Stjarnan - 01.01.1920, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.01.1920, Blaðsíða 5
STJARNAN 5 vitnisburður þess manns' sem spurði hann. Og meðan Pílatús stendur þar sem miðdepill GyðingaskríMns kemur maður, sem gefur olnbogaskot til hægri og vinstri handar, því hann á brýnt er- indi. Hann flýtir sér upp til Pílatúsar, réttir út höndina og gefur honum bréf. Hann opnar það og verður litverpur meðan hann er að lesa eftirfylgjandi orð : “Láttu þennan réttláta mann vera því margt þungt hefir mér borist í drauma í dag hans vegna. ” B.réfið er frá konu Pítatúsar vitnisburður hennar um Krist. Yður vantar að vita hvað óvinum hans virðist um hann? Ilérna er það: “Ekkert saknæmt hjá h-onum” Yður vantar að vita hvað heiðingjum virðist um hann? Hvað -segir þessi heiðingja kona um hann? Hún nefnir hann: “þennan réttláta mann. ” Júdas sem sveik haxm. Lítið nú upp, þama kemur Júdas inn. Hann ætttí að ver.a góður vottur. Lát- um oss tala við hann. Komdu hingað Júdas og segðu oss, hvað virðist þér um Krist? þú þektir meistarann vel; þú seldir hann fyrir 30 silfur peninga; þú sveikst hann með kossi; þú sást ’hann gjöra k-raftarverkin; þú varst með hon- um í Jerúsalem; í Betaníu, þar sem hann upp vakti Laziarús frá dauðum, varst þú með. Hvað viiðist þér um hann ? Eg get séð Júdas þar sem hann gengur inn til æðstaprestsins; eg get heyrt hringlið þega-r hann fleygir pen- ingunum inn á musterisgólfið: “IEa gjörði eg, er eg sveik saklaust blóð!” þetta er maðurinn, sem sveik hann og hvað honum virðist um hann. Já, þeir sem voru sekir um morð hans gáfu hon- um þann vitnisburð, að hann væ-ri sak- laus maður. Hinn rómverski himdraSshöfðingi. Látum oss biðja hundraðshöfðingj- ann, sem var viðstaddur þegar Kristur var krossfestur, að koma inn. Hann var foringi hinma rómversku stríðs- manna. Hann skipaði þeim að láta Jesúm bera krossinn; hann skipaði þeim að reka naglana gegnum hendur -hans og fætur og að stinga spjótinu í síðu hans. Látið hundraðshöfðingjann koma fram. Hundraðshöfðingi, þú varst foringi böðlanna; þú sást um það, að skipun þín var framkvæmt; þú B-ásit hann deyja og heyrðir hann tala á krossinum. Segðu oss, hvað virðist þér um Krist ? Hlustið nú á hann! Hann ber sig á brjóst og hrópar: “Sannar- lega var þessi maður Guðs sonur. ” Ræningiim á krossinum Eg get ka-llað á ræningjann á kross- inum og spurt hann -að því hvað honum virði-st um Krist? Fyrst fór hann að brigzla honum um ýmislegt og lastmæla honum. En þegar hann bæit.ti ráð sagði hann: “ þessi hefir ekkert illt aðhafst. ’ ’ Illir andamir Eg get farið ennþá lengur. Eg get kallað inn djöflana sjálfa og beðið þá að bera vitni. Hafa þeir nokkuð -að segja um hann? Hvað er þet-ta! Djöfl- arnir sjálfir nefna hann Guðs son. í Markúsar guðspjallinu lesum vér iað hinn óhreini andi hróp-ar: “þú ert sonur Guðs!” Menn segja “Já” eg trúi að' Jesús Kristur sé sonur Guðs af þvi skynsemi mín segi-r mér þetta og þess ve-gna mun eg hólpinn verða.” Eg ætla að segja yður, að djöflarnir gjöra hið sama. Og þei.r gjöra jafnvel meira en það, þeir skelfast. Vitnisburður vina hans—Jóhannes skírari. Nú skulum vér láta vini hans koma

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.