Stjarnan - 01.01.1920, Blaðsíða 16
Hann gaf Drottni fimm cents
í gær bar hann fagra rós í kraga
horni á frakka sínum. En þegar
saniskotið var tekið í kirkjunni í
dag gaf hann Drottni fimm cents
Hann hafði marga dollara seðla,
ýmsa smápeninga, eftil vill dollars
virði, ,en hann leitaði vel og lengi
og þegar hann svo fann þetta aum-
ingja litla fimm-cent-a-stykki lagði
hann það í samskotið til að styðja
hina stríðandi kirkju í bairáttu
hennar móti spillingu heimsins,
holdsviljanum og djöflinum.
Silkihattur hans var undir sæ-t-
inu, sem hann sat á og göngustaf-
ur hans og hanzkar lágu við hlið-
ina af honum og fimm-centa-stykk
ið var í samskotinu — heilt fimm-
centa-stykki!
f gær eftir miðdag mætti hann
einum kunningja sinna og í félagi
höfðu þeir fáeinar hressingar. Á
reikningnum, sem drengurinn
færði honum, stóð stimpiað $0.35.
Hann tók dollarseðil, sem hann
gaf piltinum til að borga fyrir
hressingamar; og þegar drengur-
inn færði honum afganginn gaf
hann honum fimm cents — fimm
cents handa Drottni og fimm eents
handa veitingaþjóninum.
Og þessi sami maður lét fægja
skóna sína þennan sama eftir mið-
dag og borgaði án möglunar tíu
cents fyrir verkið. Hann lét einn-
ig raka sig og það var honum jafn
kært að börga rakaranum fimtán
cents. Hann tók með sér heim
handa konu sinni sælgæti, sem
kostaði fjörutíu cents og kringum
umbúðirnar var fagurt marglitað
band. Já, hann gaf einnig Drottni
fimm cents!
Hver er Drottinn ? Hver er
hann? Jú, maðurinn tilbiður hann
sem skapara alheimsins, sem þann,
er leiðir stjörnumar út eftir þeirra
brautum og samkvæmt hvers óum-
breytanlegu lögmáli himnarnir
standa. Já, þetta gjörði einnig
þessi rnaður og hann gaf fimm
oents rtil þess að styðja hina stríð-
andi kirkju.
Hver er hin stríðandi kirkja?
Hin stríðandi kirkja er kirkjan,
sem í orðum og verkum sýnir sig-
urför Guðs safnaðar á jörðinni.
pcssi maður vissi að hann var
aðeins ögn í alheiminum og að
hinn Almáttugi er óendanlegur og
þar eð hann vissi þetta stakk hann
hendinni í vasann, fann fimm-
centa-stykkið og gaf Drotni það.
En náðugur og miskunsamur er
Drottinn, “því að hann þekkir eðli
vort” svo hann rotaði ekki mann-
inn strax fyrir sakir nízku hans,
heldur gefur hann lionum í dag
hans daglega brauð.
En fimm-centa-stykkið skamm-
aðist sín ef maðurinn gjörði það
ekki. pað faldi sig undir tuttugu
og fim.m centa stykki sem fátæk
þvottakona gaf.