Stjarnan - 01.06.1919, Page 19
STJARNAN.
51
að þér skjátlist nema þú biðjir til Guðs.
þii veizt að refsiclómar Guðs eru í land-
inu og hugsandi menn og konur sjá að
voða fyrirburðir eru í vændum. Með
þetta fyrir augunum, biður þú til Guðs?
Eg spyr ekki hvort þú segir einhverja
bæn. Eg spyr ekki hvort þú fyrir
siðasakir stundum kallir á uafu Guðs,
heldur ekki hvort þii á opinberum sam-
komum, þegar þú ert beðinu um það,
gjörir bæn til Guðs. Eg spyr ekki
hvort þú kallir á Guð þegar eitthvað
voðalegt hendir og eyðilegging og
dauði vofir yfir þér. Eg spyr: Biður
þii til Guðs? Talar þú við Guð eins og
vinur við vin? Lítur þú upp í ásjónu
hans og hvíslar orð, sem hann einn get-
ur skilið? Ert þú í félagsskap við liann
svo að þú, eins og elskandi við h^jðið
sem nauðugur verður að kveðja unu-
ustuna, metur mikils hvert augnablik,
sem þú getur haft í samfélagi við hann.
Vildir þii heldur vera vinalaus, heim-
ilislaus, vinnulaus, matarlaus, eirðar-
laus en að tapa einni stundu í samfél-
agi við haun? Flýtir þú þér í burtu
frá mannlegum félagsskap þegar dags-
Verk þitt er á euda til þess að þú megir
njóta félagsskapar, huggunar, ráðs, að-
finningar, og kærleika þíns náðarríka
frelsata? Biður þú til Guðs?
SÆLIR ERU ÓVINIR MÍNIR
Sælir eru óviuir mínir, því þeir segja
mér sannleikann þegar vinir mínir
smjaðra fyrir mér.
Sælir eru óvinir mínir, því að þeir
reyna að hindra alla menn frá því að
tala vel urn mig.
”"Sælir eru óvinir mínir, því að þeir
segja mér það, sem þeim mislíkar hjá
mér, frekar en það, er þeim líkar vel.
Sælir ci'U óvinir mínir, því að þeir
gefa mér eitthvað að elska, sem liggur
fyrir utan hinn þrönga hring minnar
eigingirni.
Sælir eru óvinir mínir, því að þeir
nuclda uppgjörðar málið af, svo að mitt
sanna útlit kemur í ljós.
Sælir eru óvinir mínir, því að spegill
þeirra hnífilyrða og ofanígjafa sýnir
mér sjálfan mig.
Sælir eru óvinir mínir, því að þeii’—
eins og hinn sanni læknir — dirfast að
opinbera mér minn innvortis fúa, sem
lengi héfir verið hulinn af dekri vina
minna.
Sælir eru óvinir mínir, þyí að þeir
draga fram í hádegis birtuna mína
mörgu breyskleika, sem lengi hafa ver-
ið hjúpaðir af mínum afvegaleiddu og
afvegaleiðandi vinum.
Sælir eru óvinir mínir, því að þeir
stinga mig í mitt á tálardregna hjarta
og opinbera til mergjar mitt syndsam-
lega líf og leiða mig þannig, ef eg' er
vitur, til að hreinsa hina óhreinu af-
kima míns hjarta og forðast skömm og
vanvirðu.
Sælir eru óvinir mínir þegar þeir út'
hiiða mér og ofsækja mig og tala als-
konar ilt um mig í sannleika til þess að
svala sinni eigin hefnigirnd. þess vegna
fagna eg og er glaður, því að þesskonar
aðferð mun gjöra mig hraustan ef eg
aðeins er nógu vitur til að skilja orð
þess, sem sag'ði: “Elskið óvini yðar. ”
‘ ‘ Repairer ’ ’
í Vesturheimi eru 100,000 Brahma-
trúarmenn. Buddhatrúarmenn eru víst
ekki fámennari, því þeir hafa reist ekki
færri en 74 goðahof í þessari álfu. í
borginni Chieago eru 24 Móhamedstrú-
ar söfnuðir. Meðlimatala þessara safn-
áða er 5,000. Ekki vantar heiðindóm
í svokölluðu kristnu landi.