Stjarnan - 01.08.1923, Blaðsíða 1
Vér höfum allir séð þá.
Menn, sem eru upp með sér af lítillæti sínu.
Menn; sem sífelt eru að masa, en segja samt
lítið.
Menn, sem eru fátölugir, en segja þó mikið.
Menn, sem hafa hátt, en framkvæma þó lítið.
Menn, sem tala fátt, en gjöra mikið.
Menn, sem virðast vera risar, en koma fram
eins og engisprettur.
Menn, sem líkja má við engisprettur, en eru
þó dugandi eins og risar.
Menn, sem eru vel ti.1 fara, en illa siðaðir.
Menn, sem halda að þeir séu trúaðir, af því
að þeir eru klökkir á svipinn.
Menn, sem ekki fyrir nokkurt gjald vilja
höggva höfuðið af hænuunga, en sem gjöra alt
er í þeirra valdi stendur til að vega náungann
með tungunni.
ÁGÚST 1923. Winnipeg, Man.
Verð: 15 cents