Ný Dögun - 01.11.1993, Blaðsíða 34
AJý Dögun.
Hvað á að segja/gera andspænis syrgjanda?
Hafðu samband við syrgjandann svo fljótt sem auðið er.
Best er að mæta á staðinn og gefa af tíma sínum.
Það getur verið gott fyrir syrgjandann að fá að segja
hvernig honum/henni líður. Þú gerir rétt ef þú hlustar.
Láttu þínar eigin tilfinningar vísa þér leið, ekki fyrirfram
lærðar formúlur frá öðrum.
Töfraorð huggunarinnar eru ekki til, aðeins ófullkomin
orð frá fólki, sem við vonum að sé vel meinandi.
Snerting og/eða faðmlag segir meira en mörg orð.
Huggunin liggur meira í því hver maður er, heldur en
hver maður segist vera.
Hvetja syrgjandann til að koma út með eins mikla sorg
og mögulegt er strax, mildilega, ekki með þrýstingi.
Það er allt í lagi að tala um hinn látna. Endilega að segja
nafn hans/hennar.
Kannski hefur einhver í syrgjendahópnum gleymst.
Hver vill taka að sér að sinna honum/henni?
B.S.
34