Stjarnan - 01.01.1920, Blaðsíða 2
2
STJARNAN
Loftskeytastöð Guðs
Eftirfylgjandi kafli er útdráttur úr
ræðu, sem dr. A. Wesley Mell, ritari í
vestur deild hins Ameríska Biblíufélags
hélt á allsherjar fundi Sjöunda Dag’s
Adventista, sem haldinn var í San
Prancisco.
‘ ‘ pað er viðfangsefni biblíufélaganna
að gefa öllu mannkyninu Guðs orð.
Hugsið út í það hvaða verk það hefir
verið að þýða ritninguna á sjö hundruð
tungumál. Guðs orð verður loftskeyta
stöð. Menn hugsuðu, að það, að geta
staðið í San Francisco og talað við
kunningja í New York væri mikið af-
reksverk, en eg held að' biblíufélögin
hafi framkvæmt meira en það. pau
hafa náð sambandi milli svertingjakof-
anna í Afríku og hinnar nýju Jesúsal-
em. pau hafa náð sambandi milli tjald-
búða Indíána og hinnar himnesku borg-
ar, milli hinnar leitandi hungruðu sálar
og hins elskuríka himneska Föður.
“Yór veittum heiðursmerki þeim
manni, sem stjómaði skurðargreftinum
þegar Panarr>a skurðurinn var grafinn
—sem gróf þessa rennu—er leyfir skip-
unum að sigla úr einu hafi í annað. En
trúboðarnir sem þýða ritninguna, gra.fa
sambandsskurð milli Guðs og manná,
svo hugsanir, opinberanir og áform h:ns
volduga Guðs verða kunngjörð öllum
mönnum, jafnvel heiðingjunum. petta
er hið háleitasta verk í heiminum.
“Núna nýskeð, pantaði bókavörður-
inn á opinberu bókasafni í Gyðinga
hverfi f New York fimm þúsund biblíur.
Hið Ameríska Biblíufélag spurði hann:
“Hvers vegna viljið þér fá svona mörg
eintök af ritningunni ? ” Svarið var
þetta: “Almennt vilja Gyðingar nú fá
alt Guðs orð.” Og núna síðan Eng-
lendingar tóku Jerúsalem er eins og
vakningarskúr hafi streymt niður yfir
Gyðiga og þeir rannsaka spádómana.
sem fjalla um hina heilögu borg, og nú
Iesa þeir nýja testamentið til að sjá
hvað það segir um þeirra Zíon og end-
urreisn ísraels ríkis.
Árið sem leið notuðu þeir kringum
tvær miljónir af þessum þögulu trúboð-
um. 1 Koreu var biblíusölumaður, sem;
leigði átta innfædda menn til að hjálpa
sér að selja. Afleiðingin af ferð þeirra
til norður hluta landsins var sú, að þeir
seldu fjögur hundruð o.g fimtíu þúsund;
eintök af guðspjöllunum.
“Dr. Carrington sagði að hin víð-
lesnasta bók biblíunnar í Síam væri;
bók Jónasar spámanns. Hún hefir
komið fleiri mönnum í því landi tihað
hætta .skurðgoðadýrkun og snúa sér að
hinum lifandi Guði en nokkur önnur j
saga í allri ritningunni. Dr. Carrington
var mikill biblíuþýðari, prehtari og út- ;
gefandi og þegar liann dó sagði kon-
ungurinn í Síani: “ Vér höfum þesspm j
manni meira að þakka en þeim manni, I
sem lagði jámbrautir voriar; því áð
þessi maður hefir gefið okkur bók bók-
anna, sem hjálpar til að lyfta. Síam upp
í ljósið nýrra tíma.
“í norður hluta Japan þar sem hið
Ameríska biblíufélag aðallega starfar
meðal Japana, hefir það útbýtt fleiri en
300,000 eintökum af Guðs orði. ”