Stjarnan - 01.01.1920, Síða 1
STJARNAN
Gleðilegt Nýtt ár!
“Nú árið er ljðið í aldanna skaut
Og aldrei það kemur til baka.”
Hve alvarlegar hugsanir vekja ekki þessi
unaSsfögru orð skáldsins í hjörtum hugsandi
manna. Árið 1919 er liðið og árið 1920 breiðir
brosandi faðminn út á móti oss, en guðdómur-
inn einn veit hvað það ber í skauti sínu.
“Stjarnan” sendir öllum kaupendum sínum
Ijósgeisla af heillaóskum um gott og farsælt
ár, og bendir um leið á uppsprettu allrar far-
sældar og hamingju. Ó, þú vildir gefa gaum
að boðorðum mínum, þá mundi heill þín verða
sem fljót og réttlæti þitt sem bylgjur sjáfarins”
Es. 48: 18
í þessu ráði Drottins höfum vér lykilinn að
farsæld hins komandi árs. Að gefa gaum að og
breyta eftir boðorðum Drottins gjörir það að
verkum að maður kemst í samræmi við himin.
inn sjálfan. Og sá, sem er í samræmi við hjm-
ininn, er kominn inn á þá leið, þar sem blessun
himinsins stréymir út frá hásæti hins náðar-
ríka Guðs.
Janúar, 1920
Verð 10 Cents