Stjarnan - 01.06.1919, Page 30
62
STJABNAN.
dögg Ijósins, og jörðin skal fæða vof-
urnar. ” Es.26:19.
Fréttir
Marta fanii huggun í þessum sann-
leika á þeim sorgardegi þegar bróðir
hennar, Lazarus, var dáinn. Athugið
orðin: “Jesús segir við hana: Bróðir
þinn nmn upp rísa. Marta segir við
hann: “Eg veit, að hann mun upp rísa
í upprisunni á efsta degi.” Jóh. 11: 23,
24.
Jú það verður upprisa frá dauðum.
Hinir heilögu munu koma fram úr duft-
inu og fara heim til föðurhúsanna. En
sú kenning, sem sumir fara með, að
hinir dauðu fari heim í dýrðina strax
eftir dauðan, ónýtir kenning ritning-
arinnar um upprisuna og gjörir hana
þýðingarlausa; því að ef vér færum
til himins við dauðann mundi engin
þörf vera á upprisu frá dauðum. Ef
hinir heilögu er þegar í dýrðinni og
njóta sælunnar, mundi það vera óþarfi
að kalla þá fram úr gröfum sínum.
En nú er það áreiðanlegt að upprisan
mun eiga sér stað; ‘ ‘ því að ef dauðir
rísa ekki upp, er Kristur heldur ekki
upprisinn; en ef Kristur er ekki upp-
risinn, er trú yðar fánýt, þér eruð þá
enn í syndum yðai', og jafnframt einnig
þeir glataðir, sem sofnaðir eru í trú á
Krist. Ef vér höfum sett von vora til
Krists í þessu lífi og alt er þá úti—þá
erum vér aumkvunarverðastir allra
manna.”
En nú er Kristur upprisinn frá
dauðum sem frumgróði þeirra, sem
sofnaðir eru. þvi að þar eð dauðinn kom
fyrir mann, kemur og upprisa dauðra
fyrir mann, því að eins og allir deyja
fyrir samband sitt við Adam, svo munu
allir lífgaðir verða fyrir samfélag sitt
við Krist! ” 1. Kor. 15:16-22. N.P.N.
pegar Wilson forseti heimsótti Róma-
borg gaf páfinn honum jnynd af kross-
festingu Péturs postula sem er verðsett
á $40,000.
Bretar ætla að lialda standandi her
eina miljón manna til þess að varð-
veita friðinn í hinu mikla ríki.
Megnar meira! Hinn rússneski bibl-
íuskóli í Philadelphia hefir bænaturn,
þar sem annaðhvort einhverjir Icennar-
anna eða nemendanna eru að biðja dag
og nótt til Guðs, að hann vilji frelsa
landa þeirra. Bænin megnar meira en
sverðið og það bezta er að hinn lítilmót-
legasti meðal mannanna getur notað
hana.
Pólkstalan á Indlandi er tekin á einu
einasta kveldi þegar 315,000,000 manna
eru skrásettir, þó þeir tali 150 tungu-
mál. Til þess að skrásetja þennan
hóp nota þeir 300 smálestir af pappír
og ein miljón manna vinnur að því.