Stjarnan - 01.02.1921, Side 4
20
STJARNAN
erum íklæddir réttlæti sonar hans, sem
hylur hinn mikla fjölda synda, er vér
drýgðum meðan vér vorum börn hins
óguölega heims.
I stendur fyrir innblástur ritningar-
innar. Þessi kenning er örugt vígi, sem,
þrátt fyrir hin mörgu áhlaup óvinanna,
stendur feins óhagganlegt í dag og það
gjöröi fyrir nítján öldum. Eins lengi
og spádómarnir rætast fyrir augum vor-
um, og eins lengi og Guös orö er lifandi
og kröftugt, fært um að lyfta þeim upp
úr syndasorpinu og gjöra þá að nýjum
mönnum, höfum vér enga ástæðu til að
efast um innblástur biblíunnar. “Öll ritn-
ing er innblásin af Guði og nytsöm til
lærdóms, til sannfæringar gegn mótmæl-
um, til leiðréttingar, til mentunar í rétt-
læti, svo Guðspnaður sé algjör og til alls
góðs verks hæfilegur.” 2 .Tim. 3: 16, 17.
S stendur fyrir son Guðs. Þetta vígi
er í hjarta nafns 'hans og er það hið
rammbyggilegasta þeirra allra. Hafa
verið gjörð mörg áhlaup á þetta vígi, en
hingað til hefir það staðist allar þær á-
rásir, sem 'bæði menn og djöflar hafa
gjört. Yfir þessum kastala blakta marg-
ir og skrautlegir fánar. Á einum stend-
ur með stórum stöfum “FRELSAR1”.
á öðrum stendur “MEÐALGÁNGARI”
og á hinum þriðja stendur “LÍFGJAFI”
o. s. frv., svo það er engin furða þó að
mótstöðumenn Krists reiðist við að sjá
börn hans leita sér hælis fyrir innan
þessar rammbygðu vggirðingar, sem
jjeim er ómögulegt að eyðileggja.
T stendur fyrir hin tiu boðorð Krists.
Kristur er löggjafinn. Es. 33 : 22. Hann
hefir hátíðlega kunngjört i margra votta
viðurvist, að iþessi tíu boðorð muni vera
í gildi eins lengi og alheimur er við lýði.
Matt. 3: 17-19 og Sálm, 111:7, 8. Eftir
þessum boðorðum munu allir menn
verða dæmdir. Jak. 2:12, Róm. 3:19.
Söfnuður Krists mun varðveita þau og
breyta eftir þeim öllum. Op. 12:17; J4:
12; Zef. 2:3. Þeir, sem breyta eftir
boðorðum Krists, munu komast inn í
hina nýju Jerúsalem, borða af ávöxtum
lífstrésins og lifa eilíflega. Op. 22: 14.
(Eldri þýðingin.J
U stendur fyrir umbun Guðs. Öll
biblían frá upphafi til enda er full af
dýrmætum fyrirheitum um hina ríku
umbun, sem Kristur mun veita börnum
sínum þegar hann kemur i dýrð sinni til
að sækja þau. Móses kaus heldur að
líða vanvirðu Krists til þess að öðlast
þessi miklu laun, en að verða konungur
Egyptalands um stuttan tíma. Páll
postuli mat tjón sitt í þessum heimi ekki
meir en sorp til þess að hann gæti feng-
ið umbun Krists. Píslarvottarnir létu
með gleði lífið til þess áð öðlast hlutdeild
í ríki Krists, því “mikil eru laun yðar á
himnum”, segir Kristur.
R þýðir rétta meðferð likamans. Bæði
gamla og nýja testamentið eru full af
hinum ágætustu heilbrigðisreglum. Þeim,
sem gefa öllum þessum reglum gaum og
ekki eitra eða skemma líkami sína með
því, sem Guð bannar mönnum að eta og
drekka, og umfram alt forðast sauriifn-
að, hefir Guð löfað að varðveita frá hin-
um hræðilegu og ólæknandi sjúkdómum,
sem á þessum tímum herja á mennina í
öllum löndum.
'Þetta eru í fám orðum hinar sjö að-
alkenningar í söfnuði Krists á jörðinni.
Allar þessar kenningar eru fólgnar í
nafni Krists.
Kæri lesari, ef þú elskar nafn hans.
sem lagði líf sitt i sölurnar til þess að
frelsa þig, munt þú fúslega breyta eftir
ölslum kenningum hans og verða með-
limur safnaðar hans. Og mundu eftir,
að “ekki er hjálpræðið í neinum öðrum,
því að eigi er heldur annað NAFN undir
himninum, er menn kunna að nefna, er
oss sé ætiað fyrir hólpnum að verða.”—
Postulas. 4: 12.
Nafn Satans.
Satan þýðir “mótstöðumann” eða
“fjandmann hins góða”. Biblían kenn-
ir skýrum orðum að einu sinni Ihafi þessi
vera verið hinn æðsti engill á himnum.
(Esek. 28:13-19). Iiann gjörði upp-