Stjarnan - 01.06.1919, Qupperneq 24
STJARNAN.
56
reykja úr pípu sinni, sagði eg við hann :
“Jæja, þú ert ennþá með þessa gömlu
pípu, Ambrose ? ’ ’
“Eg' er hættur að bragða alskonar
áfengi, bæði okkar eigið og hvíta
mannsins, og eg er einnig hættur að
borða svínakjöt og alskonar óhreina
fæðu,” sagði hann, “heldur Jux að það
sé nauðsynlegt að hætta að nota tóbak
líkat”
“Drottinn hefir veitt þér sigur yfir
öllu hinu,” svaraði eg;.“hann langar
að veita þér fullkominn sigur; ætlar þú
ekki að treysta honum?”
“Jú, eg ætla, ” sagði hann.
Við vorum staddir í skógarjaðrinum
Hann tók 'pípuna úr munninum og
fieygði henni eins langt inn á milli hrísl
anna og hann mögulega gat; þar næsf
tók hann tóbakið úr vasanum og sendi
það sömu leiðina.
Níu ár liðu og eg fór á kirkjuþing,
sem haldið var í eyjunum. pegar Am-
brose reis á fætur til að gefa sinn vitnis-
burð gat hann ekki tárabundist. Hann
var ætíð brjóstgóður. Hann fór að tala
beinlínis til mín og sagði: “Manstu
eftir hinni gömlu pípu, sem eg fleygði
fvrir níu ái'umf” Eg svaraði: “Eg
gleymi henni aldrei. ” Hann sagði:
“pessi níu ár hafa verið gleðileg og
blessunarrík. Heimili mitt er nú alt
öðruvísi; eg er ætíð hjá eiginkonu
minni í bænum. Drottinn hefir bless-
að mig og eg get með fögnuði sagt, að
á þessum níu árum hefi eg aldrei not-
að tóbak. Margir af mínum ensku vin-
um hafa reynt að gefa mér í staupið, en
eg liefi aldrei viljað þiggja það. þeir
hafa boðið mér sítrónuvatn, en þegar
eg bragðaði það fann eg að þeir voru
búnir að láta vín í það. En Guð hefir
varðveitt mig og fyrir hans aðstoð hafa
þessi níu ár verið blessunarík. ”
Ekki hafa einungis bæjarbúarnir og
kona hans séð að Drottinn hefir hjálp-
að honum, heldur vissi alt fólkið það.
Einnig yfirvöldin komust að raun um
þetta og ekki leið langur tími fyr en
honum var boðið ágætis embætti; því
að allir sáu að hann hafði algjörlega
breyst.
Kaupmaður nokkur, sem var frí-
hyggjumaður,.kom til mín skömmu eft-
ir að Ambrose hafði tekið sinnaskiftum
og spurði: “Hvað gengur að Amb-
rosef”
“Ilvað haldið þér?” svaraði eg.
“Eg veit það ekki,” sagði hann; “en
hann kom inn til mín og borgaði mér
tvö pund og tíu (enska peninga), sem
hann hefir skuldað mér í mörg ár. Eg
var algjörlega hættur að vonast eftir
þessum peningum. ’ ’
‘“Yitið þér ekki að maður, sem hefir
tekið sinnaskiftum, borgar skuldir sín-
ar?”
“Hvort hann hefir tekið sinnaskift-
um eða ekki, hefi eg enga hugmynd um,
en það að eg fékk mín tvö pund og tíu
(kringum $12)var mér mikið gleðiefni”
pannig kom það í ljós að Drottinn
hafði gjört rnikla hluti fyrir þennan
mann og að mikil breyting hafði átt sér
stað í lífi hans. Og frá þeim degi til
dauðadags var hinn aldurhnigni höfð'
ingi trúr. Drottin getur á undraverð-
an hátt verkað á hjörtu heiðingjanna.
J. E. F.
HEIMSMENNINGIN MEGNAR pAÐ
EKKI.
Aðeins eitt afl getur breytt
heiðingjanum.
Sagnfræðingurinn Niebuhr segir oss
að allar hinar erfiðu og margbreyttu