblásið alla bókina. pað tók 1,500 ár að rita þessa bók, og maðurinn sem ritaði seinustu bókina hafði ekkert samband við þann sem byrjaði verkið. Hvernig gátu þessir óháðu menn ritað aðra eins bók? Aðr- ar bækur eldast og sumar þeirra verða aldrei lesnar þegar þær eru orðnar 10 eða 20 ára gamlar; en þessi bók hefir lifað gegnum allar aldir og er enn öll- um öðrum bókum fremri. Vér skulum segja að í einhverri borg sé heimssýning og inn í einn salinn komi 40 menn frá ýmsum löndum heims ins, og hver maður liafi með sér falleg- an marmarastein, sem er tilhöggvinn. peir setja steinana frá sér á gólfið og’ taka sér sæti. par næst kemur annar maður, sem tekur steinana og raðar þeim þannig niður að þeir verða að fagurri myndastyttu af einhverjum heimsfrægum manni. Allir áhorfend- urnir hrópa yfir sig af undrun og segja:

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.