Ný Dögun - 01.11.1993, Blaðsíða 5

Ný Dögun - 01.11.1993, Blaðsíða 5
/\)ý Dögurv Frá ritstjóra Ágætu lesendur Hér kemur út 3. árgangur tímarits Nýrrar Dögunar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð í Reykjavík. Tímaritið í ár er byggt upp út frá þeirri hugsun, að syrgjendur fái ábendingar um úrræði, sem nota megi eftir atvikum. Samtökin hafa núna opnað eigin skrifstofu í Sigtúni 7 í Reykjavík og er það von okkar, að með tímanum verði hægt að auka þá þjónustu, sem þar er hægt að veita, t.d. upplýsingaþjónustu hvers konar. Opin hús og fyrirlestrar hafa verið haldnir í Safnaðarheimili Grensáskirkju þetta árið. Nú í haust hófum við síðan vinnu í svokölluðum nærhópum, sem eru lokaðir, fámennir hópar, þar sem syrgjendum gefst tækifæri til að ræða um sorg sína á samverustund, þar sem návist og traust eru höfð í öndvegi. Þökk sé stuðningsaðilum tímaritsins. Án þeirra væri þessi útgáfa ekki möguleg. Við verðum vör við, að umræða um sorg og sorgarviðbrögð hafi aukist þau 6 ár, sem samtökin hafa starfað. Enn er verið að stofna ný systursamtök í landinu og ber að fagna því. Auk þess ber meir á því, að námsefni framtíðar heilbrigðisstarfsfólks taki mið af þessari umræðu. Enn sem fyrr eru stærstu hóparnir, sem starfað hafa innan sorgarsamtaka í landinu þeir, sem misst hafa maka og þeir, sem misst hafa börn. Um barnsmissi hefur verið fjallað í fyrri tímaritum, svo og í bókinni „Von", sem kom út í fyrra. I þessu tímariti fær makamissir nokkra umfjöllun, svo og nokkur þau áföll, sem fjölskyldur þurfa að takast á við. Vonandi kemur þetta efni syrgjendum í landinu að góðum notum. Bragi Skúlason 5

x

Ný Dögun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný Dögun
https://timarit.is/publication/1305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.